Lífið

Uppskrift að bleiku Barbie pasta
Barbie myndin og bleiki liturinn sem henni fylgir nýtur gríðarlegra vinsælda um þessar mundir. Æðið teygir anga sína víðar en hvað fatatísku varðar því bleiki liturinn er farinn að láta sjá sig í hinum ýmsu mataruppskriftum.

Einstakt hús hönnunarhjóna í Rjúpufelli
Vel skipulagt og smekklegt tvöhundruð fermetra raðhús við Rjúpufell 24 í Breiðholti er til sölu. Ásett verð fyrir eignina eru tæpar 105 milljónir.

Söng um Draumaprinsinn og giftist sínum
Einar Stefánsson, markaðs- og kynningarstjóri hjá Píeta samtökunum, trommuleikari Hatara og gítarleikari Vakar gekk að eiga Sólbjörtu Sigurðardóttur flugfreyju, dansara og leiklistarnema við hátíðlega athöfn um liðna helgi í Vestmannaeyjum.

Verslunarmannahelgin 2023: Hvað er í boði?
Verslunarmannahelgin, stærsta ferðahelgi ársins, nálgast nú óðfluga. Hjá mörgum er það fastur liður að skella sér á útihátíð og það er svo sannarlegu úr ýmsu að velja.

„Tónlistin er það sem gerir lífið þess virði að lifa því“
„Tónlist hefur alltaf verið svo sjálfsagður partur af lífi mínu. Það hafði auðvitað mikil áhrif á mig að pabbi minn, Kristján Eldjárn heitinn, starfaði sem gítarleikari þannig að tónlistin var alltaf mjög stór partur af heimilislífinu og það er eitthvað sem ég er mjög þakklát fyrir,“ segir tónlistarkonan Unnur Sara Eldjárn. Blaðamaður ræddi við hana um tónlistina og lífið í Suður Frakklandi, þar sem hún er búsett.

Moggaritstjóri kveður Reynimelinn
Matthías Johannessen fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, rithöfundur, ljóðskáld og áhrifamaður innan Sjálfstæðisflokksins, hefur sett parhús sitt við Reynimel á sölu. Ásett verð fyrir fermetrana 240 eru 179 milljónir.

Sögð hafa látið illa á Love Island settinu
Keppendur í núverandi seríu af Love Island eru sagðir hafa látið afar illa á setti seríunnar í ár og meðal annars stolið áfengi.

Safnað fyrir hjartveik börn
Árlega standa keppendur Miss Universe Iceland fyrir góðgerðarviðburði til styrktar góðs málefnis - sem er breytilegt ár frá ári. Keppendur í ár hafa ákveðið að styrkja Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna og munu halda góðgerðarbingó miðvikudaginn 2.ágúst næstkomandi.

Youtube-stjarna eldaði örbylgjurétt á glóandi hrauninu
Breska YouTube-stjarnan Max Fosh kom til landsins á dögunum í þeim tilgangi að sjá eldgosið við Litla-Hrút. Á meðan flestir hefðu látið sjónarspilið við hraunið nægja sér gerði Fosh sér lítið fyrir og eldaði sér örbylgjurétt á hrauninu.

Körfuboltastjarnan Kristófer Acox á lausu
Kristófer Acox, landsliðsmaður og leikmaður Vals í Subway-deild karla í körfubolta, og Ólavía Grímsdóttir arkítektúrnemi hafa slitið sambandi sínu.

Stjörnulífið: Hátíðarhöld, hinsegin dagar og hundaafmæli
Íslensku stjörnurnar halda áfram að njóta sumarsins hvort sem það er í sólinni erlendis eða úti á landi. Fjölmiðlamaðurinn Siggi Gunnars naut Hinsegin daga í Hrísey með ástinni sinni og leikarinn Bjarni Snæbjörnsson var sömuleiðis þar. Stórstjörnurnar Birgitta Haukdal og Páll Óskar létu Mærudaga á Húsavík ekki fram hjá sér fara en Birgitta fagnaði einnig 44 ára afmæli sínu í sínum heimabæ.

„Bless X“
Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, er hættur á samfélagsmiðlinum X, sem bar nafnið Twitter þar til nýlega. Hann segir að sér hafi ekki hugnast áform milljónamæringsins Elon Musk með miðilinn.

Grýtti hljóðnema í aðdáanda
Framkoma rapparans Cardi B á tónleikum í Las Vegas í gær fór ekki sem skyldi. Við flutning á laginu Bodak yellow grýtti hún hljóðnema í konu sem kastaði drykk yfir rapparann á sviðinu.

Edda Björg og Vigdís Hrefna ráðnar sem dósentar
Leikkonurnar Edda Björg Eyjólfsdóttir og Vigdís Hrefna Pálsdóttir hafa verið ráðnar sem dósentar við sviðslistadeild Listaháskóla Íslands.

„Þegar ég hætti að beita sjálfan mig ofbeldi og sýndi mér skilning fóru hjólin að snúast“
„Þegar mér leið illa, leiddist, var stressaður og þurfti að einbeita mér þá borðaði ég þar til að líkaminn sagði stopp. Og þá þyngdist á tilfinningunum enn þá meira. Þetta er vítahringur sem ég var fastur í,“ segir Jón Bergur Helgason.

„Ekki amalegt að fá að elda fyrir Gordon Ramsay!“
Stjörnukokkurinn Gordon Ramsay er staddur á Íslandi þessa stundina, eins og oft áður. Hann var gestur á veitingastaðnum í Þrastalundi í gær en þetta er annað árið í röð sem hann snæðir þar. Ásamt honum var leikarinn Max Beesley.

Fann ástina í örmum barnastjörnunnar úr Love Actually
Talulah Riley, leikkona og fyrrverandi eiginkona Elon Musk, og Thomas Brodie-Sangster, barnastjarna sem er þekktastur fyrir leik sinn í Love Actually, eru trúlofuð.

„Í lífinu er ekkert grand plan“
Sigurjón Sighvatsson er fluttur frá Hollywood og var nýlega verðlaunaður fyrir frumraun sína í leikstjórn. Hann er samt enn á fullu í kvikmyndaframleiðslu þó hann hafi tyllt sér aðeins í leikstjórastólinn. Í haust kemur hrollvekja eftir Yrsu í bíó og fleiri myndir eru handan við hornið.

Tvöfaldur íbúafjöldi á hinsegin hátið í Hrísey
Það er mikið um dýrðir í Hrísey þessa helgina. Þar er haldið upp á hinsegin daga í fyrsta sinn og er búist við því að tvöfaldur íbúafjöldi sé staddur á eyjunni yfir helgina.

Gefur nýja kærastanum svigrúm til að skilja við eiginkonuna
Söngkonan Ariana Grande og nýr kærasti hennar, leikarinn Ethan Slater, hafa ekki hist í nokkurn tíma. Er það vegna þess að Ariana vill veita Ethan svigrúm til að ganga frá skilnaði við eiginkonu hans, Lilly Jay.

Moe's Bar falur fyrir 99 milljónir
Fasteignin Jafnasel 6 í Breiðholtinu, þar sem barinn Moe's Bar hefur verið rekinn undanfarin fjórtán ár, hefur verið sett á sölu fyrir 99 milljónir króna.

Skrítnar verðmerkingar, ómalbikaðir vegir og gefins ávextir fyrir börn
Bandaríska blaðakonan Talia Lakritz fór í fimm daga ferðalag til Íslands í júní síðastliðnum en þetta var í fyrsta sinn sem hún kom hingað til lands.

Fékk nýra úr frænku sinni og öðlaðist nýtt líf um leið
Ísfirðingurinn Glóð Jónsdóttir öðlaðist nýtt líf fyrir tæpu ári þegar frænka hennar Svanlaug Björg Másdóttir gaf henni nýra. Reynslan hefur tengt þær stöllur órjúfanlegum böndum og 30. maí hefur nú ávallt sérstaka merkingu í huga Glóðar.

„Skylda mín að lifa lífinu fyrir hann“
Tónlistarmaðurinn Úlfur Eldjárn vissi snemma hvert hann vildi stefna. Fyrirmyndina fékk hann frá bróður sínum sem lést langt um aldur fram. Hann hleypur nú heilt maraþon í minningu bræðra sinna.

Týndi syni sínum í Nice: „Ég gat ekki hætt að gráta“
Haraldur Þorleifsson, eigandi hönnunarfyrirtækisins Ueno, týndi sex ára syni sínum um stund í borginni Nice í Frakklandi í dag. Hann sagði uppákomuna þá mest ógnvekjandi í lífi hans í Twitter færslu í dag.

Setja einstaka lóð á Arnarnesinu á sölu
Hjónin Alexandra Ívarsdóttir búðareigandi og Gylfi Þór Sigurðsson knattspyrnukappi hafa sett einstaka lóð við Mávanes 5 á Arnarnesinu í Garðabæ á sölu.

Ananas varð ofan á pepperóní hjá hluthöfum Íslandsbanka
Þrátt fyrir að það sé umdeilt hvort ananas eigi heima á pizzu þá fékk ávöxturinn næst flest atkvæði þegar kosið var um pizzuálegg á hluthafafundi Íslandsbanka í dag. Skinka fékk flest atkvæði en pepperóní lenti í þriðja sæti. Beikon fékk lang fæst atkvæði.

Fortíðin og flugeldar renna í eitt á nýrri plötu Auðar
Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, þekktur undir listamannanafninu Auður, gaf út plötuna Útvarp úlala á miðnætti. Platan inniheldur fimm lög úr ólíkum áttum sem Auður samdi og tók upp.

Eigandi Vera design selur hönnunarperlu
Skartgripahönnuðurinn og athafnakonan, Íris Björk Tanya Jónsdóttir, stofnandi og eigandi Vera design, hefur sett eign sína á sölu. Um er að ræða stórglæsilega og mikið endurnýjaða 195 fm íbúð á tveimur hæðum við Miðleiti. Ásett verð fyrir íbúðina eru 169 milljónir.

Fyrsti bassaleikari the Eagles er látinn
Randy Meisner, fyrsti bassaleikari og einn stofnenda hljómsveitarinnar the Eagles, lést á miðvikudag.