
Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Þú hefur unnið vel að undanförnu og ferð nú að njóta árangurs erfiðisins. Ástin er skammt undan.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Stundum getur verið notalegt að vera bara heima og horfa á sjónvarpið með fjölskyldunni.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þú ert undir einhverju álagi sem þú hefur ekki verið undir áður. Þú bregst skjótt við fréttum sem þú færð. Ekki láta neitt uppi um persónulegar áætlanir þínar.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þú þarft að fara varlega í fjármálum og forðast alla óhóflega eyðslu. Þá er líklegt að þú getir látið gamlan draum rætast.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Það kemur upp ágreiningur í vinnunni en hann jafnar sig fljótt og andinn í vinnunni verður betri en nokkru sinni fyrr.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Fjármálin valda þér nokkrum áhyggjum en líkur eru á að þau fari batnandi á næstunni. Þú verður fyrir óvæntu happi í peningamálum.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Þú þarft að vanda þig í samskiptum þínum við erfiða aðila og er samt ekki víst að það dugi til farsælla samskipta. Sumir eru bara svona.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Þér hættir til að eyða of miklu og það mun koma þér í koll. Þú virðst duglegri við að eyða fé en afla um þessar mundir.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Þú ættir að hleypa meiri tilbreytingu inn í líf þitt. Það hefur verið helst til einhæft undanfarið. Hvernig væri að finna sér nýtt áhugamál?

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Þú hefur í mörg horn að líta og átt á hættu að vanrækja einhvern sem þér þykir þó afar vænt um. Vertu heima hjá þér í kvöld og slappaðu af.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Þú verður fyrir sífelldum truflunum í dag og kemst lítið áfram með það sem þú ert að gera. Þú ættir að fara út á lífið í kvöld.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Ástarmálin taka mikið af tíma þínum. Það lítur út fyrir að eitthvert ósætti komi upp en það jafnar sig sennilega fljótt.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þú verður líklega nokkuð óþolinmóður fyrri hluta dags og verður að gæta þess að halda ró þinni. Kvöldið notarðu til að slappa af.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Þó að þetta verði venjulegur dagur á yfirborðinu ríkir mikil eining innan fjölskyldunnar og það veitir þér mikla gleði og ánægju.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Þú verður fyrir einhverju happi á næstunni og munu margir samgleðjast þér innilega. Þú hugar að búferlaflutningum.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Sjálfstraust þitt sem venjulega er í góðu lagi er með minna móti þessa dagana. Taktu fagnandi á móti þeim sem eru vinsamlegir í þinn garð.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þú ert eitthvað eirðarlaus þessa dagana og sjálfum þér ónógur. Hvernig væri að finna sér nýtt áhugamál, úr nógu er að velja.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Það er mikið um að vera í félagslífinu hjá þér um þessar mundir og þér finnst reyndar nóg um. Einhver öfundar þig.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Þú verður að hafa stjórn á örlæti þínu og mátt ekki láta aðra komast upp með að nota sér hjálpsemi þína þannig að það skaði þig.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Gamlar væringar gætu skotið upp kollinum ef farið er að ræða viðkvæm mál. Það væri skynsamlegt að vera ekkert að því.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Gættu þess að vera tillitssamur við ættingja og vini í dag þó að það sé kannski eitthvað sem angrar þig persónulega þessa dagana.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Einhver er ekki sáttur við framkomu þína í sinn garð og er líklegt að þú sért ekki heldur alls kostar ánægður með sjálfan þig. Hafðu frumkvæðið að því að leita sátta.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þér bjóðast skemmtileg tækifæri varðandi félagslífið. Þú ættir að taka þér meiri tíma til að íhuga breytingar.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Kunningi þinn launar þér ríkulega aðstoð sem þú veittir honum er hann þurfti á að halda og þú finnur að hann metur þig mikils. Lífið brosir við þér um þessar mundir.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Þessi dagur verður ekki eins og þú bjóst við þar sem ýmislegt ófyrirséð kemur upp. Áhugi þinn á lögum kemur sér vel.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Búðu þig undir að þurfa að fresta einhverju sem þú hefur lengi beðið eftir. Það er mikið að gera hjá þér og þú hefur lítinn tíma til að slappa af.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Hætta er á að ástvinir lendi upp á kant og þú þarft því að leggja þig fram um að sýna nærgætni og tillitssemi í samskiptum. Taktu það rólega í kvöld.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þú ættir að hugleiða breytingu í starfi þínu. Vinur þinn á í einhverjum erfiðleikum. Þú verður að sýna tillitssemi og nærgætni ef leitað er til þín.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Sjálfstraust þitt er með mesta móti. Þú þarft á öryggi að halda í einkamálunum á næstunni og vinir þínir eru þér mikilvægir.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þú syndir á móti straumnum um þessar mundir og ert fullur af orku og finnst engin vandamál vera þér ofviða. Það er mikið um að vera í vinahópnum og góður andi ríkjandi.