
Handbolti

Taka leiguflug frá Ísrael til Litáens og spila leikina þrjá á sex dögum
Íslenska karlalandsliðið í handbolta neyðist til að spila síðustu þrjá leiki sína í undankeppni EM í þremur löndum á sex dögum. Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur nú staðfest þá ákvörðun sína.

Ótrúleg tölfræði Ómars Inga eftir landsleikjahléið
Það er engu logið að Ómar Ingi Magnússon, landsliðsmaður í handbolta, hafi verið óstöðvandi að undanförnu. Eftir landsleikjahléið hefur hann verið markahæstur hjá Magdeburg í öllum leikjum liðsins nema tveimur.

Íhuga að kæra HSÍ og Stjörnuna og segja kostnaðinn nálgast milljón króna
„Mér þykir líklegt að við leitum áfram réttar okkar eftir þeim leiðum sem eru í boði,“ segir Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA. Hann telur afar ólíklegt að leikur KA/Þórs og Stjörnunnar í Olís-deild kvenna verði leikinn á ný í þessum mánuði.

Milljónir í sektir vegna dómaraskorts
Handknattleiksfélög landsins hafa ekki staðið sig sem skyldi í að ala upp dómara í sínum röðum og uppfylla aðeins fjögur félög kröfur dómaranefndar HSÍ í þessum efnum.

Árni Bragi snýr aftur í Mosfellsbæinn
Árni Bragi Eyjólfsson hefur samið við sitt gamla félag, Aftureldingu, en þetta er staðfest á Facebook síðu Handknattleiksdeildar Aftureldingar. Árni Bragi steig sín fyrstu skref í meistaraflokki með Aftureldingu og var markahæsti maður liðsins þrjú ár í röð.

Átta mörk Arnórs dugðu ekki til
Nokkrir Íslendingar voru í eldlínunni í þýska handboltanum í dag. Arnór Þór Gunnarsson skoraði átta mörk þegar lið hans Bergischer tapaði 33-30 á útivelli gegn Kiel og Alexander Petersson og félagar í Flensburg rétt mörðu Tusem Essen 28-29.

Stjarnan svarar fyrir sig: Sigur fyrir handboltann
Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur sent frá sér yfirlýsingu og segir dóm áfrýjunardómstóls HSÍ, um að leikur liðsins við KA/Þór skuli endurtekinn, vera sigur fyrir handboltaíþróttina.

Íþróttinni ekki til heilla og aðför að landsbyggðinni
„Takk fyrir þetta Stjarnan og HSÍ. Þetta er og verður handboltaíþróttinni ekki til heilla,“ segir í yfirlýsingu frá KA/Þór eftir að áfrýjunardómstóll HSÍ komst að þeirri niðurstöðu að endurtaka ætti leik liðsins við Stjörnuna.

Snorri Steinn ósáttur: „Einhver undarlegasta ákvörðun sem ég hef séð HSÍ taka“
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, er mjög ósáttur og skilur hvorki upp né niður í leikjaáætlun Olís-deildar karla sem var gefin út í dag.

Íslandsmótið í handbolta fer aftur af stað 25. apríl
Handknattleikssamband Íslands hefur staðfest að Íslandsmótið í handbolta fari af stað á nýjan leik þann 25. apríl.

„Með ólíkindum að EHF bjóði okkur upp á þessa umræðu“
„Það er í raun ótrúlegt að leggja þetta til,“ segir Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, um þá tillögu handknattleikssambands Evrópu, EHF, að Ísland spili þrjá leiki, í þremur löndum á aðeins sex dögum.

Draugamarksleikurinn verður endurtekinn
Leikur Stjörnunnar og KA/Þórs í Olís-deild kvenna í handbolta verður endurtekinn. Endurskipaður áfrýjunardómstóll staðfesti fyrri dóm dómstólsins.

„Flókið en tekst með góðu skipulagi“
Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, segir að það sé að mörgu að hyggja hjá HSÍ í kringum landsleikina hjá íslenska kvennalandsliðinu varðandi kórónuveinu ferðatakmarkanir.

Hópurinn sem fer til Slóveníu: Anna Úrsúla ekki með
Arnar Pétursson hefur valið sextán leikmanna hóp sem fer til Slóveníu og mætir þar heimakonum í umspili um sæti á HM kvenna í handbolta.

Kom ekki heim til sín í mánuð
Rut Jónsdóttir, leikmaður KA/Þór í Olís-deild kvenna og íslenska landsliðsins, hefur ekki komið heim til sín síðan í byrjun mars vegna anna með landsliðinu, æfingabanns hér á landi og fleira.

Ómar Ingi fór á kostum í Evrópudeildinni
Ómar Ingi Magnússon átti stórleik þegar að lið hans Magdeburg vann góðan sex marka sigur gegn Kristianstad í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar í handbolta. Lokatölur 34-28, og Magdeburg því í góðum málum fyrir seinni leikinn í Þýskalandi.

Aron og félagar nálgast titilinn í spænska handboltanum
Aron Pálmarsson og liðsfélagar hans í Barcelona tóku stórt skref í átt að enn einum deildarmeistaratitlinum í spæska handboltanum þegar þeir lögðu CD Bidasoa Irun, 35-27 í dag. Barcelona hefur nú 11 stiga forskot á Bidasoa sem situr í öðru sæti.

„Tímaramminn leyfir okkur því miður ekki að klára allt sem við þurfum að klára“
Allar líkur eru á því að gera þurfi breytingar á mótafyrirkomulagi hjá HSÍ til að hægt verði að klára Íslandsmótið. Stefnt er að því að hefja keppni á ný í lok næstu viku.

Yfirlýsing Stjörnunnar vegna draugamarksins: Það sem gerist inni á vellinum á að ráða úrslitum
Handknattleiksdeild Stjörnunnar sendi í dag frá sér yfirlýsingu þar sem farið er yfir ástæður þess að hún kærði úrslit leiksins gegn KA/Þór í Olís-deild kvenna 13. febrúar.

Skipa nefnd sem á að móta stefnu kvennahandbolta hér á landi
Á ársþingi HSÍ í gær var ákveðið að skipa nefnd sem mun móta stefnu framtíðar kvennahandbolta hér á landi. Afrekstefna sambandsins var einnig uppfærð og þá var staðfest að HSÍ hafi skilað hagnaði þriðja árið í röð.

Tillögu HK vísað frá
Olís deild kvenna í handbolta helst óbreytt á næstu leiktíð en þetta var staðfest á ársþingi HSÍ í dag.

Ómar fór á kostum í sigri
Ómar Ingi Magnússon var lang markahæsti leikmaður vallarins er Magdeburg hafði betur gegn Nordhorn-Lingen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Viktor hafði betur í uppgjöri íslensku markvarðanna
GOG vann öruggan sigur á Kolding er liðin mættust í Íslendingaslag í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Íslendingarnir atkvæðamiklir í Svíþjóð og Danmörku
Íslendingalið áttust við í sænska og danska handboltanum í dag og voru íslensku leikmennirnir flestir í stórum hlutverkum.

Leggja til fjölgun liða í efstu deild
Ársþing Handknattleikssambands Íslands, HSÍ, fer fram næstkomandi mánudag og liggur ein tillaga frá félögum í landinu fyrir þinginu. Hún kemur úr Kópavogi.

„Svo er það náttúrulega önnur saga hvort öll liðin séu að fylgja þessari reglu“
Arnar Daði Arnarsson, þjálfari Gróttu í Olís-deild karla í handbolta, ræddi við Stöð 2 og Vísi æfingabannið hér á landi. Hann segist ekki viss um að öll lið landsins séu að fara eftir settum reglum.

Börsungar unnu ellefu marka sigur og eru enn með fullt hús stiga
Barcelona vann 11 marka sigur á Benedorm í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, lokatölur 35-46. Börsungar eru því enn með fullt hús stiga.

Melsungen og Löwen unnu en fimm mörk Odds dugðu ekki til sigurs
Þrjú Íslendingalið voru eldlínunni í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld og eitt í B-deildinni. Balingen-Weilstetten tapaði gegn Göppingen, Melsungen vann Essen og Rhein-Neckar Löwen vann Nordhorn-Lingen. Þá tapaði Gummersbach í B-deildinni.

Með þessu áframhaldi sjáum við fram á að geta ekki klárað tímabilið okkar
Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður Íslands í handbolta, tjáði sig um kórónufaraldurinn og stöðu íþróttafólks hér á landi á Facebook-síðu sinni í dag. Pistilinn í heild sinni má finna neðst í fréttinni.

Stjarnan fær grjótharðan línumann úr Þorpinu
Stjarnan hefur samið við línumanninn Þórð Tandra Ágústsson. Hann kemur til liðsins frá Þór í sumar.