Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Ef þér finnst þú ekki ráða við erfitt verkefni, sem þú þarft að leysa skaltu ekki hika við að leita eftir aðstoð. Kvöldið verður afar skemmtilegt.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Gamall kunningi skýtur upp kollinum þegar líður á daginn og þið eigið saman mjög skemmtilega stund.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Nú taka svo sannarlega við nýir tímar hjá þér. Þú ert mjög opinn fyrir nýjum hugmyndum og tilbúinn að tileinka þér nýja siði og venjur.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Dagurinn byrjar vel og þú verður vitni að einhverri skemmtilegri uppákomu fyrri hluta dagsins. Farðu þér hægt í viðskiptum.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Þú þarft að taka sjálfum þér tak varðandi tiltekt á heimilinu. Þar hefur ýmislegt drabbast niður undanfarið. Það er þó ekki eins mikið mál og þú heldur.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Viðskipti ættu að heppnast vel í dag og núna er tækifæri til að fjárfesta. Farðu þó að öllu með gát.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Skortur á sjálfstrausti er þér fjötur um fót í sambandi við gott tækifæri sem þér býðst. Íhugaðu málið vel áður en þú tekur ákvörðun um hvað gera skal.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Einhver breyting verður á sambandi þínu við ákveðna manneskju. Haltu gagnrýni fyrir sjálfan þig þar sem fólk gæti tekið hana óþarflega nærri sér.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Vinnan gengur vel í dag og þú færð hrós fyrir vel unnið starf. Kvöldið verður líflegt og þú átt ef til vill von á gestum.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Fólk treystir á þig og leitar ráða hjá þér um hugmyndir og útfærslu þeirra. Þú þarft að sýna skilning og þolinmæði.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Það verður mikið um að vera í dag og þú mátt búast við að eitthvað sem þú ert að gera taki lengri tíma en þú ætlaðir.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Einhver færir þér áhugaverðar fréttir og þær eru jafnvel enn mikilvægari en þú heldur. Taktu það rólega í dag.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Reyndu að gera þér grein fyrir því hvað þú vilt gera í lífinu. Það er tími til kominn að þú setjist niður og veltir fyrir þér málunum.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Fjölskyldan hefur í mörgu að snúast og þú skalt athuga að vinur gæti þarfnast þín. Eitthvert happ bíður þín í fjármálum.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Rómantíkin gerir vart við sig. Giftir eiga góðar stundir saman. Ekki er rétt að vera með allt of mikla stjórnsemi.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Ekki taka nærri þér þó að einhver sé með rellu í þinn garð. Það er hans vandamál en ekki þitt.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Þú færð þér nýtt áhugamál og það á eftir að gefa lífi þínu nýtt gildi. Þú kynnist áhugaverðri persónu í sambandi við þetta nýja áhugamál.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Það ríkir einhver óvissa í dag og hegðun ákveðins einstaklings hefur í för með sér vandræði. Úr því leysist þó skjótt.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Þú nýtur góðs af hæfileikum þínum á ákveðnu sviði í dag. Fólk kann vel að meta ákveðni þína í vinnunni.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Morgunninn verður rólegur og notalegur og þér gefst tími til að hugsa málin þar til eitthvað óvænt og ánægjulegt gerist sem breytir deginum.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Peningamálin eru ofarlega á baugi og þú þarft að fara vandlega í gegnum málin áður en þú tekur einhverjar ákvarðanir. Rómantíkin blómstrar.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Þér finnst tími til kominn að breyta til í félagslífinu og gerðir kannski rétt í að finna þér nýtt tómstundagaman. Kvöldið verður spennandi.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Ef þú hyggur á fjárfestingu skaltu fara rólega í sakirnar og vera viss um að allir séu heiðarlegir. Rómantíkin liggur í loftinu.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Hópvinna skilar ekki þeim árangri sem þú vonaðist eftir og þú áorkar sennilega meiru ef þú vinnur einn. Varastu að vera með óþarfa stjórnsemi.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Hætta er á misklíð milli vina. Ef þú átt einhverja sök ertu maður að meiri ef þú viðurkennir það og biðst afsökunar.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Þú lendir í tímahraki fyrri hluta dagsins og það gengur illa að ljúka því sem þú ætlaðir þér. Þetta vesen mun þó alls ekki skemma fyrir þér kvöldið.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þú þyrftir að fara gætilega í sambandi við peningamál. Útlit er fyrir að þú munir ekki hafa eins mikið á milli handanna og þú bjóst við.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Fyrri hluti dagsins einkennist af tilfinningamálum, aðallega í sambandi við vandamál annarra. Þú verður líklega orðinn þreyttur í kvöld og ættir að slappa af.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Einhver er í vafa um að það sem þú ert að gera sé rétt. Þú skalt hlusta á það sem aðrir hafa að segja en endanlega ákvörðunin verður þó að vera þín.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Þú uppgötvar að einhver sem þú hefur talið vin þinn er ekki allur sem hann er séður. Ekki gera þig sekan um söguburð. Forðastu alla uppgerð.