
Handbolti

Sjö mörk Söndru skila sigri
Sandra Erlingsdóttir skoraði sjö mörk í sigri Metzingen gegn Blomberg-Lippe í 16-liða úrslitum þýsku Pokal bikarkeppninnar.

Patrekur hættir sem þjálfari Stjörnunnar
Patrekur Jóhannesson hefur látið af störfum sem aðalþjálfari Stjörnunnar í handbolta. Hrannar Guðmundsson mun taka við af honum og Patrekur færir sig í nýtt hlutverk innan félagsins. Þetta kemur fram í yfirlýsingu á samfélagsmiðlum Stjörnunnar.

Valur úr leik í Evrópubikarnum eftir stórt tap
Valskonur riðu ekki feitum hesti frá seinni viðureign sinni gegn rúmenska liðinu Dunarea Bralia í undankeppni Evrópudeildarinnar í handknattleik í dag. Lokatölur leiksins urðu 30-14 heimakonum í vil.

Ólafur fetar ótroðnar slóðir í Kúveit: „Tilboð sem ekki margir myndu segja nei við“
Ólafur Brim Stefánsson verður fyrsti íslenski handboltamaðurinn til þess að spila fyrir félagslið frá Kúveit. Hann hefur samið við Al-Yarmouk þar í landi og segir að ekki gætu margir leikmenn hafnað því óvænta tilboði sem hann fékk frá félaginu.

Umfjöllun og viðtöl: KA 27 - Stjarnan 26 | Dramatík í KA-heimilinu
KA vann dramatískan eins marks sigur á Stjörnunni í fjórðu umferð Olís deildar karla í handbolta í KA-heimilinu í kvöld. KA var með tvö jafntefli og einn sigur úr fyrstu þremur leikjum sínum á meðan Stjarnan hafði unnið einn leik en tapað tveimur.

„Maður verður bara að halda áfram“
Dagur Árni Heimisson skoraði sex mörk fyrir KA sem vann dramatískan eins marks sigur á Stjörnunni í fjórðu umferð Olís-deildar karla á Akureyri í kvöld.

Valsmenn taplausir á toppi Olís-deildarinnar
Valsmenn byrja tímabilið í Olís-deildinni af krafti en þeir eru einir taplausir á toppi deildarinnar eftir 34-30 sigur á Fram í fjörgum leik í kvöld.

ÍBV skoraði sex síðustu mörkin í Portúgal í endurkomusigri
ÍBV vann frækinn sigur í 2. umferð Evrópubikars kvenna í handbolta í kvöld en liðið leikur gegn portúgalska liðinu Colégio de Gaia. Liðin mætast aftur á morgun en báðir leikirnir verða spilaðir í Portúgal.

Jafntefli í botnslag KA/Þórs og Stjörnunnar
KA/Þór og Stjarnan þurfa að bíða áfram eftir sínum fyrsta sigri í Olís-deild kvenna í handbolta en botnliðið skildu jöfn í kvöld, 24-24.

Elvar með sex mörk og sex stoðsendingar í sigri Melsungen
Elvar Örn Jónsson og félagar í MT Melsungen eru áfram ósigraðir á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta en liðið lagði TSV Hannover-Burgdorf örugglega í 7. umferð í kvöld 34-26.

Lærisveinar Halldórs áfram í fallsæti
Halldór Jóhann Sigfússon og lærisveinar hans í Nordsjælland hafa ekki farið vel af stað í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta, en liðið situr í neðsta sæti með einn sigur eftir sex leiki.

Arnar Birkir skoraði fjögur í sigri og Þorgils og félagar sóttu sín fyrstu stig
Arnar Birkir Hálfdánsson og félagar hans í Amo eru enn með fullt hús stiga í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta eftir öruggan sex marka sigur gegn Aranas í kvöld, 33-27. Á sama tíma sóttu Þorgils Jón Svölu Baldursson og félagar í Karlskrona sín fyrstu stig á tímabilinu.

Elliði skoraði fimm í sigri | Ýmir og Arnór höfðu betur í Íslendingaslag
Íslendingaliðin Flensburg, Rhein-Neckar Löwen og Gummersbach unnu öll sína leiki í þýsku úrvalsdeildinni í hanbolta í kvöld.

Ellefu mörk Sigvalda dugðu ekki til
Sigvaldi Björn Guðjónsson var markahæsti maður vallarins er Kolstad heimsótti RK Zagreb í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld. Þrátt fyrir það máttu Sigvaldi og félagar þola ellefu marka tap, 31-20.

Þórey Anna með sjö mörk í öruggum sigri Vals
Íslandsmeistarar Vals áttu ekki í miklum vandræðum gegn nýliðum ÍR í Olís deild kvenna í kvöld. Lokatölur 30-20, Íslandsmeisturunum í vil.

Andrea með tvö mörk í sigri Silkeborg
Andrea Jacobsen var í liði Silkeborg sem sigraði 33-30 gegn liði Kaupmannahafnar. Silkeborg kemur sér með þessum sigri í 5. sæti deildarinnar.

Í liði umferðarinnar eftir sýninguna gegn Saran
Kristján Örn Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, er í úrvalsliði 3. umferðar frönsku úrvalsdeildarinnar.

Dómarar bendlaðir við hagræðingu úrslita eru í dómarahóp á EM í handbolta
Ísland á tvo dómara á Evrópumótinu í handbolta sem fer fram í Þýskalandi í janúar en þeir eru þar í hópi með tveimur umdeildum dómurum.

Anna Úrsúla aftur heim í Gróttu
Handboltakonan Anna Úrsúla Guðmundsdóttir tók aftur fram skóna í haust og hefur verið að spila með Valskonum í Olís deild kvenna í handbolta á þessu tímabili. Hún er líka komin á nýjan stað utan handboltavallarins.

ÍBV ekki í vandræðum með Aftureldingu
ÍBV vann átta marka sigur á Aftureldingu í Olís-deild kvenna í handbolta í kvöld, lokatölur í Vestmannaeyjum 32-24.

Lærisveinar Guðjóns Vals með góðan útisigur
Lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach unnu tveggja marka útisigur á Stuttgart í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Sigvaldi Björn ekki á leið til Kiel
Sigvaldi Björn Guðjónsson, hornamaður íslenska landsliðsins í handbolta og Noregsmeistara Kolstad er ekki á Þýskalandsmeistara Kiel.

Kiel vill fá Sigvalda
Sigvaldi Guðjónsson, landsliðsmaður í handbolta, er orðaður við Þýskalandsmeistara Kiel.

Norska stórliðið tapaði óvænt
Norska stórliðið Kolstad tapaði óvænt í norska handboltanum. Sander Sagosen sagði í viðtali eftir leikinn að vörn liðsins hefði verið eins og gatasigti.

Allt í járnum eftir fyrri leik Valskvenna
Valur tapaði með eins marks mun gegn rúmenska liðinu Dunarea Bralia í undankeppni Evrópudeildarinnar í handknattleik í dag. Seinni leikurinn fer fram ytra um næstu helgi.

Haukur skoraði þrjú í sigri Kielce og Óðinn tryggði Kadetten sigur
Haukar Þrastarson var í liði Kielce sem vann stórsigur í pólsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag. Þá var Óðinn Þór Ríkharðsson atkvæðamikill í æsispennandi leik Kadetten Schaffhausen.

Jafnt í Íslendingaslag og gott gengi Melsungen heldur áfram
Íslendingaliðin Leipzig og Magdeburg gerðu jafntefli í spennandi leik í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag. Þá er Melsungen áfram á sigurbraut.

Díana Dögg frábær í Íslendingaslag
Díana Dögg Magnúsdóttir átti frábæran leik fyrir Zwickau sem vann góðan sigur á Metzingen í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag. Sandra Erlingsdóttir leikur með liði Metzingen.

Magnaður Hergeir þegar Stjarnan náði í sín fyrstu stig
Stjarnan vann eins marks sigur á Gróttu þegar liðin mættust í Garðabæ í Olís-deild karla í handknattleik í kvöld.

Stjarnan og KA/Þór enn stigalaus á botni Olís-deildarinnar
Fram og ÍR unnu sigra í leikjum dagsins í Olís-deild kvenna í handknattleik í dag. Nýliðar ÍR náðu í sinn annan sigur á tímabilinu.