
Lífið

Roger E. Mosley látinn eftir bílslys
Bandaríski leikarinn Roger E. Mosley er látinn, 83 ára að aldri. Hann er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt sem þyrluflugmaðurinn Theodore „T.C.“ Calvin í þáttaröðinni Magnum P.I. þar sem hann fór með eitt aðalhlutverka við hlið Tom Selleck.

Dóttir Jóhönnu Guðrúnar hlaut nafnið Jóhanna Guðrún
Dóttir Jóhönnu Guðrúnar og Ólafs Friðriks Ólafssonar hefur nú hlotið nafnið Jóhanna Guðrún líkt og móðir sín en hún kom í heiminn þann 23. apríl síðastliðinn.

Sýna villt dýr í skemmtilegu ljósi
Forsvarsmenn dýralífsljósmyndakeppninnar Comedy Wildlife Photography Awards birtu nýverið fimmtán uppáhaldsmyndir dómnefndarinnar hingað til. Hinar kostulegu myndir voru teknar víðsvegar um heiminn og sýna villt dýr í skemmtilegu ljósi.

Stjörnulífið: Gleðigangan, gosið og grín
Gleðigangan fyllti samfélagsmiðla af ást, gleði og fjölbreytileika um helgina. Gosið sýndi sínar bestu hliðar og virtust margir leggja leið sína að því þrátt fyrir orð Víðis um að æða ekki upp á fjall. Grínið var líka áberandi þar sem Ari Eldjárn fór aftur af stað með uppistandið sitt í Edinborg og einnig fjölgaði í grínistum landsins.

Rödd Línunnar og Pingu látin
Carlo Bonomi, sem hefur í áratugi verið tíður gestur á skjám landsmanna, er látinn 85 ára að aldri. Hann gerði garðinn frægan með túlkun sinni á persónunni Línunni í samnefndum sjónvarpsþáttum. Seinna túlkaði hann mörgæsina Pingu sem glatt hefur börn sem fullorðna um árabil.

„Bless í bili“
Tónlistarmennirnir Kristinn Óli Haraldsson og Jóhannes Damian Patreksson, einnig þekktir sem Króli og JóiPé ætla að gera upp síðustu sex árin á lokatónleikum sínum saman, í bili. Þeir verða þó ekki einir á sviðinu en Sinfóníuhljómsveit Norðurlands ætlar einnig að spila með þeim.

Tinnabk og Gói Sportrönd eignuðust dóttur
Tinna Björk Kristinsdóttir og Ingólfur Grétarsson, betur þekkt sem Tinnabk og Gói Sportrönd, eru orðin fimm manna fjölskylda eftir að hafa tekið á móti dóttur sinni. „Þarf alltaf að vera grín?“ gaf út þátt daginn áður en daman mætti í heiminn.

Giftu sig degi of snemma
Þýsku hjónin Julija og Michael Domaschke voru gefin saman við Skógafoss á þriðjudaginn í síðustu viku. Hjónin trúlofuðu sig einnig hér á landi og fór Michael á skeljarnar við eldgosið í Fagradalsfjalli í júlí á síðasta ári en þau eru bæði mjög áhugasöm um eldgos og eldfjöll. Daginn eftir að þau giftu sig hóf að gjósa í Meradölum.

Steindi í vandræðum með avókadóið: Æsispennandi lokaþáttur af Ísskápastríði
Æsispennandi lokaþáttur af Ísskápastríði fer fram klukkan 18.50 í kvöld. Til leiks mæta Steindi Jr. og Siggi Gunnars.

Khloé Kardashian sögð orðin tveggja barna móðir
Khloé Kardashian er sögð vera orðin tveggja barna móðir, en bæði börnin sín á hún með NBA leikmanninum Tristan Thompson.

Emmsjé Gauti og Jovana gengin í það heilaga
Gauti Þeyr Másson og Jovana Schally giftu sig við hátíðlega athöfn í Fríkirkjunni í Reykjavík í dag. Parið trúlofaði sig árið 2019.

Anne Heche í lífshættu eftir bílslys
Leikkonan Anne Heche er lífshættulega slösuð eftir bílslys sem átti sér stað í Los Angeles í gær. Að sögn vitna ók leikkonan bifreið sinni á miklum hraða, þar til að bifreiðin lenti utan vegar og hafnaði á íbúðarhúsi.

„Ég gef ekki ráð“
Bjarni Snæbjörnsson er lífskúnstner mikill en hann hefur sem dæmi vakið athygli fyrir söngleik sinn Góðan daginn faggi ásamt því að syngja Pride lagið í ár, Næs. Fyrir Bjarna er sannleikurinn mesti innblásturinn og hann elskar að læra eitthvað nýtt um sjálfan sig. Bjarni á enga hefðbundna daga og elskar hreyfingu, hollan og góðan mat og hugleiðslu. Bjarni Snæbjörnsson er viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum.

Kim Kardashian og Pete Davidson hætt saman
Fregnir vestanhafs herma að Kim Kardashian og Pete Davidson séu hætt saman og hafi tekið ákvörðun um að vera bara vinir.

Hataðasti maðurinn á netinu: „Ég skulda engum neitt“
Netflix gaf nýlega út heimildarþættina „Most Hated Man on the Internet“ eða „Hataðasti Maðurinn á Veraldarvefnum“ þar sem farið er yfir sögu Hunter Moore sem varð frægur á sínum tíma fyrir að stofna vefsíðuna IsAnyoneUp.com sem birti hefndarklám en nú hefur hann tjáð sig um málið.

„Þetta hefur verið eitthvað flipp“
Myndband af lögreglumönnum á rafskútum hefur fengið mikla dreifingu á netinu í dag. Margir hefðu kannski haldið að um nýjan fararskjóta lögreglunnar sé að ræða en svo virðist ekki vera.

Síðasta ferð sumarsins
Um helgina fer Bylgjulestin í sína síðustu ferð þetta sumarið og verður í Þorlákshöfn á hátíðinni Hamingjan við hafið laugardaginn 6.ágúst. Frá því í júní hefur Bylgjulestin komið við í öllum landshlutum Íslands með gleði og tónlist fyrir landsmenn.

„Draumur sem ég gerði að plani“
Tónlistarmaðurinn Doctor Victor er þúsundþjalasmiður, hann starfar sem læknir á daginn og fer svo og þeytir skífum og vinnur að tónlist utan þess. Hann segist hafa fengið „aha“ augnablik á fyrsta dj gigginu sínu í Slóvakíu, þar sem hann var í læknisnámi og í framhaldinu ákveðið að elta báða draumana.

Fær loksins lík eiginmannsins afhent
Drífa Björk Linnet Kristjánsdóttir tilkynnti í myndbandi á Instagram að loksins fái fjölskyldan lík Haralds Loga Hrafnkelssonar til sín eftir að hann lést í eldsvoða á Spáni þann 6. febrúar fyrr á þessu ári. Drífa hefur barist fyrir því að fá lík eiginmannsins afhent síðan hann féll frá.

„Góð gen og fullt af peningum“
Leikkonan Jane Fonda segist ekki vera stolt af því að hafa farið í andlitslyftingu en segir peninga og góð gen ástæðu þess að hún sé talin eldast vel í viðtali við Vogue. Hún vill hvetja alla til þess að lifa lífinu sama hversu gamlir þeir eru. Sjálf er hún tæplega áttatíu og fimm ára og í fullu fjöri.

„Fávitavarpið“ endurvakið í Meradölum
Íslenskur Facebook-hópur sem gekk út á að birta myndir af fólki sem tróð sér inn í beinar vefútsendingar frá eldgosinu í Fagradalsfjalli á síðasta ári hefur verið endurvakinn, nú þegar gos er hafið á Reykjanesskaga að nýju, nánar til tekið í Meradölum.

„Það er mikilvægt að halda honum gangandi“
Einar Þorsteinsson og Milla Ósk Magnúsdóttir ætla að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu í ár í nafni Þórhöllu Arnardóttur og Örvars Arnarsonar. Hún féll nýlega frá eftir baráttu við brjóstakrabbamein en sjálf ætlaði hún að taka þátt til að styrktar Minningarsjóðs Örvars, litla bróður síns sem lést í fallhlífarstökkslysi þegar hann reyndi að bjarga nemanda sínum.

Eiga von á regnbogabarni
Hjónin Chrissy Teigen og John Legend eiga von á regnbogabarni sem hún tilkynnti um í færslu á Instagram. Chrissy segist vera stressuð á meðgöngunni en tæp tvö ár eru liðin síðan þau misstu son sinn Jack á miðri meðgöngu.

Kristján Már fjarri góðu gamni og missir af gosinu
Kristján Már Unnarsson, fréttamaður Stöðvar 2, er reyndasti fréttamaður landsins, þegar kemur að umfjöllun um eldgos og aðrar jarðhræringar.

Grín og alvara í bland vegna eldgossins
Eldgos er hafið á ný og viðbrögð á samfélagsmiðlum í takt við það. Netverjar deila ýmist skoðunum á gosinu sjálfu eða afleiðingum þess á meðan Domino's býður upp á frítt gos í tilefni dagsins.

Ólga vegna nýrrar tónlistar Beyoncé
Beyoncé gaf út plötuna „Renaissance“ nú á dögunum en ekki hafa allir verið sáttir við lög plötunnar. Beyonce hefur neyðst til þess að breyta tveimur lögum á nýju plötunni og hefur Monica Lewinsky nú blandað sér í málið.

Hringferð um landið í leit að næstu stórstjörnu Íslands
Framleiðendur Idolsins eru að fara í hringferð um landið í leit að næstu stórstjörnu Íslands. Prufurnar verða haldnar á Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi og Reykjavík. Það eina sem áhugasamir þurfa að gera er að mæta á svæðið með lag sem þeir vilja syngja og láta ljós sitt skína.

Sigrún Lilja og Reynir eiga von á lítilli gyðju
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir og unnusti hennar Reynir Daði Hallgrímsson eiga von á sínu fyrsta barni saman. Sigrún er oft kennd við hönnunarmerkið Gyðja Collection en einnig rekur hún líkamsmeðferðarstofuna The House of Beauty.

Þegar sextán ára Harry Styles heillaði heimsbyggðina
Harry Styles er í dag einn vinsælasti tónlistarmaður jarðarinnar. Hann er sem stendur á alheimstónleikaferðalagi og er uppselt á alla tónleika Styles

„Mikilvægt að þetta komi allt frá persónulegum og berskjölduðum stað“
Aron Ingi Davíðsson vakti athygli sem einn af eigendum og meðlimum Áttunnar á sínum tíma. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá en Aron flutti meðal annars til Los Angeles til að læra leikstjórn og handritsgerð við New York Film Academy. Nú vinnur hann að því að skrifa þáttaseríu með framleiðslufyrirtækinu ZikZak þar sem Sigurjón Sighvatsson er yfirframleiðandi en um er að ræða unglingaseríu sem kemur inn á ýmis málefni og byggir á persónulegri reynslu. Blaðamaður tók púlsinn á Aroni Inga.