Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Þér lætur best að vinna einn í dag þar sem þér finnst aðrir bara trufla þig. Þú ferð út að skemmta þér með vinum þínum í kvöld.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Þér gengur óvanalega vel að einbeita þér og erfiðu verkefni sem þú hefur tekið að þér miðar vel áfram. Taktu því rólega í kvöld.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Gengi þitt í vinnunni fer óðum batnandi og það er engu líkara en að lánið leiki við þig. Gamall vinur leitar ráða hjá þér.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þér reynist erftitt að fá fólk til að styðja nýstárlegar hugmyndir þínar í sambandi við vinnuna. Kvöldið verður fjörugt.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Þú munt verða undrandi á uppákomu sem fær þig til að vera meira vakandi um lífið í kringum þig og skoða aðra hlið á málunum.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Viðbrögð þín við því sem þér er sagt eru mikilvæg. Vertu ekki of gagnrýninn, það gæti valdið misskilningi.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Margir sýna þér og hugmyndum þínum athygli fyrri hluta dagsins en þú gætir þurft að að sætta þig við að einhver annar tekur við af þér er líða tekur á daginn.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Hætta er á að fólk sé of upptekið af sínum eigin málum til að samskipti gangi vel í dag. Náin sambönd verða fyrir barðinu á þessu.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Þér finnst ef til vill sem fólk ætlist til mikils af þér. Þú hefur í mörg horn að líta og tímaskortur hrjáir þig.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Þér lætur betur að vinna með öðrum en einn í dag. Þú nærð góðum árangri í vinnunni og sjálfstraust þitt eykst til muna.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þú helgar þig fjölskyldunni og átt með henni góðar stundir. Það er mikið sem á eftir að gera á heimilinu og ekki seinna vænna en að byrja verkið.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þetta verður góður dagur með tilliti til vinnunnar. Láttu fjölskyldumál samt ekki sitja á hakanum.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Aðrir hafa mikil áhrif á það sem þú gerir en þú verður að reyna að vera sjálfstæður. Kvöldið verður að einhverju leyti óvenjulegt.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þú hugar að fjármálunum og kemst að einhverju óvæntu. Lifðu í nútíðinni og horfðu ekki of mikið til liðinna tíma.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Nú færð þú tækifæri til þess að kynna þér mál sem þú hefur lengi haft áhuga á. Niðurstaða gæti fengist í mál sem tengist fjölskyldunni.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þér berst óvænt tilboð sem kemur róti á huga þinn. Ef rétt er haldið á málum getur þú hagnast verulega í meira en einum skilningi.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Þín bíður skemmtilegur dagur og þú hefur í nógu að snúast heima fyrir. Ef til vill færðu gesti í kvöld.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Viðbrögð þín við því sem þér er sagt eru mikilvæg. Ekki vera of gagnrýninn, það gæti valdið misskilningi.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Vertu þolinmóður þó að þér finnist vinna annarra ganga of hægt. Það væri góð hugmynd að hitta vini í kvöld.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Einhver hætta virðist á að félagar þínir lendi upp á kant og þú gætir dregist inn í deilur. Gættu þess vel að segja ekkert sem þú gætir séð eftir.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þeir sem eru ólofaðir binda sig trúlega á næstunni eða lenda í alvarlegum ástarævintýrum. Félagslífið er með besta móti.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Sjálfstraust þitt er ekki í hámarki fyrri hluta dagsins en þú verður sjálfsöruggari og ánægðari eftir því sem líður á daginn.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Fremur viðburðalítill dagur en þó berast þér góðar fréttir frá vini. Leggðu þig fram um að halda friðinn á heimilinu.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Dagurinn hentar einkar vel til hópvinnu og þér líður vel innan um margt fólk.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Eitthvað er að vefjast fyrir þér sem ekki sér fyrir endann á á næstunni. Ástfangnir eiga góða daga og kvöldið verður rómantískt.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Þú verður að hafa stjórn á örlæti þínu og mátt ekki láta aðra komast upp með að nota sér hjálpsemi þína þannig að það skaði þig.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Einhver biður þig um að lána sér fjármuni. Það kann að vera allt í lagi ef vel er gengið frá málunum. Fjárhagur þinn fer batnandi.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Einhver biður þig um greiða og þér er ljúft að verða við þeirri bón. Ekki gleyma þó að sinna skylduverkefnum þínum.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Þú kemur miklu í verk í dag. Þú ættir að heimsækja vini þína í kvöld og jafnvel fara út á lífið með þeim.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Þú verður fyrir sífelldum truflunum í dag og átt erfitt með að einbeita þér. Fólk virðist vera upptekið af sjálfu sér.