Tryggvi fagnaði eftir trylli í Pýreneafjöllum Sindri Sverrisson skrifar 21. mars 2026 20:29 Tryggvi Snær Hlinason hefur nú fagnað fjórum sigrum í röð með Bilbao og gengið vel eftir landsleikina um síðustu mánaðamót. vísir/Hulda Margrét Landsliðsmiðherjinn Tryggvi Snær Hlinason og félagar hans í Bilbao Basket höfðu betur í framlengdum spennutrylli gegn MB Andorra í Pýreneafjöllunum í kvöld, 102-98, í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta.
Andorra er með félagslið í spænsku deildinni sem mistókst í kvöld að koma sér úr fallsæti. Bilbao vann hins vegar sinn annan sigur í röð og er núna í 8. sæti, í hópi þeirra átta liða sem fara í úrslitakeppnina, en næstu lið fyrir neðan eiga þó leiki til góða. Þetta var alls fjórði sigur Bilbao í röð því Tryggvi og félagar unnu báða sína leiki gegn tyrkneska liðinu Petkim Spor og komu sér í undanúrslit FIBA Europe-bikarsins í vikunni. Tryggvi lagði sitt að mörkum í sigrinum í kvöld og skoraði 10 stig á þeim rúmu 27 mínútum sem hann spilaði, tók fjögur fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Hann hitti úr öllum fjórum tveggja stiga skotum sínum en aðeins úr tveimur af sex vítum. Bilbao komst tveimur stigum yfir þegar 22 sekúndur voru eftir af fjórða leikhluta en heimamenn náðu að jafna og tryggja sér framlengingu. Þar byrjuðu gestirnir á tveimur þristum og höfðu frumkvæðið allt til loka þó að sigurinn væri naumur í lokin.
Spænski körfuboltinn Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Fótbolti 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Körfubolti Tuchel bannar Englendingum að stökkva yfir auglýsingaskilti eftir ófarir Henderson Fótbolti Í átta liða úrslit í fyrsta sinn í 72 ár Fótbolti Segist ekkert hafa með afléttingu bannsins að gera Fótbolti Fleiri fréttir 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Sjá meira