Handbolti

Rúmenía og Ungverjaland unnu leikina sem engu máli skiptu
Rúmenía og Ungverjaland unnu leiki sína á HM kvenna í handbolta í dag. Sigrarnir skila þjóðunum þó ekki í 8-liða úrslit og enda þau bæði í 3. sæti í sínum riðlum.

Umfjöllun: Ísland - Kína 30-23 | Stelpurnar tryggðu sig áfram í úrslitaleik Forsetabikarsins
Ísland vann sjö marka sigur, 30-23, á Kína í lokaleik I-riðils Forsetabikarsins á HM kvenna í handbolta. Íslenska liðið fer þar af leiðandi ósigrað upp úr riðlinum og keppir úrslitaleik Forsetabikarsins við Kongó næstkomandi miðvikudag.

Ofurtölvan telur Magdeburg eiga þrettán prósent möguleika að verja titilinn
Samkvæmt útreikningum tölfræðisérfræðingsins Julians Rux á Handballytics á Barcelona mesta möguleika á að vinna Meistaradeild Evrópu í handbolta.

Stelpurnar okkar tryggja sér úrslitaleik á móti Kongó vinni þær í kvöld
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mætir Kongó í úrslitaleik Forsetabikarsins vinni þær leik sinn á móti Kína á HM í kvöld.

Þórir ósáttur við ákvörðun Alþjóða ólympíunefndarinnar: „Punktur!“
Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta, hefur sterkar skoðanir á því að rússnesku íþróttafólki verði leyft að keppa á Ólympíuleikunum í París á næsta ári.

Frakkland fyrstar til að leggja Noreg
Frakkland vann Noreg með eins marks mun í lokaleik milliriðils II á HM kvenna í handbolta. Leikurinn skar úr um hvort lið myndi vinna riðilinn en bæði voru komin áfram í 8-liða úrslit.

Átján íslensk mörk í jafntefli í Íslendingaslag
MT Melsungen og Magdeburg skildu jöfn er liðin mættust í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, 29-29.

Svíþjóð og Danmörk í átta liða úrslit
Svíþjóð og Danmörk eru komin á 8-liða úrslit HM kvenna í handbolta. Þá tókst Kína að jafna Ísland að stigum í baráttunni um Forsetabikarinn.

Umfjöllun: Paragvæ - Ísland 19-25 | Sterkur sigur Íslands á leiðinni að Forsetabikarnum
Ísland vann Mið-Ameríku meistara Paragvæ í Forsetabikarnum á HM kvenna í dag með sex marka mun. Lokatölur 19-25 í leik sem íslenska liðið var í basli sóknarlega stóran hluta leiksins.

Ágúst Elí og Elvar sáu um topplið Álaborgar
Íslendingalið Ribe-Esbjerg lagði stórlið Álaborgar í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta með eins marks mun. Ágúst Elí Björgvinsson og Elvar Ásgeirsson áttu stóran þátt í sigrinum.

Botnliðið sótti mikilvæg stig norður
Selfoss, botnlið Olís-deildar karla í handbolta, vann afar mikilvægan tveggja marka sigur er liðið heimsótti KA norður á Akureyri í dag, 28-30.

ÍBV blandar sér í toppbaráttuna
ÍBV vann öruggan 13 marka sigur á Stjörnunni í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Þá vann Fram góðan útisigur á Gróttu og Haukar unnu HK.

„Myndi ekki segja að þetta væri skref niður á við“
Ýmir Örn Gíslason, landsliðsmaður í handbolta, mun færa sig um set í Þýskalandi að yfirstandandi leiktíð lokinni. Hann vildi komast í nýtt umhverfi og flyst um 100 kílómetra suður, til Göppingen.

Noregur í átta liða úrslit
Þórir Hergeirsson stýrði liði Noregs til sigurs gegn Slóveníu í milliriðli HM kvenna í handbolta í kvöld, lokatölur 34-21. Þá vann Holland stórsigur á Úkraínu.

Súrt tap hjá Íslendingaliði Leipzig
Íslendingalið Leipzig tapaði með eins marks mun fyrir Eisenach í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, lokatölur 25-24 Eisenach í vil.

Valsmenn unnu í Safamýri
Valur vann sex marka sigur á Víkingum í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Lokatölur í Safamýri, heimavelli Víkinga, 21-27.

HM kvenna: Tékkland með mikilvægan sigur á Spáni
Tékkland vann mikilvægan sigur á Spáni í milliriðli IV á HM kvenna í handbolta. Sigurinn þýðir að báðar þjóðir eru með sex stig sem stendur og Tékkland á því enn möguleika á að komast áfram. Þá er Frakkland enn með fullt hús stiga.

Gleðitíðindi af Gísla: Í hóp mánuði fyrir EM
Svo virðist sem að möguleiki sé á því að Gísli Þorgeir Kristjánsson verði með íslenska landsliðinu í handbolta á Evrópumótinu í Þýskalandi í janúar, eftir erfið meiðsli.

Þórir varar sínar stelpur við að lenda ekki í því sama og Danir
Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins, var fljótur að nýta sér vandræði danska landsliðsins í gærkvöldi sem víti til varnaðar fyrir sitt lið í framhaldinu á heimsmeistaramótinu.

Ýmir fer til Göppingen: „Mikilvægur í vörn og sókn“
Landsliðsmaðurinn Ýmir Örn Gíslason söðlar um í Þýskalandi næsta sumar og gengur í raðir Göppingen frá Rhein-Neckar Löwen. Honum er ætlað stórt hlutverk í nýja liðinu.

Ýmir yfirgefur Löwen en verður áfram í Þýskalandi
Landsliðsmaðurinn í handbolta, Ýmir Örn Gíslason, yfirgefur Rhein-Neckar Löwen næsta sumar. Hann hefur leikið með liðinu síðan í febrúar 2020.

Tveir leikmenn horfnir á HM kvenna
Heimsmeistaramót kvenna í handbolta er í fullum gangi en eitt liðanna er ekki með fullskipaðan hóp þar sem að tveir leikmenn eru horfnir.

Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - FH 29-32 | Aron skoraði fimmtán í stórleiknum
FH-ingar unnu góðan þriggja marka sigur er liðið heimsótti Aftureldingu í Olís-deild karla í handbolta í kvöld, 29-32. Aron Pálmarsson gerði sér lítið fyrir og skoraði fimmtán mörk fyrir Hafnfirðinga.

„Munurinn er einfaldlega Aron Pálmarsson, þeir eru með hann en ekki við“
Gunnar Magnússon, þjálfari Aftureldingar, var að vonum svekktur eftir tap liðsins gegn FH í dag. Aron Pálmarsson átti stórleik fyrir FH og skoraði 15 mörk og segir Gunnar að þar hafi munurinn á liðunum legið.

Fimmtán íslensk mörk er Magdeburg komst upp úr riðlinum
Janus Daði Smárason og Ómar Ingi Magnússon skoruðu samtals fimmtán mörk fyrir Evrópumeistara Magdeburg er liðið vann níu marka sigur gegn Porto og tryggði sér um leið sæti í útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Japan vann óvæntan sigur gegn Dönum
Japan vann óvæntan eins marks sigur er liðið mætti Dönum á HM kvenna í handbolta í kvöld, 26-27.

Umfjöllun: Grænland - Ísland 14-37 | Gáfu Grænlendingum engin grið
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mætir Grænlandi í fyrsta leik sínum í Forsetabikarnum á HM.

Úlfur dæmdur í þriggja leikja bann í annað sinn á rúmu ári
Úlfur Gunnar Kjartansson, leikmaður Hauka, hefur verið úrskurðaður í þriggja leikja bann fyrir brot í leik gegn Fram í Olís-deild karla í síðustu viku.

Þórir um HM: Ekki svindl en ekki heldur alveg sanngjarnt
Blaðamaður Aftonbladet í Svíþjóð fullyrðir að HM kvenna í handbolta sé hagrætt í þágu gestgjafa mótsins. Þórir Hergeirsson, þjálfari Noregs, segir ekki um neitt svindl að ræða en tekur undir að fyrirkomulagið sé ekki alveg sanngjarnt.

Þórir og Noregur fóru létt með Angóla
Noregur, sem Þórir Hergeirsson þjálfar, fór létt með Angóla á HM kvenna í handbolta í kvöld.