
Skoðun

Dýravelferðarmartröð af áður óþekktri stærð
Nú er komið fram á Alþingi frumvarp sem var unnið á vakt Svandísar Svavarsdóttur og Katrínar Jakobsdóttur þegar hún sinnti störfum matvælaráðherra í um þrjá mánuði á þessu ári. Við vorum mörg sem bundum vonir við að tekið yrði fast á sjókvíeldisfyrirtækjunum í þessu frumvarpi.

Uppskera að vori
HönnunarMars er einn af skemmtilegustu og kröftugustu vorboðum hvers árs. Hvort sem honum er fagnað í mars, apríl eða maí – íslenska vorið getur líka komið hvenær sem er. Á HönnunarMars gefst tækifæri til að hrífast og upplifa frábæra íslenska hönnun, fræðast um spennandi stefnur og strauma og eiga frjótt samtal um framtíðina.

Er menning stórmál?
Það er mikið ánægjuefni að geta á ársfundi Hörpu í dag horft yfir nýliðið starfsár og séð að enn á ný hafa metnaðarfull framtíðaráform um Hörpu á heimsmælikvarða gengið eftir.

Það vantar vanan og áreiðanlegan mann í verkið
Undanfarin ár hafa erlendar valdastofnanir í sífellt ríkari mæli seilst til áhrifa á Íslandi. Áhrifin eru nú þegar víðtæk á löggjöf og það er deginum ljósara að hagsmunir annarra en þeirra sem í landinu búa stjórna þar mestu.

Leikskólamál eru forgangsmál
Leikskólastigið, sem er hið fyrsta skólastig samkvæmt lögum, er oft í umræðunni vegna skorts á leikskólaplássum og mönnunarvanda. Minna fer fyrir umræðu um það faglega og framúrskarandi starf sem þar fer fram og þar er sannarlega af nógu að taka þrátt fyrir fyrrnefnda annmarka og í raun ótrúlegt að svo sé. Það má þakka gríðarlegri seiglu og dugnaði starfsfólks leikskóla um land allt.

Himinhátt innanlandsflug
Í samtölum mínum við fólk af landsbyggðinni um samgöngur og flug heyrist sífellt háværari umræða um hækkandi verð á flugferðum innanlands. Íbúum landsbyggðarinnar er orðið tíðrætt um að ekki fyrir svo löngu hafi það frekar borgað sig að keyra milli Akureyrar og Reykjavíkur ef þrír voru í bílnum.

Hefur allt sem þarf
Fyrstu kynni mín af Höllu Tómasdóttur voru í tengslum við vinnustað þar sem hún kom einn dag og ræddi við hópinn. Þessi dagur breytti svolítið lífi mínu því þarna uppgötvaði ég í raun hvernig ég get tekið stjórn á eigin lífi.

Af hverju að gera rekstraráætlun?
Eitt það mikilvægasta sem ég hef lært í mínum störfum gegnum tíðina er gildi þess að gera góða og raunhæfa áætlun áður en ráðist er í verkefni, stór eða smá. Allir sem vilja ná markmiðum sínum í fjármálum ættu að gera einhvers konar áætlun til framtíðar.

Norskur skammtímagróði
Eftir efnahagshrunið árið 2008 stigu margir fram og sögðust hafa varað við áfallinu. En ekkert var hlustað á varnaðarorð og sögð vondar úrtöluraddir sem vildu skaða atvinnu-og efnahagslíf þjóðarinnar. Höfum við lært af reynslunni?

Æpandi vanþekking
Ég hlýt að þakka stjórn Blaðamannafélags Íslands fyrir að hafa sent svokallaða skýrslu KPMG til félagsmanna BÍ þannig að þeir geti kynnt sér þá aðför að æru minni sem þarna er á ferðinni beint og milliliðalaust.

Mannréttindi sama hvað
Það er auðvelt í heimi þjáninga og endalausra spillingarmála að telja atkvæði í einhverjum kosningum skipta litlu máli. Mun eitt atkvæði til eða frá hafa áhrif á ábyrgðartilfinningu stjórnmálafólks, tryggja mannréttindi eða veita almenningi betra aðgengi að ákvarðanatöku um eigin málefni?

Helga Þórisdóttir og fjöregg íslenskrar þjóðar
Forseti Íslands, eini þjóðkjörni fulltrúi landsmanna, gegnir grundvallarhlutverki vegna þeirrar ábyrgðar og valds, sem embættinu fylgir. Þeir sem lesið hafa þjóðsögur og ævintýri vita að brothættra fjöreggja sinna þarf hver vel að gæta, ella verða fjörbrot.

Er þetta í alvöru verðlaunaefni?
Fyrsta enskumælandi pólitíska ráð á landinu er í Mýrdalshreppi og hlaut það samfélagsviðurkenningu Byggðastofnunar í ár.

Ótímabundin ráðgjöf til ríkisstjórnar
Ótímabundið er stórt orð. Þó svo það sé ekki eins ljóðrænt og að eilífu þá er merkingin svipuð. Til dæmis ef einhver væri látinn vinna ótímabundið fyrir annan mann, væri viðkomandi þræll en ekki frjáls maður.

Lykillinn að orkuskiptunum er úr áli
Í dag tala einhverjir um að með endurskoðun raforkusamninga við stóriðju á Íslandi megi tryggja næga orkutil framtíðar. Með því móti getum við klárað orkuskiptin í samgöngum án frekari virkjunarframkvæmda. Endurskoðun raforkusamninga undir formerkjum skerðinga leiðir einfaldlega til forsendubrests í rekstri álveranna á Íslandi.

Valdarán í Kirkju sjöunda dags aðventista og tengslin við fyrirhugaðar framkvæmdir í Ölfusi
Undanfarin misseri hafa fyrirhugaðar stórframkvæmdir alþjóðlega steypurisans Heidelberg Materials í Ölfusi verið í fréttum.

„Vitum ekkert hvað við erum að gera“
„Mér finnst ég gera lítið annað á þinginu en að innleiða einhverjar reglur frá Evrópusambandinu,“ sagði Brynjar Níelsson, hæstaréttarlögmaður og þáverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í Bítinu á Bylgjunni 3. febrúar 2014. Þingmenn væru jafnvel að innleiða meira en þyrfti að gera vegna þess að stjórnsýslan réði engan veginn nógu vel við það verkefni að fylgjast með regluverksframleiðslu sambandsins.

Nýtt örorkukerfi – verra þeirra réttlæti
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, formaður VG (og vissulega ráðherra félagsmála), slær sér á brjósti yfir hinum frábæru breytingum sem hann ætlar að gera á örorkulífeyriskerfinu. “95% örorkulífeyrisþega munu fá hærri greiðslur”.

Dánaraðstoð: Rangfærslur varðandi skrif Læknafélags Íslands
Stjórnarmenn Læknafélags Íslands (LÍ) birtu grein á visir.is þann 19. apríl síðastliðinn um Lífsvirðingu og dánaraðstoð. Í greininni koma fram nokkrar fullyrðingar sem stjórn Lífsvirðingar telur mikilvægt að leiðrétta.

Þurfum við að koma Íslandi aftur á rétta braut?
Það var athyglisvert að hlusta á skilaboð Samfylkingarinnar á flokksstjórnarþingi hennar um liðna helgi. Skilaboðin voru þau að fólk biði í ofvæni eftir því að flokkurinn kæmi þeim til bjargar. Það hefði miklar væntingar til þess að flokkurinn myndi „rífa hlutina í gang og koma Íslandi aftur á rétta braut.“

Bergmál frá geymslustað líkamans
... er óvenjulegt hugtak, eins og þetta með Vorleysingar sem ég skrifaði um í annarri grein.

Gummi Kalli
Nú er komið af kaflaskiptum í Þjóðkirkjunni og skal kjósa í seinni umferð til biskupsembættis. Bæði langafi minn sr. Sigurbjörn Einarsson og afi sr. Karl Sigurbjörnsson hafa þjónað í embætti biskups.

Það verður ekki bæði sleppt og haldið
Lít yfir kaffistofuna. Fjórir bollar hafa dottið úr vinnu til lengri eða skemmri tíma vegna bugunar (hálft til tvö ár). Tveir eru á „góðri“ leið með að skella á gólfið.

Katrín og Gunnar
Það var áhugavert að fylgjast með því þegar Katrín Jakobsdóttir baðst lausnar sem forsætisráðherra til þess að fara í forsetaslaginn. Ég hafði nokkru áður skrifað grein á visi.is þar sem ég fjallað um stöðuna hjá Vinstri grænum og afleiðinganna sem núverandi stjórnarsamstarf hefur haft á fylgi flokksins.

Andleg heilsa unga fólksins og áhrif samfélagsmiðla
Fyrir nokkrum árum hringdi dóttir mín í mig, þá á fyrsta ári í háskólanámi og sagði mér að hún hygðist skipta um námsbraut. Hún ætlaði að læra sálfræði því átta af hverjum tíu vinum hennar væru að kljást við kvíða, þunglyndi og aðrar áskoranir hvað varðaði andlega heilsu.

Börnin okkar
Fyrir mörgum árum þegar ég fór á dagmömmu námskeið var mér sérstaklega minnisstætt hversu mikil áhersla var lögð á að ef það væri grunur um ofbeldi gegn börnum eða vanræksla, þá væri meira að segja saknæmt að segja ekki frá, ef grunur væri um slíkt að viðurlagðri fangelsun.

Ferðaþjónusta til framtíðar
Nærandi ferðaþjónusta er hugtak sem fær sífellt meiri athygli í umræðunni bæði hér á Íslandi sem og um heim allan. Hugtakið felur í sér markvissar aðgerðir sem fólk og fyrirtæki geta gripið til með það að markmiði að hafa jákvæð áhrif á nærumhverfi og náttúru og skilja þannig við áfangastaðinn, samfélagið og náttúruna í betra ástandi en áður.

Þegar enginn heldur utan um þig
Í réttnefndu velferðarsamfélagi þurfa stjórnmálaflokkar að sameinast um að tryggja velferð alls fólks sem í samfélaginu býr. Á undanförnum áratug hafa hagsmunir landsmanna ekki verið valdhöfum ofarlega í huga.

Öryggi – Forvitni – Gleði
Á fimmtugsafmælisdeginum mínum, 12. janúar 2024, steig ég skref út í óvissuna og tilkynnti forsetaframboð. Þar sem ég hef aldrei verið í pólitík, en oft spurð hvort ég hafi áhuga á því, var ég búin að kynna mér hvernig framboð eru framkvæmd.

Öryrkjar auglýsi eftir harðorðum mótmælum!
Eiga öryrkjar borga fyrir kjarasamninga? Skammastu þín Sigurður Ingi Jóhannsson!