Körfubolti

Körfuboltakvöld: „Trúi ekki að drengurinn hafi tekið þessa ákvörðun“
Teitur Örlygsson og Jón Eðvarð Halldórsson eru ekki hrifnir af því að Dagur Kár Jónsson hafi ákveðið að skipta út sökkvandi skipi KR fyrir Stjörnuna í Subway deild karla. Þeir viðruðu skoðun sína í síðasta þætti Körfuboltakvölds.

Darri Freyr segist ekki hafa heyrt frá Tindastóli
Darri Freyr Atlason er efstur á blaði Tindastóls sem leitar nýs þjálfara meistaraflokks karla í körfubolta. Darri kveðst þó ekki hafa hafið viðræður við Stólana.

„Pínu fáránlegt hversu skringilega þeir byrjuðu tímabilið“
Golden State Warriors, ríkjandi meistarar NBA deildarinnar í körfubolta, hefur nú tapað tveimur leikjum í röð gegn heldur slökum mótherjum og situr 6. sæti Vesturdeildar. Farið verður yfir stöðu mála hjá Stephen Curry og félögum í þætti kvöldsins af Lögmál leiksins. Hann er á dagskrá Stöðvar 2 Sport 2 klukkan 22.00.

Kevin Durant meiddist á hné
Kevin Durant fer í myndatöku í dag eftir að hafa meiðst á hné í sigurleik Brooklyn Nets á Miami Heat í NBA-deildinni í körfubolta í gær.

Vladimir Anzulovic látinn fara frá Tindastól
Körfuknattleiksdeild Tindastóls Vladimir Anzulovic hafa komist að samkomulagi um að hann hætti störfum sem aðalþjálfari meistaraflokks karla.

Hilmar skoraði tólf er Münster vann með minnsta mun
Hilmar Pétursson átti flottan leik fyrir Münster er liðið vann nauman eins stigs sigur gegn Jena í þýsku B-deildinni í körfubolta í kvöld, 68-67.

Jón Axel og félagar aftur á sigurbraut
Jón Axel Guðmundsson og félagar hans í Pesaro eru komnir aftur á sigurbraut eftir að liðið vann öruggan 29 stiga sigur gegn Treviso í ítölsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld, 101-72.

Tryggvi og félagar sóttu mikilvægan sigur í botnbaráttunni
Tryggvi Snær Hlinason og félagar hans í Zaragoza unnu afar mikilvægan sjö stiga sigur er liðið heimsótti Manresa í spænsku ACB-deildinni í körfubolta í dag, 65-72.

Enn ein þreföld tvenna hjá Doncic | James nálgast stigametið
Luka Doncic náði 9. þreföldu tvennu sinni á tímabilinu í sigri Maverics á Pelicans í NBA deildinni í nótt á meðan LeBron James nálgast stigamet Kareem Abdul-Jaabar óðfluga. James átti enn eina frábæra frammistöðuna er Lakers vann tveggja stiga sigur á Kings.

Tilþrifin: „Gummi greyið springur náttúrulega bara úr hlátri“
Sérfræðingar Subway Körfuboltakvölds fóru yfir bestu tilþrif 12. umferðar í seinasta þætti.

„Skemmir vöruna og rýrir trúverðugleika deildarinnar“
Ahmad Gilbert var mikið í umræðunni í aðdraganda leiks Stjörnunnar og Vals síðastliðinn fimmtudag þar sem Stjörnunni tókst að fá hann á lán bæði í deild og bikar. Gilbert mun allt í allt gera fjögur félagsskipti milli Stjörnunnar og Hrunamanna.

Ægir í sigurliði gegn toppliðinu en Þórir þurfti að sætta sig við tap
Ægir Þór Steinarsson og félagar hans í Alicante unnu góðan sjö stiga sigur er liðið tók á móti toppliði MoraBanc Andorra í spænsku B-deildinni í körfubolta í kvöld, 73-66. Þá þurftu Þórir Þorbjarnarson og félagar hans í Oviedo að sætta sig við 15 stiga tap gegn Gipuzkoa í sömu deild.

Sara setti átta í mikilvægum sigri
Landsliðskonan Sara Rún Hinriksdóttir skoraði átta stig fyrir Faenza er liðið vann góðan tíu stiga sigur gegn Libertas Moncalieri í ítölsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld, 72-62.

Körfuboltakvöld: Bræðurnir frá Þorlákshöfn unnu vel saman
Frammistaða bræðranna Styrmis Snæs og Tómasar Vals Þrastarsonar var til umræðu í Körfuboltakvöldi í gær. Teitur Örlygsson og Jón Halldór Eðvaldsson voru heillaðir af spilamennsku þeirra.

LeBron James snéri aftur öflugur eftir veikindi
LeBron James reis úr rekkju eftir að hafa glímt við veikindi síðustu daga go skoraði 25 stig í sigri Los Angeles Lakers gegn Atlanta Hawks í NBA-deildinni í körfubolta karla í nótt sem leið.

„Vonandi sjáum við öll að okkur í þessu máli“
Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson, körfuboltadómari, lagði flautuna á hilluna í síðasta mánuði. Ástæðan er svívirðingar, dónaskapur og persónuníð. Formaður dómaranefndar KKÍ, Jón Bender, segir starfsumhverfið óboðlegt og undanskilur ekki yngri flokka.

Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll - Keflavík 75-84 | Keflvíkingar sterkari í síaðri hálfleik
Keflavík vann sterkan níu stiga sigur er liðið heimsótti Tindastól í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur 75-84, en eftir jafnan og spennandi fyrri hálfleik reyndust gestirnir sterkari eftir hlé.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Þór Þ. 113-137 | Þórsurum héldu engin bönd í Smáranum
Þór Þorlákshöfn lék á als oddi þegar liðið sótti Breiðablik heim í Smárann í 12. umferð Subway-deildar karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur í leiknum urðu 113-137 Þór í vil.

KR-ingar fá enn einn erlenda leikmanninn
Körfuknattleiksdeild KR hefur samið við Bandaríkjamanninn Antonio Williams um að leika með liðinu út yfirstandandi leiktíð í Subway-deild karla.

Lentu undir í leik áður en hann byrjaði
Það er ekki gott að lenda undir í upphafi leikja hvað þá áður en hann byrjar.

Þrumuræða Darra um Dag Kár: Dagur gafst upp á liðinu
Darri Freyr Atlason mætti í Subway Tilþrifin í gærkvöldi og fór yfir mál Dags Kár Jónssonar sem yfirgaf félagið um áramótin og hefur nú þegar spilað sinn fyrsta leik fyrir Stjörnuna.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík-ÍR 103-74 | Breiðhyltingar sóttu ekki gull í greipar Njarðvíkinga
Njarðvíkingar unnu öruggan 29 stiga sigur er liðið tók á móti ÍR í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, lokatölur 103-74.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Valur 76-80 | Valsmenn höfðu betur í framlengdum leik
Valur vann nauman fjögurra stiga sigur er liðið sótti Stjörnuna heim í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur 76-80, en grípa þurfti til framlengingar til að skera úr um sigurvegara.

Eru að prísa sig sem einhverja atvinnumannadeild en fréttir síðustu daga hafi kannski offað það aðeins
Það virtist ekki bjart yfir Ísak Mána Wium, þjálfara liðs ÍR í Subway deild karla í körfubolta, eftir að hans lið beið ósigur, í Ljónagryfjunni, fyrir Njarðvík með tuttugu og níu stiga mun, 103-74, fyrr í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Höttur - Haukar 83-97 | Haukar skutu Hött í kaf
Haukar unnu í kvöld öruggan sigur á Hetti, 83-97 þegar liðin mættust á Egilsstöðum í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í kvöld. Aðeins eitt skot geigaði hjá Hafnfirðingum fyrstu sjö mínútur leiksins og þar með var tónninn gefinn.

Maté: Allt fór ofan í, sama hver skaut
Maté Dalmay, þjálfari Hauka, viðurkenndi eftir 83-97 sigur á Hetti í úrvalsdeild karla að leikmenn liðsins hefðu glímt við ýmis vandamál í aðdraganda leiksins. Það var ekki að sjá þegar flautað var til leiks og liðið geigaði aðeins á einu skoti fyrstu sjö mínúturnar.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - KR 89-81 | Grindvíkingar mörðu KR á seiglunni suður með sjó
Grindavík vann nauman átta stiga sigur er liðið tók á móti botnliði KR í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, lokatölur 89-81.

„Það díla allir við meiðsli, það er ekki afsökun“
KR-ingar hófu leikinn gegn Grindavík í Subway-deild karla af krafti og náðu 11 stiga forskoti á heimamenn þegar best lét. Þessi byrjun dugði þeim þó skammt þar sem Grindvíkingar komust smátt og smátt í takt við leikinn og unnu alla leikhlutana að loknum þeim fyrsta.

Flautan á hilluna vegna svívirðinga: „Meinaði fjölskyldunni að mæta á þá leiki sem ég dæmdi“
Körfuboltadómarinn Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson hefur ákveðið að leggja flautuna á hilluna eftir að hafa starfað við dómgæslu undanfarin sjö ár. Hann segir ástæðuna vera svívirðingar, dónaskap og persónuníð sem hann hefur mátt þola á sínum dómaraferli.

Mun skipta um lið fjórum sinnum á rúmri viku
Ahmad Gilbert hefur fengið félagsskipti til Stjörnunnar frá Hrunamönnum og mun leika með Garðbæingum er þeir mæta Val í Subway-deild karla í kvöld. Hann mun hins vegar spila fyrir Hrunamenn annað kvöld.