Þegar líkaminn særir egóið Sigurður Árni Reynisson skrifar 11. október 2026 10:01 Ég hef aldrei litið á sjálfan mig sem mann sem dæmir aðra eftir útlitinu, en þarna stóð ég, fimmtíu og fimm ára gamall, fyrir framan spegil á hótelherbergi og velti því fyrir mér hvað í fjandanum hefði eiginlega gerst með líkamann á mér. Ég hafði þyngst, maginn stækkað og maðurinn sem horfði á mig úr speglinum líktist óþægilega mikið einhverjum sem ég hafði ekki alveg gert ráð fyrir að verða. Ekki svo að skilja að ég hafi haldið að ég gæti verið þrjátíu og fimm ára að eilífu, enda veit ég ósköp vel að tíminn breytir okkur hvort sem okkur líkar betur eða verr. Einhvers staðar á leiðinni hafði líkaminn hins vegar breyst meira en sú mynd sem ég bar af sjálfum mér, og það var óþægilegt að sjá muninn svona skýrt. Það sem kom mér þó mest á óvart var hvorki þyngdaraukningin né merki öldrunarinnar, heldur eitthvað sem ég hafði alls ekki búist við, andstyggðin sem ég fann gagnvart eigin spegilmynd. Mér finnst óþægilegt að skrifa þetta orð og fyrsta viðbragðið er að vilja milda það, segja kannski að ég hafi verið vonsvikinn með útlitið eða einfaldlega ósáttur við það sem ég sá. En hvorugt væri alveg satt, því tilfinningin var mun harðari en svo. Mér fannst ég hreinlega ógeðslegur. Það sem sat mest í mér eftir á var þó hversu hratt þessi tilfinning færðist frá útlitinu yfir í eitthvað miklu persónulegra. Ég var ekki lengur aðeins ósáttur við hvernig líkaminn leit út, heldur var mér á örskotsstundu farið að líða illa með manninn sem bjó í honum. Ég fór að velta því fyrir mér hvers vegna útlit líkamans hefði svona greiðan aðgang að sjálfsvirðingu minni. Ég myndi aldrei horfa á annan mann á mínum aldri, sjá magann á honum, hrukkurnar eða húðina sem farin væri að síga og álykta út frá því að hann væri eitthvað minni maður. Mér myndi heldur ekki detta í hug að útlitið segði mér nokkuð um manngæsku hans, heiðarleika eða hvernig hann hefði komið fram við fólkið í kringum sig. Samt virtust allt aðrar reglur gilda þegar ég horfði á sjálfan mig, eins og líkaminn væri ekki bara líkami heldur einhvers konar vitnisburður um hversu vel mér hefði tekist að halda utan um eigið líf. Því meira sem ég hugsaði um þetta, því óvissari varð ég um hvað ég hefði í raun verið að sjá í speglinum. Voru þetta bara nokkur aukakíló og eðlilegar breytingar sem fylgja aldrinum, eða var líkaminn farinn að tákna eitthvað sem ég átti erfiðara með að horfast í augu við? Kannski sá ég merki þess að ég hefði misst stjórn, ekki hugsað nógu vel um sjálfan mig eða að tíminn væri að líða á þann hátt að ég gæti hvorki stöðvað hann né samið við hann. Einhvers staðar í höfðinu á mér býr nefnilega enn ákveðin mynd af mér, þótt ég geti ekki sagt nákvæmlega hversu gamall maðurinn á þeirri mynd er. Hann er einfaldlega yngri, grennri og sterkari, fötin sitja betur á honum og líkaminn gerir nokkurn veginn það sem hann biður hann um. Þarna stóð ég svo og bar mig saman við mann sem er ekki lengur til. Þegar mesta áfallið var gengið yfir vaknaði hjá mér dálítið óþægileg spurning: Hef ég í raun einhvern tímann verið ánægður með líkama minn? Ég get horft til baka á tímabil þegar ég var í betra formi, sterkari og stæltari og hugsað um þann líkama næstum eins og eitthvað dýrmætt sem ég hafi misst. En þegar ég reyni að rifja upp hvernig mér leið meðan ég bjó í honum er ég alls ekki viss um að ég hafi kunnað að meta hann. Ég man ekki eftir því að hafa staðið fyrir framan spegilinn og hugsað: Jæja, loksins er ég ánægður með það sem ég sé. Líklegra er að ég hafi þá líka séð eitthvað sem mætti laga, eitthvað sem þyrfti að vera stærra, minna eða stæltara, eins og ánægjan biði alltaf rétt handan við næstu breytingu. Það er eiginlega dálítið fáránlegt að sakna líkama sem maður kunni aldrei almennilega að meta meðan maður hafði hann. Í minningunni er þessi yngri líkami orðinn að viðmiði sem ég ber núverandi líkama saman við, en á sínum tíma var hann sjálfur borinn saman við aðra fyrirmynd sem virtist alltaf rétt utan seilingar. Líkaminn hefur breyst með árunum en mælingarnar hafa aldrei hætt og þegar ég áttaði mig á því varð erfiðara að trúa að lausnin fælist einfaldlega í því að koma mér aftur í betra form. Ef ég var ekki sáttur þegar ég var yngri, grennri og sterkari, hvers vegna ætti ég þá að gera ráð fyrir að sáttin biði mín þegar ég hefði losað mig við nokkur kíló? Auðvitað get ég gert eitthvað í líkamlegu ástandi mínu og það eru fullgildar ástæður fyrir því að borða betur, hreyfa mig meira og verða sterkari, ekki síst eftir því sem ég eldist. En þessi reynsla fékk mig til að velta því fyrir mér hvort hægt væri að vilja breyta líkamanum án þess að þurfa fyrst að hata hann. Það er nefnilega töluverður munur á því að vilja hugsa betur um sjálfan sig og því að telja sig þurfa að laga eitthvað vegna þess að maður þolir ekki það sem maður sér. Útkoman gæti litið nákvæmlega eins út, hollari matarvenjur, meiri hreyfing og minna mittismál, en ástæðan fyrir breytingunni væri gjörólík. Í öðru tilvikinu væri ég að hugsa um sjálfan mig, í hinu væri ég að reyna að flýja sjálfan mig. Þegar ég hélt áfram að hugsa um þetta áttaði ég mig á nokkru sem hefði kannski átt að vera augljóst frá upphafi: Líkaminn hafði í raun ekki gert neitt rangt. Í fimmtíu og fimm ár hefur hann borið mig í gegnum lífið, unnið, gengið, hlaupið, jafnað sig eftir veikindi, þolað sársauka og brugðist við eftir bestu getu þeim kröfum sem ég hef gert til hans. Hann hefur fylgt mér í gegnum allt sem þessi ár hafa haft upp á að bjóða, bæði það sem ég vildi helst gleyma og þær stundir sem ég myndi ekki vilja skipta út fyrir neitt. Merkin sem hann ber sýna einfaldlega að tíminn hefur liðið og það eru varla svik af hans hálfu. Samt stóð ég þarna og horfði á þessar breytingar eins og líkaminn hefði einhvern veginn rofið samkomulagið okkar á milli. Kannski hafði ég einmitt gert slíkt samkomulag, ekki við líkamann sjálfan heldur við þá mynd sem ég hafði af sjálfum mér. Ég mátti eldast, svo lengi sem það sæist ekki of mikið, ég mátti þyngjast, svo framarlega sem mér fyndist ég ekki orðinn feitur og ég mátti breytast, svo lengi sem breytingarnar röskuðu ekki hugmyndinni um manninn sem ég taldi mig enn vera. Án þess að taka nokkurn tímann meðvitaða ákvörðun um það hafði ég leyft sjálfum mér að eldast, en aðeins að uppfylltum ákveðnum skilyrðum og líkaminn hafði, heldur óþægilega, ekki kynnt sér samningsskilmálana. Smám saman varð mér ljóst að vandinn lá ekki í líkamanum sjálfum heldur bilinu milli mannsins sem ég sá í speglinum og mannsins sem ég ímyndaði mér enn að ég væri. Líkaminn hafði breyst en sjálfsmyndin ekki fylgt með og einhvers staðar í þessu bili særðist eitthvað innra með mér, egóið. Ég hafði aldrei velt því sérstaklega fyrir mér að egóið mitt ætti sér líka líkama, eða að svo stór hluti sjálfsmyndar minnar gæti verið bundinn því hvernig ég liti út, hvernig fötin sætu á mér eða hversu sterkur ég væri. Ég hafði alltaf skilið það, að minnsta kosti í orði, að virði manneskju væri ekki hægt að mæla út frá útliti hennar, en greinilega hafði einhver hluti af mér ekki alveg meðtekið þann skilning. Þegar líkaminn fór út fyrir þessi ósýnilegu mörk sem ég hafði sett honum var það ekki bara óánægja sem kom upp heldur skömm. Ég geri ráð fyrir að hér sé komið að þeim stað í greininni þar sem ég ætti að draga einhverja uppörvandi ályktun um sjálfsást, lýsa því yfir að ég hafi lært að sætta mig við ófullkomleika minn og elska líkamann nákvæmlega eins og hann er. Það er vissulega eitthvað heillandi við þá hugmynd, en um leið eitthvað sem truflar mig, því ég þekki sjálfan mig nógu vel til að vita hvað myndi líklega gerast næst. Ég myndi breyta þessari uppgötvun í enn eitt sjálfsræktarverkefnið, þannig að nú þyrfti ég ekki aðeins að léttast og koma mér í betra form heldur líka að læra að elska líkamann á meðan. Enn eitt verkefnið sem ég þyrfti að vinna að, enn einn mælikvarðinn sem ég bæri mig saman við og enn eitt tækifærið til að sannfæra sjálfan mig um að ég væri ekki alveg kominn á þann stað sem ég ætti að vera. Eftir öll þessi ár sem ég hef reynt að verða sáttari við sjálfan mig er ég farinn að velta því fyrir mér hvort mig vanti virkilega enn eitt verkefnið. Kannski þarf mér ekki að þykja vænt um allt sem ég sé í speglinum. Kannski get ég viðurkennt að ég hafi þyngst meira en ég vildi, að það geti verið erfitt að eldast og að ég sakni styrksins og útlitsins sem ég hafði þegar ég var yngri, án þess að breyta þessum tilfinningum í dóm um eigið manngildi. Ég ætla ekki að láta eins og útlitið skipti mig engu máli, því það gerir það, og ekki heldur að telja sjálfum mér trú um að það sé óþarfi að hugsa um líkamlega heilsu. Það sem ég er að velta fyrir mér er hvers vegna óánægja með einn hluta af sjálfum mér getur svona auðveldlega orðið að óánægju með mig allan og hvers vegna það að eldast geti stundum virst eins og persónulegur ósigur í stað þess að vera eðlilegur hluti af lífinu. Ég hef ekki sérstaklega góð svör við þessum spurningum, en mig grunar að þær séu þess virði að velta fyrir sér áður en ég rýk af stað til að laga það sem ég sé. Það sem þessi stund fyrir framan spegilinn sýndi mér var nefnilega ekki bara að ég hefði þyngst, heldur hversu auðveldlega ég gat látið breytingar á útliti mínu verða að dómi um hver ég væri. Líkaminn mun halda áfram að breytast, það er eitt af því fáa sem ég get verið nokkuð viss um og hvorki hreyfing, hollt mataræði né jákvæð hugsun mun koma í veg fyrir að tíminn geri það sem tíminn gerir. Hvort myndin sem ég ber af sjálfum mér muni einhvern tímann læra að breytast á sama hraða er hins vegar allt önnur spurning, og kannski liggur einmitt þar hinn raunverulegi vandi. Líkaminn heldur áfram að eldast án þess að biðja um leyfi, á meðan egóið stendur eftir með gamla ljósmynd í hendinni og veltir því fyrir sér hvað í fjandanum hafi eiginlega gerst. Höfundur er mannvinur og kennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvað er títt af Seðlabankastjóra og unnustu hans? Einar Steingrímsson Skoðun Halldór 10.10.2026 Halldór Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir Skoðun Réttið upp hönd sem eruð á móti Gunnar Salvarsson Skoðun Hálf sagan um fjármagnstekjuskatt Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Afkomuöryggi er forsenda listsköpunar Jóna Hlíf Halldórsdóttir Skoðun Tóm-stundar-iðkun Kristín Björg Viggósdóttir Skoðun Sjáðu þig - taktu eftir breytingum Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir Skoðun Ríkið hefur gert sig að ritstjóra Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar líkaminn særir egóið Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – Hlustum á raddir fólks með reynslu Helga Arnardóttir skrifar Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Réttið upp hönd sem eruð á móti Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ríkið hefur gert sig að ritstjóra Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Afkomuöryggi er forsenda listsköpunar Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Tóm-stundar-iðkun Kristín Björg Viggósdóttir skrifar Skoðun Sjáðu þig - taktu eftir breytingum Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Hálf sagan um fjármagnstekjuskatt Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir skrifar Skoðun Í hverju felst virðing fyrir lífinu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvað er títt af Seðlabankastjóra og unnustu hans? Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Ríkið stal þremur árum frá ungum föður og syni hans Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar Skoðun Hvenær á að segja upp kjarasamningum? Jónas Yngvi Ásgrímsson skrifar Skoðun „Raflítri“ Hvað kostar bensínlítraígildi? Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Orð skipta máli Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir skrifar Skoðun Tóbaksfyrirtækin eiga ekki að skrifa lögin Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar Skoðun Að skattleggja fjarlægðir og búsetu fólks Jón Bjarnason skrifar Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Gerum gott betra – þorum að horfa á allar hliðar Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson skrifar Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Skammsýni eða skynsemi? Skúli Mogensen skrifar Skoðun Mjúkt net og snjallrassar Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Sjá meira
Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – Hlustum á raddir fólks með reynslu Helga Arnardóttir skrifar
Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir skrifar
Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar
Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar
Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar
Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir Skoðun