Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þú veist nákvæmlega hvað það er sem þú vilt en aðrir eru eitthvað að reyna að hræra í þér. Haltu þínu striki og þá gengur allt vel.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Það er mikið að gera hjá þér í dag og þú verður að vera fljótur að meta aðstæður svo að þú getir tekið réttar ákvarðanir.

Menning

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)

Ef einhver hegðar sér undarlega í návist þinni skaltu grafast fyrir um ástæðuna áður en þú dæmir manninn. Sannleikurinn kemur þér verulega á óvart.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Þú hefur óþarflega miklar fjárhagsáhyggjur. Fjármálin standa ekki eins illa og þú heldur. Þú ættir að bregða út af vananum.

Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þú átt langt ferðalag fyrir höndum og hlakkar mikið til. Það væri snilldarhugmynd að fara í heimsókn í kvöld. Vikan lofar góðu.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Það lítur út fyrir að einhver sé að tala illa um þig en ef þú hefur öll þín mál á hreinu þarft þú ekkert að óttast. Sennilega stafar þessi óvild eingöngu af öfund.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Eitthvað óvænt kemur upp á í byrjun dagsins og þú sérð fram á að það raski öllum degnum. Það er þó engin ástæða til að örvænta.

Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þú veltir þér einum of mikið upp úr vandamálum þínum eða einhvers þér nákomins. Ef þér tekst að hvíla þig einhvern hluta dagsins gengur allt miklu betur.

Menning

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Einhver biður þig að gera sér greiða, en mundu að þegar allt kemur til alls tekur þú sjálfur ákvörðun um hvort þú hjálpar til.

Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Þó að þú sért búinn að skipuleggja hjá þér næstu daga út í hörgul gætir þú þurft að breyta áætlunum þínum vegna erfiðleika hjá einhverjum í kringum þig.

Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Rómantíkin liggur í loftinu og ef þú ert ekki þegar orðinn ástfanginn muntu líklega verða það næstu daga. Ekki gleyma þó að sinna þínum daglegu skyldum.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Treystu á eðlishvötina í samskiptum þínum við aðra. Fjölskyldan verður þér ofarlega í huga í dag og þú nærð góðu sambandi við þá sem eru þér eldri.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Fólk gæti fengið það á tilfinninguna að þú hafnaðir því ef þú einblínir of mikið á sjálfan þig og fundist sem þú vanræktir það.

Menning

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Ekki er ólíklegt að gamlir vinir líti í heimsókn næstu daga og þið rifjið upp gamlar stundir. Ástarlífið blómstrar og kvöldið lofar góðu.

Menning

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)

Þú hefur minna að gera í dag en þú bjóst við en forðastu að sitja auðum höndum, þú verður því feginn seinna ef þú flýtir fyrir þér og lýkur einhverju í vinnunni.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Gömul vandamál kunna að skjóta upp kollinum. Sá sem reynir að ná sáttum þarf að byrja frá grunni ef hann ætlar að ná árangri.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Vonbrigði þróast yfir í ánægju þegar þú færð fréttir frá vini eða ættingja. Samband þitt við ákveðinn einstakling fer batnandi.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Ef þú hyggur á breytingar í lífi þínu skaltu endilega drífa í þeim núna. Þú ert fullur orku og til í að leggja hart að þér.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Þú færð að heyra gagnrýni varðandi það hvernig þú verð tíma þínum. Þér finnst þú hafa mikið að gera en sumum finnst þér þeir vera vanræktir. Þú íhugar að fara í ferðalag.

Menning