
Menning

Útgefandi Forlagsins bað blaðamanninn afsökunar
Friðrika Benónýsdóttir, blaðamaður á Fréttatímanum, hefur fengið afsökunarbeiðni í tölvupósti frá útgefanda Forlagsins, Jóhanni Páli Valdimarssyni.

Einn reyndasti menningarblaðamaður landsins blekktur
Rithöfundur bókarinnar Lausnin, Eva Magnúsdóttir, skrifar undir dulnefni samkvæmt skráningu bókarinnar í bókasafnskerfinu Gegni.

Tækifæriskvæði
Þórunn Sigurðardóttir sagnfræðingur flytur hádegisfyrirlestur sem nefnist Tækifæriskvæði sem heimildir um konur á árnýöld.

Þetta er einfaldlega húsið sem allir eru að tala um
Á sunnudags- og mánudagskvöldið verða tónleikar í Hörpu með Philharmonia Orchestra en fyrir 30 árum átti stuðningur hljómsveitarinnar stóran þátt í að ráðist var í að byggja tónlistarhús á Íslandi.

Hlustaðu á frábæran flutning Víkings Heiðars á Tchaikovsky fyrsta í Belfast
Píanistinn Víkingur Heiðar Ólafsson fór á kostum ásamt Ulster sinfóníuhljómsveitinni í Ulster á Norður-Írlandi í gærkvöldi.

Saman drepum við fegurðina og leitum að sannleikanum
Borgarleikhúsið frumsýnir í kvöld Mávinn eftir Anton Tsjekhov, eitt merkasta leikskáld allra tíma, í leikstjórn Yana Ross.

Túristar farnir að bjóða í verk gömlu meistaranna
Dýrasta málverkið á uppboði á mánudag metið á allt að þrjár milljónir.

Frá Íslandi út í geim og aftur heim
Á morgun kl. 18 verður opnuð í Ásmundarsafni sýningin Geimþrá. Þar er að finna verk fjögurra íslenskra listamanna sem áttu það sameiginlegt að skoða alheiminn með einum eða öðrum hætti í list sinni.

„Við söngvararnir hlæjum og skemmtum okkur konunglega allan daginn“
Hin vel þekkta gamanópera Rossinis Rakarinn frá Sevilla er haustverkefni Íslensku óperunnar í ár og verður frumsýning næsta laugardag í Eldborg Hörpu.

"Gítarinn hefur oft bókstaflega bjargað lífi mínu“
KK frumflytur einleikinn Vegbúar á Litla sviði Borgarleikhússins og með í för eru gítararnir hans níu sem allir hafa merkar sögur að segja sem KK og Jón Gunnar Þórðarson draga saman fram í dagsljósið.

„Það er vandi að lifa en ég er sátt“
Jenna Jensdóttir rithöfundur hefur auðgað líf íslenskra barna svo um munar með bókum sínum. Þar ber sögurnar um Öddu hæst. Hátíðardagskrá til heiðurs Jennu verður á sunnudaginn í Félagsheimili Seltjarnarness.

Kíkti oft á sigurskeytið
Arftakinn eftir Ragnheiði Eyjólfsdóttur arkitekt hlaut í gær íslensku barnabókaverðlaunin 2015. Að mati dómnefndar jafnast sagan á við bestu furðusögur íslenskar.

Skrifaði handritið í sköpunarleiðslu
Hanna Ágústa Olgeirsdóttir sigraði í handritakeppni sem haldin var af leikfélagi Menntaskólans við Hamrahlíð. Leikritið Míkró verður frumsýnt í Undirheimum kvöld en Hanna leikstýrir jafnramt verkinu.

Ragnar Helgi hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri veitti verðlaunin í Höfða í dag.

Ragnheiður Eyjólfsdóttir hlýtur Barnabókaverðlaunin
Ragnheiður Eyjólfsdóttir, arkitekt og rithöfundur, hlaut í morgun Íslensku barnabókaverðlaunin 2015 fyrir skáldsögu sína Skuggasaga – Arftakinn.

Umskiptin með ólíkindum
Næstu tónleikar í tónleikaröðinni Klassík í Vatnsmýrinni verða haldnir miðvikudaginn 14. október kl. 20 í Norræna húsinu.

Fjóla mætir í Sagnakaffi
Sagnakaffi er nýleg viðburðaröð í Gerðubergi á miðvikudagskvöldum. Þar eru sagðar sögur í tali, tónum, takti, ljóðum og leik.

Sýna í Tallinn
Hópur íslenskra myndlistarmanna sýnir í samtímalistasafninu í Tallin í Eistlandi.

Áleitinn, kraftmikill og jafnvel lágstemmdur djass
Kvartettinn Q56 kemur fram á djasskvöldi á Kexi Hosteli á Skúlagötu 28 í kvöld, þriðjudaginn 13. október.

Minnisvarði um illvirki
Skilti um víg verður afhjúpað í Ögri í dag. Tilefnið er að 400 ár eru frá því sýslumaðurinn Ari í Ögri safnaði saman liði til að vinna á átján baskneskum hvalveiðimönnum.

Frelsi til að njóta og miðla tónlistar
Næstkomandi sunnudag kl. 20 efna vinir Helgu með aðstoð starfsfólks Sinfóníuhljómsveitar Íslands til styrktartónleika í Hörpu.

Ég veit ekki hvort var á undan, eggið eða hænan
Sigurður Árni Sigurðsson myndlistarmaður opnar í dag þriðju einkasýningu sína á aðeins einu ári. Sýningin VARP verður opnuð í Hverfisgallerí en hinar voru báðar í Frakklandi.

Þúsund vitnisburðir klipptir í eina áhrifaríka heild
Sænska Nóbelsnefndin tilkynnti í gær að rithöfundurinn Svetlana Alexievich frá Hvíta-Rússlandi hlyti Nóbelsverðlaunin í ár. Alexievich var gestur Bókmenntahátíðarinnar í Reykjavík árið 2013.

Orð, tónlist og líkamleg tjáning í Hafnarborg
Kristín Þóra Haraldsdóttir, víóluleikari og tónskáld, flytur nýja útfærslu tónleikhúsverksins Orðin eftir Þórunni Grétu Sigurðardóttur tónskáld í Hafnarborg á sunnudaginn, 11. október.

Heimkoman er hlaðin spennu
Þjóðleikhúsið frumsýnir Heimkomuna eftir breska nóbelsverðlaunaskáldið Harold Pinter á laugardaginn. Ingvar E. Sigurðsson er þar í stóru hlutverki.

Haust í hádeginu Akureyri
Haustsýningar voru lengi fastur liður í sýningarhaldi bæði hér á landi og erlendis og lifa víða góðu lífi enn.

Suðrænt og seiðandi
Tónleikar verða í Fríkirkjunni við Tjörnina í hádeginu á morgun.

Náttúran er mér í senn hvatning, efniviður og mótíf
Á sýningu sem Heidi Strand myndlistarkona opnar í Norræna húsinu annað kvöld eru öll verkin úr ull.

Speglar, þvottar, ástir og ölvun
Ný bókmenntamerking til heiðurs Svövu Jakobsdóttur verður afhjúpuð í kvöld við Alþingishúsið og síðan arkað af stað.

Tortelier ráðinn nýr aðalhljómsveitarstjóri Sinfó
Yan Pascal Tortelier tekur við stöðunni í byrjun starfsársins 2016-17.