

Los Angeles Lakers, lið LeBrons James, er að ganga í gegnum miklar breytingar þessa dagana en hann sjálfur er að spila frábærlega og leiðir vængbrotið lið til sigurs í hverjum leiknum á fætur öðrum.
Hattarmenn máttu sætta sig við sitt sjötta tap í röð í Bónus-deild karla þegar liðið steinlá á Hlíðarenda 92-58. Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari liðsins var gríðarlega ósáttur við hugarfar sinna manna eftir leik.
Valsmenn héldu sigurgöngu sinni áfram í Bónus deild karla í körfubolta í kvöld með 34 stiga sigri á Hetti, 92-58, á Hlíðrenda. Þetta var fjórði sigur Valsliðsins í röð og kom liðinu upp í fimmta sætið.
Hörmulegt gengi Keflavíkur ætlar engan endi að taka. ÍR-ingar gerður góða ferð í Blue-höllina og unnu sannfærandi níu stiga sigur 81-90. Eftir áramót hefur Keflavík aðeins unnið einn af síðustu sex leikjum.
Njarðvík tók á móti KR í IceMar höllinni í kvöld þegar Bónus deild karla hélt áfram göngu sinni í kvöld. Njarðvík hafði tapað tvisvar gegn KR á tímabilinu og mættu grimmir til leiks í kvöld. Sigur Njarðvíkinga var aldrei í hættu og þeir höfðu betur með 24 stigum 103-79.
Jóhann Árni Ólafsson stýrði liði Grindavíkur í kvöld í fjarveru Jóhanns Þórs og landaði góðum sigri í Þorlákshöfn 95-104. Jeremy Pargo kom sterkur inn og stýrði sóknarleik Grindvíkinga af yfirvegun
Kjartan Atli Kjartansson, þjálfari Álftaness í Bónus deild karla, var kátur með sína menn í kvöld þegar Haukar voru lagði 107-90. Hann var sáttur með andann og það hve meðvitaðir þeir voru um hvað var hægt að laga.
Njarðvíkingar hefndu bikartapsins á móti KR á dögunum með því að bursta Vesturbæinga í IceMar-höllin í Bónus deild karla í kvöld. Njarðvík vann leikinn á endanum með 24 stiga mun, 103-79.
Álftanes steig stórt skref frá botnbaráttunni og í áttina að úrslitakeppninni með því að leggja Hauka af velli í 17. umferð Bónus deildar karla. Frábær fjórði leikhluti skildi að eftir leik sem var í jafnvægi. Lokatölur 107-90.
Grindvíkingar sóttu tvö stig í Þorlákshöfn í Bónus deild karla í körfubolta í kvöld eftir níu stiga sigur, 104-95 en Grindavíkurliðið var bæði án þjálfara síns og fyrirliða. NBA-maðurinn Jeremy Pargo lék sinn fyrsta leik og skoraði 25 stig.
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta var nálægt því að ná einum óvæntustu úrslitum undankeppni Evrópumótsins þegar liðið stóð vel í toppliði Tyrkja á útivelli. Tyrkland vann leikinn á endanum með sjö stiga mun, 83-76.
„Þetta er náttúrulega alltaf skrýtið þegar svona gerist. Svolítið sérstakt. En við erum búnir að eiga þrjár hörkuæfingar og menn tilbúnir að berjast fyrir klúbbinn bara,“ segir Magnús Þór Gunnarsson sem stýrir Keflavík gegn ÍR í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld.
Evrópubikarmeistarinn Björgvin Páll Gústavsson og Íslandsmeistarinn Höskuldur Gunnlaugsson hafa tekið upp hanskann fyrir körfuboltaþjálfarann Brynjar Karl Sigurðsson eftir ásakanir í hans garð um ofbeldisfulla hegðun í þjálfun.
Uppselt er á leik Tyrklands og Íslands sem fram fer í Izmit í dag og mikill áhugi á leiknum eins og íslensku stelpurnar hafa fengið að kynnast í aðdraganda hans.
„Í raun og veru má teikna þetta upp sem svo að þetta sé jafnvel síðasti séns Hauka á að geta talað sig inn á að halda sæti sínu í deildinni,“ segir Pavel Ermolinskij um GAZ-leik kvöldsins í Bónus deild karla í körfunolta þar sem Álftanes tekur á móti Haukum.
Mikil spenna ríkir fyrir frumraun Dimitrios Agravanis með toppliði Tindastóls í Bónus deild karla í körfubolta. Ferilskrá hans ber þess merki að um gæðaleikmann sé að ræða og á Sauðárkróki hittir hann fyrir litla bróður sinn.
NBA liðin Miami Heat og Golden State Warriors skiptust á leikmönnum í nótt og þar með líkur tíma Jimmy Butler hjá Miami.
Kevin Durant er einn af þeim leikmönnum sem gæti endaði í nýju liði áður en félagsskiptaglugginn lokast í NBA deildinni í körfubolta.
Marcus Jordan, sonur körfuboltagoðsagnarinnar Michael Jordan, er í vondum málum eftir að hafa verið handtekinn í gær.
Lebron James, stjörnuleikmaður NBA liðs Los Angeles Lakers segir það enn súrealískt fyrir sig að sjá Luka Doncic mættan til Lakers. Doncic var hluti af sögulegum skiptum í NBA deildinni.
Pétur Ingvarsson lét í gær af störfum sem þjálfari karlaliðs Keflavíkur í körfubolta. Hann skilur við tvo syni sína sem eru í liðinu og mun nú styðja þá úr fjarska.
Pavel Ermolinskij, GAZmaður og körfuboltasérfræðingur, hefur nú tekið skýrt fram að hann muni ekki taka við liði Keflavíkur í Bónus-deildinni.
Golden State Warriors íhuga nú að sækja Kevin Durant á ný áður en félagaskiptagluggi NBA-deildarinnar í körfubolta lokar þann 6. febrúar. Durant lék með Warriors frá 2016-19 og varð meistari tvívegis.
Ármann lagði KR með minnsta mun þegar topplið 1. deildar kvenna í körfubolta mættust í Vesturbænum. Ármann er þar með enn ósigrað á toppi deildarinnar á meðan KR er í 2. sætinu eftir að hafa tapað aðeins tveimur leikjum, báðum gegn toppliðinu.
Spænska félagið Surne Bilbao Basket er komið áfram í Evrópubikarnum í körfubolta. Miðherjinn Tryggvi Snær Hlinason skilaði sínu fyrir spænska félagið í kvöld.
Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari körfuboltaliðs Aþenu, er afar ósáttur við ályktun ÍSÍ svo vægt sé til orða tekið; þess efnis að þjálfarar láti af ofbeldi í störfum sínum. Brynjar Karl óskar þess að ÍSÍ láti af níði í garð stelpnanna í liði sínu.
Skipti Luka Doncic til Los Angeles Lakers frá Dallas Mavericks fyrir Anthony Davis hafa vakið mikla athygli. Skiptar skoðanir eru um mörg atriði samningsins sem félögin gerðu með sér.
Álftnesingar tilkynntu um komu nýs leikmanns í gærkvöldi. Sá heitir Lukas Palyza og mun leika með Álftanesi út yfirstandandi leiktíð.
Karlalið Keflavíkur í körfubolta er í þjálfaraleit eftir að Pétur Ingvarsson sagði starfi sínu lausu í gær. Magnús Þór Gunnarsson stýrir liðinu á fimmtudaginn kemur en félagið leitar þjálfara til að stýra liðinu út leiktíðina.
Það var að frumkvæði þjálfarins Péturs Ingvarssonar að leiðir hans og liðs Keflavíkur í körfubolta skildu eftir einlæg samtöl hans og stjórnar að sögn framkvæmdastjóra körfuknattleiksdeildar Keflavíkur. Leit að nýjum þjálfara hefst nú en sá verður ekki kominn í brúnna fyrir næsta leik liðsins á fimmtudaginn kemur.