Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Eitthvað kemur þér á óvart og það gæti haft í för með sér einhverja spennu eða ævintýri. Kvöldið verður skemmtilegt.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Þér verður mest úr verki um morguninn, sérstaklega ef þú ert að fást við vandasamt verkefni. Seinni hluti dagsins verður rólegur.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Þú þarft að fara í ferðalag mjög skyndilega eða taka ákvörðun án þess að hafa tíma til íhugunar. Þú munt ekki sjá eftir neinu sem þú gerir.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Þú verður að gæta tungu þinnar í samskiptum vi ð fólk, sérstaklega þá sem þú telur að séu viðkvæmir fyrir gagnrýni.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Gættu þess að vera tillitssamur við ættingja og vini í dag þó það sé kannski eitthvað sem angrar þig persónulega þessa dagana.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Utanaðkokmandi aðstæður gætu haft áhrif á umhverfi þitt um þessar mundir og þú ættir ekki að treysta á eðlisávísun þína.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Vinur þinn kemur í heimsókn til þín í dag og þið eigið saman gott og þarft spjall. Heimilslífið verður að einhverju leyti óvenjulegt og einstaklega skemmtilegt.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Gamall draumur virðist vera um það bil að rætast hjá þér og þú nýtur þess sannarlega. Gefðu þér tíma fyrir vini þína.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Dagurinn verður fremur rólegur og málin virðast leysast af sjálfu sér. Þú skalt samt ekki treysta því að þú þurfir ekkert að hafa fyrir hlutunum.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Fréttir sem þú færð eru ákaflega ánægjulegar fyrir þig og þína nánustu. Hætta er á smávægilegum deilum seinni hluta dagsins.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Það eru spennandi tímar fram undan hjá þér og þú kynnist nýju og skemmtilegu fólki. Fjölskyldan gerir eitthvað skemmtilegt saman.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Ekki vera of fljótur að dæma fólk og felldu allan vafa um ágæti einhvers honum í hag. Kvöldið verður rólegt.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Persónuleg mál eru ekki eins auðveld viðfangs og þú vonaðist eftir en það er undir sjálfum þér komið hvort þú gerir þau að stórmáli.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Samband þitt við vini þína er gott um þessar mundir og þú nýtur virðingar meðal þeirra sem þú umgengst.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Þú ættir að gæta hófs í mat og drykk, þér hættir til að fara of geyst í þeim efnum. Fjármálin þarfnast aðgæslu.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Taktu deginum rólega, einkum fyrri hluta dagsins. Þú færð óvænt skilaboð í kvöld. Taktu fjármálin til endurskoðunar.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Eitthvað sem þú hefur lagt mikið á þig fyrir er ekki líklegt að skila þeim árangri sem þú vonaðist eftir. Best væri að byrja alveg upp á nýtt.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Lífið virðist brosa við þér þessa dagana og um að gera að njóta þess. Viðskiptin ganga afar vel og nú er rétti tíminn til að fjárfesta.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Þú ert orðinn þreyttur á venjubundnum verkefnum og ert fremur eirðarlaus. Þú ættir að breyta til.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Ef þér finnst þú ekki ráða við erfitt verkefni sem þú þarft að leysa skaltu ekki hika við að leita eftir aðstoð. Kvöldið verður afar skemmtilegt.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Þú nýtur góðs af hæfileikum þínum á ákveðnu sviði í dag. Fólk kann vel að meta ákveðni þína í vinnunni. Kvöldið verður ánægjulegt.Rómantíkin liggur í loftinu en þú verður að vera á verði.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Ljúktu við það sem þú þarft nauðsynlega að gera svo að þú hafir tíma fyrir skemmtanir og það sem gæti komið upp fyrirvaralaust.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Þú ert þrjóskur og óþolinmóður núna og ef þú ert ekki tilbúinn að hlusta á aðra er hætta á árekstrum. Kvöldið verður skemmtilegt.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Greiðvikni vinnufélaga þíns hefur góð áhrif á andrúmsloftið á vinnustað þínum. Þú tekur frumkvæði í vandamáli sem kemur upp heima fyrir.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Þér verður vel tekið af fólki sem þér er ókunnugt og þú færð óvænt hrós. Áhyggjur sem þú hefur eru ástæðulausar.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Þú þarft að halda fast um pyngjuna og ekki lána peninga nema tryggt sé að þú fáir þá til baka. Félagslífið er líflegt.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Einhver reynir að sverta mannorð þitt með einum eða öðrum hætti þótt þér verði það ekki strax ljóst.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Það verður erfitt hjá þér að finna tíma til að slaka á og hugsa um einkamál í dag þar sem vinnan og félagarnir munu krefjast mikils af tíma þínum.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þú átt skemmtilegan dag í vændum. Félagslífið er með besta móti en þú skalt fara varlega í fjármálum.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Miklar breytingar eru fyrirsjáanlegar hjá þér. Þú þarft þó ekki að kvíða þeim því að þær eru allar á jákvæðu nótunum.