
Menning

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Þú gætir lent í því að fylgja öðrum eftir í dag í stað þess að sýna sjálfur frumkvæði. Kvöldið verður ánægjulegt.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Vertu á verði gagnvart manneskjum sem eru þér ósammála. Þær gætu reynt að beita brögðum.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Vinur þinn eða einhver þér nákominn verður fyrir sérstöku happi í dag. Þú ert mjög upptekinn af þessu og gleðst innilega með.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þú átt skemmtilegan morgun í vændum og munt taka þátt í athyglisverðum umræðum. Vinur þinn segir þér merkilegar fréttir.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Gættu þess að láta ekki yfirgangssama manneskju snúa á þig. Þú hefur átt í töluverðri baráttu undanfarið og verður að standa fast á þínu.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Það verður eitthvað ánægjulegt um að vera hjá fjölskyldunni í dag. Ættingjar þínar hafa mikil áhrif á þig þessa dagana .

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Dagurinn verður fremur viðburðasnauður og þú eyðir honum í ró og næði. Fjölskyldan kemur við sögu seinni hluta dags.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Þú hefur tilhneigingu til að vera of eftirgefanlegur við aðra og sjá svo eftir því sem þú hefur gert. Félagslífið er fjörugt.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Þú ert undir smásjá um þessar mundir og er ekki sama hvernig þú vinnur eða hegðar þér. Frumskógarlögmálið virðist ráða ríkjum.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Þér gæti fundist erfitt að hafa stjórn á atburðarás dagsins og verður kannski að sætta þig við að aðrir hafa stjórnina núna.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Það borgar sig ekki alltaf að vera hjálpsamur og þú ættir að vera spar á að hjálpa þeim sem þú veist ekki hvar þú hefur. Það getur verið að einhver sé að reyna að nota þig.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Vinur þinn segir þér fréttir sem eiga eftir að hafa mikil áhrif á þig á næstunni. Þú hefur mikið að gera í dag. Í kringum þig er fólk sem þú gætir fengið góð ráð hjá.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Hætta er á að þú gleymir einhverju sem þú þarft að muna ef þú gætir ekki að þér. Andrúmsloftið í kringum þig er nokkuð þrúgandi.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Hæfileiki þinn til að vinna með öðrum nýtur sín einstaklega vel í dag og með sameiginlegu átaki tekst að koma miklu í verk.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Misskilningur kemur upp varðandi vináttu þína við einhvern. Þú verður að leiðrétta hann áður en hann snýst upp í deilur.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Gerðu eins og þér finnst réttast í mikilvægu máli sem snertir fyrst og fremst þinn eigin hag. Það er ekki alltaf betra að fara eftir ráðleggingum annarra.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Tilfinningamál verða í brennidepli. Þú skalt halda þig utan við þau ef þau snúa ekki að þér beint. Kvöldið verður ánægjulegt.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Einhver reynir að sverta mannorð þitt með einum eða öðrum hætti þótt þér verði það ekki strax ljóst. Ekki láta troða þér um tær.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þú þarft að bíða eftir öðrum í dag og vinnan þín líður fyrir seinagang annarra. Ekki láta undan þrýstingi í mikilvægum málum.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Ekki er ólíklegt að gamlir vinir líti í heimsókn næstu daga og þið rifjið upp gamlar stundir. Ástarlífið blómstrar og kvöldið lofar góðu.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Þú ert að skipuleggja ferðalag eða einhvern mannfagnað. Þess vegna hefur þú ekki mikinn tíma fyrir sjálfan þig.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Þú verður að gæta tungu þinnar í samskiptum við fólk, sérstaklega þá sem þú telur að séu viðkvæmir fyrir gagnrýni.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Dómgreind þín er nokkuð skert þessa dagana og þú verður að gæta þess að láta ekki tilfinningarnar hlaupa með þig í gönur.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Sjáðu til þess að ungviðið í kringum þig fái andlega næringu. Samkeppni er ríkjandi og einhver af ungu kynslóðinni á um sárt að binda.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Ljúktu við skyldur þínar áður en þú ferð að huga að nýjum hugmyndum sem þú hefur fengið. Heimilislífið verður gott í dag.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þú mátt ekki láta smámisskilning í sambandi við tilfinningamál koma upp á milli þín og vina þinna. Reyndu að leysa úr ágreiningnum.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Þér gengur vel í vinnunni og færð mikla hvatningu. Kvöldið verður rólegt í hópi góðra vina. Þú ert sáttur við allt og alla.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þú verður að vera ákveðinn ef þú ætlar að ná því fram sem þú stefnir að. Annars verður ekki tekið mark á þér. Kvöldið verður notalegt í faðmi fjölskyldunnar.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þó að þú sért ekki alveg viss um að það sem þú ert að gera sé rétt verður það sem þú velur þér til góðs þegar til lengri tíma er litið.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Eitthvað óvænt gerist fyrri hluta dagsins og þú færð um nóg að hugsa. Fjölskyldumálin eru í sérlega góðum farvegi.