

Þú skalt gæta þess að sinna eigin þörfum en þær virðast hafa setið á hakanum að undanförnu. Þú færð skemmtilegar fréttir í kvöld.
Þú þarft að grafast fyrir um orsakir hegðunar vinar þíns. Þér finnst hann eitthvað undarlegur og það er nauðsynlegt að vita ástæðuna.
Þú skalt ekki gera of miklar kröfur til annarra ef þú ert ekki tilbúinn að gera kröfur til sjálfs þín. Þig hendir óvænt happ.
Þú átt í vændum skemmtilegan morgun þar sem þú tekur þátt í athyglisverðum umræðum. Vinur þinn segir þér merkilegar fréttir.
Vertu bjartsýnn þó útlitið sé svart um þessar mundir. Erfiðleikarnir eru ekki eins miklir og virðist við fyrstu sýn.
Þú færð óljós fyrirmæli frá einhverjum sem hefur ekki beint yfir þér að segja en þér finnst sem þú ættir að fara eftir þeim.
Viðskipti ættu að heppnast vel í dag og núna er tækifæri til að fjárfesta. Farðu þó að öllu með gát.
Þú ert í góðu skapi í dag og færð góðar hugmyndir. Hresstu upp á minnið varðandi ákveðin atriði sem eru að líða þér úr minni.
Það hentar þér vel í dag að ræða málin við fólk sem þekkir þig ekki vel því þar færð þú góð ráð frá hlutlausum aðila.
Einhver er mjög hörundssár í dag og það kemur niður á þér. Einhver misskilningur kann að verða vegna einhvers sem þú segir í hugsunarleysi.
Fólk virðir og hlustar á skoðanir þínar og þér gengur vel í rökræðum. Einhver sýnir þér mikla góðvild í dag.
Gerðu það sem þér finnst réttast í máli sem varðar þig aðallega. Þó er óhjákvæmilegt að þú takir tillit til annarra.
Heimilislífið gefur þér mikið um þessar mundir. Nú er rétti tíminn til að íhuga það sem fram undan er. Eitthvað sem þú lærir núna kemur þér til góðs seinna.
Þú finnur fyrir neikvæðu andrúmslofti í kringum þig og fólk er ekki tilbúið að bjóða fram aðstoð sína. Þú getur helst treyst á þína nánustu.
Þú ert í góðu jafnvægi og ættir að hugleiða mál sem þú hefur veigrað þér við að hugsa um lengi. Þú munt komast að góðri niðurstöðu.
Þú þarft að fara gætilega í sambandi við peningamál en útlit er fyrir að þú hafir ekki eins mikið á milli handanna og þú bjóst við.
Seinkanir valda því að þú ert á eftir áætlun í dag og það kemur sér illa. Hreinskilni borgar sig í dag.
Dagurinn verður rólegur og þú ert í góðu jafnvægi. Svo er ekki um alla í kringum þig en þú skalt ekki láta það hafa mikil áhrif á þig.
Þú umgengst nágranna þína mikið á næstunni og kynnist þeim mun betur. Félagslífið er fyrirferðarmikið.
Fólk lítur mikið upp til þín um þessar mundir og treystir á þig í forystuhlutverkið. Láttu þetta þó ekki stíga þér til höfuðs.
Vertu bjartsýnn varðandi vandamál sem hefur angrað þig. Þú færð lausn þinna mála innan tíðar.
Sýndu samstarfsvilja því þér gengur mun betur að ná settu marki í góðu samstarfi við annað fólk. Fjárhagurinn fer batnandi.
Fjölskyldan er þér ofarlega í huga um þessar mundir og það er af hinu góða. Gættu þess þó að vanrækja ekki vini þína.
Einhver þarfnast hjálpar og leitar til þín. Ef þú sérð þér ekki fært að veita aðstoð ættirðu að minnsta kosti að sýna skilning á aðstæðum.
Fjölskyldumálin eiga hug þinn allan um þessar mundir og er samband á milli ástvina mjög gott. Þú ættir að heimsækja aldraða ættingja þína.
Mikið er um að vera í félagslífinu hjá þér og það mun veita þér mikla ánægju. Þó er hætta á að einhver kostnaður fylgi þessu.
Fjármálin verða þér umhugsunarefni í dag. Þér býðst tækifæri sem krefst þess að þú takir áhættu í peningamálum.
Það er mikið að gera hjá þér um þessar mundir. Þér gengur þó vel með allt sem þú tekur þér fyrir hendur og hefur gaman af því sem þú ert að gera.
Eitthvað óvænt breytir skyndilega öllum áætlunum þínum. Ábyrgð þín eykst. Þetta mun verða góður daga fyrir unga og ástfangna.
Viðskiptin blómstra hjá þér um þessar mundir og það virðist allt verða að peningum í höndunum á þér. Gættu þess þó vel að lesa allt vel yfir áður en þú undirritar eitthvað.