
Menning

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Það hefur verið mikið að gera hjá þér undanfarið og nú er kominn tími til að hlaða batteríin.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Greinilegt er að þú ert á réttri leið varðandi stefnu sem þú tókst fyrir nokkru. Von bráðar ferðu að sjá árangur erfiðis þíns.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Fjölskyldan er þér efst í hugsa í dag svo og fréttir sem þú færð einhvers staðar að . Það reynist þér auðvelt að fá aðstoð við verk þín.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Þú átt gott með að fá fólk til að hjálpa þér í dag en vélar láta ekki eins vel að stjórn. Veldu góðan félagsskap.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Það er búið að vera mikið að gera hjá þér undanfarna daga og nú átt þú skilið góða hvíld. Kvöldið verður ánægjulegt og eftirminnilegt.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Einhver heldur einhverju leyndu fyrir þér. Ekki vera óþolinmóður, þú munt komast að sannleikanum fyrr eða síðar.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Það lítur út fyrir að þú guggnir á að framkvæma verk sem þú varst búinn að ákveða að gera. Reyndu að vera svolítið harðari við sjálfan þig.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Gerðu eins og þér finnst réttast. Núna er ekki rétt að hlusta of mikið á aðra, þú ert það viss í þinni sök. Kvöldið verður skemmtilegt.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Eitthvað virkar letjandi á þig þannig að þú sinnir ekki ákveðnu máli. Á næstunni færð þú hins vegar ný og mjög áhugaverð verkefni að fást við.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Það kemur sér vel að nota skynsemina í samskiptum við hitt kynið. Ekki treysta um of á hjálp sem þér hefur verið lofað.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Einhver spenna liggur í loftinu. Þú verður fyrir óvæntu happi í fjármálum og allt virðist ganga upp hjá þér.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Dagurinn verður ánægjulegur og þú nýtur þín vel meðal vina þinna. Þú kynnist einhverju nýju í dag sem á eftir að hafa nokkur áhrif á þig.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Niðurstaða fæst í dag eða næstu daga í máli sem hefur lengi beðið úrlausnar. Útkoman verður þér mikill léttir.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Búðu þig undir að þurfa að fresta einhverju sem þú hefur lengi beðið eftir. Það er mikið að gera hjá þér og þú hefur lítinn tíma til að slappa af.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Eitthvað veldur miklum ruglingi og ef til vill deilum innan vinahóps. Fortíðin leikur þarna stórt hlutverk. Það verður þitt hlutverk að reyna að stilla til friðar.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þú gætir séð eftir einhverju sem þú gerir í fljótræði, sérstaklega varðandi viðskipti. Gefðu þér tíma áður en þú tekur ákvörðun.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Ekki taka það nærri þér þó að einhver sé með leiðindi við þig. Framkoma hans ætti ekki að skipa þig neinu máli. Þú ættir að heimsækja góða vini þína.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Félagslífið tekur einhverjum breytingum. Þú fæðr nýjar hugmyndir og það gæti verið upphafið að breytingum.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Gefðu engar upplýsingar um einkalíf þitt nema það sé nauðsynlegt. Það eru ekki allir viðhlæjendur vinir.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Mikil gleði ríkir í kringum þig. Einhver hefur náð verulega góðum árangri og ástæða þykir til að gleðjast yfir því á einhvern hátt.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Dagurinn gæti orðið annasamur, einkum ef þú skipuleggur þig ekki nógu vel. Farðu varlega í viðskiptum.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Það gengur ekki allt upp sem þú tekur þér fyrir hendur í dag. Taktu gagnrýni ekki nærri þér.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Eitthvað er að vefjast fyrir þér sem ekki sér fyrir endann á á næstunni. Ástfangnir eiga góða daga og kvöldið verður rómantískt.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Ástarlífið blómstrar um þessar mundir. Kvöldið verður fjörugt og þú verður hrókur alls fagnaðar.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Líttu vel í kringum þig. Náinn vinur á í vanda og gæti þegið aðstoð þína.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þú ert fremur eirðarlaus þessa dagana og þér gengur erfiðlega að festa hugann við það sem þú ert að gera.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Þú ættir að fara eftir innsæi þínu fremur en ráðleggingum annarra. Þú átt von á óvæntum glaðningi sem mun gera þig afar glaðan.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Það verður ekki auðvelt að fá fólk til að taka þátt í ákveðnu verkefni en þú skalt vera þolinmóður. Þú ættir að gera eitthvað skemmtilegt í kvöld.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þú veltir þér einum of mikið upp úr vandamálum þínum eða einhvers þér nákomins. Ef þér tekst að njóta hvíldar einhvern hluta dagsins gengur allt betur.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Þú ert fremur viðkvæmur í dag og lætur tilfinningarnar hlaupa með þig í gönur. Félagslífið mun taka miklum breytingum á næstunni.