

Nýttu þér þau tækifæri sem bjóðast til að ná fram niðurstöðu með rökræðum við þá sem ráða. Ef þú ert á ferðalagi skaltu búast við töfum.
Það er heillavænlegast fyrir þig að vera sem mest einn í dag. Ef þú gefur kost á þér til félagsstarfa er líklegt að þú munir á endanum ekki hafa tíma til neins annars.
Það kemur þér á óvart að fólk hlustar óvenjulega vel á ráð þín og vill heyra hugmyndir þínar. Láttu það þó ekki stíga þér til höfuðs.
Dagurinn verður heldur viðburðalítill og þú ættir að einbeita þér að vinnunni fyrri hluta dagsins. Hittu vini þína eða ættingja í kvöld.
Vinir þínir koma þér á óvart á einhvern hátt og þú hefur í nógu að snúast í sambandi við félagslíf fyrri hluta dagsins.
Þú færð einhverja ósk þína uppfyllta í dag. Ekki er um neitt stórvægilegt að ræða en þú gleðst samt sem áður mikið yfir því.
Nú snýst allt um ferðalag sem er í bígerð. Þar munt þú kynnast nýju fólki. Vinátta breytist í eitthvað meira.
Eitthvað sem gerist í dag fær þig til að stansa og hugsa þinn gang. Þú gætir séð ýmislegt í nýju ljósi og áttað þig betur á aðstæðum þínum.
Félagslífið tekur einhverjum breytingum. Þú færð nýjar hugmyndir og það gæti verið upphafið að breytingum.
Í kringum þig er mikið af óþolinmóðu fólki sem ætlast til mikils af þér. Þú gætir átt ferðalag í vændum.
Félagslífið er með miklum blóma um þessar mundir og rómantíkin liggur í loftinu. Þú átt skemmtilegt kvöld fram undan.
Þú hugar að sumarfríi þínu og þar er um marga kosti að velja. Þú þarft að sinna öldruðum og sjúkum og það tekur töluverðan tíma.
Einhver ruglingur eða seinkun á sér stað, einkanlega hjá þeim sem eru að flakka á milli staða. Það kemur þó ekki að sök og dagurinn mun verða mjög ánægjulegur.
Fjármálin standa vel og þér gengur vel í viðskiptum. Gættu þess þó að rasa ekki um ráð fram.
Atriði sem þú hefur ekki beina stjórn á hefur meiri áhrif á þig en þau sem þú stjórnar sjálfur.
Þetta verður óvenjulegur dagur hjá þér og hefðbundin störf víkja fyrir óvenjulegum. Þú tekur á þig aukna ábyrgð.
Þú færð fréttir sem gera að verkum að þú verður að breyta áætlunum þínum lítillega. Það er þó ekkert sem kemur að sök.
Þú færð fréttir sem gleðja þig mjög. Þú ert bjartsýnn og fullur áhuga á því sem þú ert að gera.
Ástarmálin taka mikið af tíma þínum. Það lítur út fyrir að eitthvert ósætti komi upp en það jafnar sig sennilega fljótt.
Deilur í fjölskyldunni hafa mikil áhrif á þig. Deilurnar eru þó ekki eins alvarlegar og á horfðist og í kvöld verður allt fallið í ljúfa löð.
Fólk er ekki sérlega samvinnuþýtt í kringum þig. Með lagni getur þú þó náð því fram sem þú vilt.
Eitthvað sem þú hefur lagt mikið á þig fyrir er ekki líklegt til að skila þeim árangri sem þú væntir. Best væri að byrja alveg upp á nýtt.
Vinur þinn á í einhverjum erfiðleikum og þú verður að sýna honum nærgætni og tillitssemi. Þú ættir að gera eitthvað skemmtilegt í kvöld.
Það er von á einhverjum breytingum á næstunni. Fyrst í stað ertu ekki alveg sáttur við breytinguna en þú munt fljótt sjá að hún var til góðs.
Hópvinna skilar ánægjulegum árangri. Eitthvað sem þú lest gefur þér hugmynd um nýja tómstundaiðju.
Það verður erfitt hjá þér að finna tíma til að slaka á og hugsa um einkamál í dag þar sem vinnan og félagarnir munu krefjast mikils af tíma þínum.
Vertu hreinskilinn við vini þína og fjölskyldu og athugaði að einhver er viðkvæmur fyrir gagnrýni frá þér.
Það er von á einhverjum breytingum á næstunni. Fyrst í stað ertu ekki alveg sáttur við breytinguna en þú munt fljótt sjá að hún var til góðs.
Vinur þinn endurgeldur þér gamla skuld sem þú varst nærri því búinn að gleyma. Heimilisstörf taka mikið af tíma þínum.
Vinátta kemur sér vel núna og hjálpar þér að skilja ýmislegt. Ef þú hyggur á ferðalag skaltu vera viss um að allt sé vel undirbúið.