Íslenski boltinn

Stórskemmtilegt innslag um Pollamótið: „Vá hvað þetta er gaman“
Pepsi Max Mörkin fjalla ekki aðeins um það sem gerist í Pepsi Max deild kvenna heldur kvennaknattspyrnu almennt. Að þessu sinni var það Pollamótið á Akureyri.

Sjáðu markið sem tryggði Þór/KA sæti í 8-liða úrslitum
Þór/KA tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna fyrr í dag.

Íslandsmeistararnir mæta bikarmeisturunum í 8-liða úrslitum
Búið er að draga í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna. Íslandsmeistarar Vals heimsækja bikarmeistara Selfoss heim.

Landsliðsþjálfarinn telur það kost að deildin verði spiluð fram á haust
Þjálfari íslenska A-landsliðsins í fótbolta, mætti í Pepsi Max Mörkin á föstudagskvöldið. Var hann spurður út í hvort það hefði áhrif á landsliðið að nokkur lið deildarinnar hefðu þurft að fara í sóttkví.

2. deild: Hemmi með sigur í fyrsta leik
Fimm leikjum er lokið í 5. umferð 2. deildar karla í fótbolta. Hermann Hreiðarsson vann sigur í fyrsta leik sínum sem þjálfari Þróttar Vogum og Kórdrengir halda áfram að hala inn stigum.

Fyrsta tap Fram kom gegn Leikni R. | Magni enn án sigurs
Tveir leikir fóru fram í Lengjudeild karla í dag. Magni Grenivík tapaði enn einum leiknum og Leiknir Reykjavík varð fyrsta liðið til að leggja Fram af velli.

Talið að leikmaður Skallagríms hafi áður farið í bann fyrir rasisma
Leikamaður Skallagríms, sem lét niðrandi ummæli falla í garð Gunnars Jökuls Johns, leikmanns Berserkja í leik liðanna í gær, er talinn hafa farið í tveggja ára áhorfendabann vegna rasisma árið 2015. Mbl greinir frá þessu.

Yfirlýsing frá Skallagrími vegna rasískra ummæla leikmanns
Skallagrímur hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar atviks sem átti sér stað í leik Berserkja og Skallagríms í 4. deild karla í fótbolta í gær. Leikmaður Skallagríms var uppvís að rasískum ummælum í garð Gunnars Jökuls Johns, leikmanns Berserkja.

Gunnar kallaður apaköttur og sagt að „drullast heim til Namibíu“
Gunnar Jökull Johns, leikmaður Berserkja í 4. deild karla, varð fyrir kynþáttafordómum í deildarleik gegn Skallagrími, ef marka má frétt fótbolta.net.

Umfjöllun og viðtöl: Fylkir 0-1 Breiðablik | Breiðablik áfram í átta liða úrslitin
Breiðablik sigraði Fylki í Mjólkurbikar kvenna í kvöld. Lokatölur úr Árbænum 1-0 Blikum í vil.

Haukar áfram í bikarnum eftir stórsigur
Haukar sigruðu sameiginlegt lið Fjarðabyggðar, Hattar og Leiknis 7-1 í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna í kvöld.

Mjólkurbikarinn: KR, FH og bikarmeistararnir áfram
KR, FH og Selfoss hafa tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna.

Valur afgreiddi ÍBV á tíu mínútum og fer áfram í fjórðungsúrslit bikarsins
Valur sigraði ÍBV 3-1 í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna í kvöld. Það tók Val ekki nema tíu mínútur að gera út um leikinn.

Rúrik útilokar ekki að spila í Pepsi Max deildinni í sumar
„Er ekki alltaf líkur? Ég ætla ekki að útiloka neitt, en það er svo sem ekkert á döfinni heldur,“ sagði Rúrik Gíslason aðspurður hvort það gæti farið svo að hann muni spila í Pepsi Max deildinni í sumar.

Hefna Blikar eina tapsins síns í næstum því tvö ár?
Fylkir fær Breiðablik í heimsókn í stórleik sextán liða úrslita Mjólkurbikars kvenna. Árbæingar freista þess að slá Blika út úr bikarnum annað árið í röð.

Ósammála um atvikið umdeilda í nýliðaslagnum: „Er mest hissa á viðbrögðum Guðna“
Sparkspekingar Pepsi Max-marka kvenna, Mist Rúnarsdóttir og Kristín Ýr Bjarnadóttir, voru ekki sammála um það hvort að FH hefði átt að fá vítaspyrnu gegn Þrótti í nýliðaslagnum fyrr í vikunni.

„Er ekki sammála þessum þjálfurum og það ekki í fyrsta skipti“
Davíð Þór Viðarsson, sparkspekingur og fyrrum knattspyrnumaður, segir að það sé mikill munur á „stóru“ sex liðunum og liðunum sex sem koma þar á eftir.

Umfjöllun og viðtöl: Fylkir 4-1 KA | Þriðji sigur Fylkis en KA í vandræðum
Fylkir er á fljúgandi siglingu og er með þrjá sigurleiki í röð í Pepsi Max-deildinni eftir 4-1 sigur á KA í kvöld. Það er hins vegar ekki sama uppi á teningnum hjá KA sem er með tvö stig í fyrstu fjórum leikjunum.

Reiknar með að varnarleikurinn í deildinni fari að lagast
Óvenju mörg mörk hafa verið skoruð eftir fimm umferðir í Pepsi Max deild karla í sumar. Davíð Þór Viðarsson, sérfræðingur á Stöð 2 Sport, telur óhefðbundið undirbúningstímabil spila hvað stærstan þátt í því.

Hemmi Hreiðars tekur við sem þjálfari Þróttar Vogum
Hermann Hreiðarsson, fyrrum landsliðsmaður og leikjahæsti Íslendingurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, hefur tekið við þjálfun Þróttar Vogum í 2. deild karla.

Dúndurleikur Hannesar í Víkinni
Landsliðsmarkvörðurinn sýndi hvers hann er megnugur þegar Valur sigraði Víking, 1-5, í Pepsi Max-deild karla.

Tróna á toppnum með fullt hús stiga og hafa ekki enn fengið á sig mark
HK hefur farið vel af stað í 2. deild kvenna í sumar en þetta er fyrsta tímabil liðsins í meistaraflokki.

Skoski framherjinn hjá Gróttu laus úr sóttkví
Kieran McGrath gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir Gróttu þegar liðið fær ÍA í heimsókn á sunnudaginn.

Segir að kórónuveiruhléið hafi áhrif á varnarleikinn í Pepsi Max-deildinni
Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, hefur ekki miklar áhyggjur af varnarleik liðsins þó að liðið hafi lekið inn fjölda marka í upphafi Pepsi Max-deildarinnar.

„Það er meðbyr með þessu Gróttuverkefni úti í þjóðfélaginu“
Hjörvar Hafliðason, sparkspekingur, segir að Ágústi Gylfasyni, þjálfara Gróttu, fylgi gífurleg stemning og mikill stöðugleiki en hann sé þó duglegur að hrista upp í hlutunum.

„Útivistartíminn var liðinn og hann hefði ekki mátt vera boltasækir í kvöld“
Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, var ánægður með innkomu hins unga Loga Hrafns Róbertssonar í leik liðsins gegn Breiðabliki í gærkvöldi en Logi spilaði síðari hálfleikinn í fjörugu 3-3 jafntefli.

Hjörvar vill leggja dómaraumræðuna til hliðar og njóta leiksins
Hjörvar Hafliðason, sparkspekingur, vill sjá fólk hætta tala eins mikið um dómgæslu og hefur verið gert í upphafi Íslandsmótsins og einbeita sér að leikjunum fjörugu.

Sjáðu markasúpuna og atvikin umdeildu úr leikjum gærkvöldsins í Pepsi Max-deildinni
Það var mikið fjör og dramatík er fjórir leikir fóru fram í 5. umferð Pepsi Max-deildarinnar en nítján mörk voru skoruð í leikjum gærkvöldsins.

Óli Kristjáns: Tekur tíma hjá stærðfræðingum að finna lausnina en hún er oftast góð
Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, var nokkuð sáttur með stig sinna manna á Kópavogs-velli í gærkvöld.

Óskar Hrafn: Horfum á þetta sem tvö töpuð stig
Óskar Hrafn Þorvaldsson var vægast sagt ósáttur með stigið sem hans menn í Breiðablik fengu á heimavelli gegn FH í kvöld.