Skoðun

Algeng þvæla um Evrópusambandið
Öfga-hægri maðurinn Hjörtur J. Guðmundsson „blaðamaður“ á Morgunblaðinu heldur áfram að skrifa áróðursgreinar á Vísir.is undir þeim hatti að þetta séu skoðanir sem hann hefur. Hinsvegar er hann bara að endurtaka lygar sem er margoft búið að afsanna.

Stundum hefur Gunnar Smári rétt fyrir sér
Það er ekki mikið af góðum fréttum að utan núna. Stríðin geysa áfram í Úkraínu og á Gaza og ekki útlit fyrir að neitt lát verði á því í bráð. Það stefnir í stórsigur Þjóðfylkingarinnar í Frakklandi, sem, ef af verður, mun kasta sandi í tannhjól samstöðu Evrópusambandsins með Úkraínu í áðurnefndu stríði og hafa margháttaðar aðrar afleiðingar, fæstar til góðs.

Hamingjan grundvallast á gæðum hugsananna
Ferðalag andans gegnum hugsun og tungu má líkja við salibunu ljóss og myrkurs um mannssálina sem ýmist endar í ánægju eða óánægju - allt háð athyglibeitingu þess sem hugðuninni stjórnar í garð þess sem athyglin beinist til.

Hátt reitt til höggs
Það kemur mér ekki á óvart að núverandi stjórn Blaðamannafélags Íslands hafi ákveðið að kæra mig ekki fyrir brot í starfi framkvæmdastjóra félagsins, eins og fram kemur í tilkynningu hennar til félagsmanna.

Brennt barn forðast eldinn
Borið hefur á því ítrekað að eldur komi upp á byggingar- og framkvæmdasvæðum. Nýlegt atvik er eldur sem braust út í Kringlunni á dögunum og olli þar gríðarlegu tjóni, þótt blessunarlega hafi betur farið en á horfðist og enginn slasast alvarlega.

Varnir gegn gagnagíslatökum
Öryggisráðstafanir á sviði stjórnkerfis netöryggis gegna mikilvægu hlutverki við að tryggja vernd kerfa og gagna gegn netárásum, þ.m.t. gagnagíslatökum (e. ransomware). En slíkar árásir er ein helsta ógnin sem fyrirtæki og stofnanir standa frammi fyrir í dag, og hefur hún aukist bæði í tíðni og flækjustigi undanfarin ár.

Uppbygging almannahagsmuna á Íslandi
Þá er ég loksins búinn að klára skiptin úr Arion banka í ríkisbankann Íslandsbanka og ég vill endilega hvetja fólk til þess að sniðganga Arion banka.

Málað sig út í horn
Forsenda þess að sigur vannst í landhelgisdeilunum á síðustu öld var sú að valdið til töku ákvarðana í þeim efnum var í okkar höndum. Fyrir vikið gátu íslenzk stjórnvöld ekki einungis talað máli þjóðarinnar á alþjóðavettvangi heldur einnig gripið til nauðsynlegra aðgerða þegar erlend ríki eins og Bretland og Vestur-Þýzkaland voru ekki reiðubúin vegna eigin hagsmuna að taka tillit til vel rökstudds málflutnings okkar.

Full orkuskipti ríkisflota og samgönguþjónustu fyrir 2030
Í nýrri aðgerðaáætlun í loftslagsmálum er að finna aðgerð sem nefnist Full orkuskipti ríkisflota og samgönguþjónustu fyrir 2030.

Einelti er veruleikabrenglun
Hvaðan kom sú hugmynd að það væru bara tvær gerðir af mannverum?

„Lýtalaus íslenska“ er ekki til
Undanfarið hefur orðið töluverð umræða um íslensku í Ríkisútvarpinu, m.a. í framhaldi af kæru Kristjáns Hreinssonar skálds til menningar- og viðskiptaráðherra „vegna notkunar íslenskrar tungu hjá fjölmörgum starfsmönnum Ríkisútvarpsins“.

Hvatning til mótshaldara Landsmóts hestamanna
Stærsta hestamót hér á landi, Landsmót hestamanna, hefst í dag. Gjarnan er talað um að Landsmót sé uppskeruhátíð unnenda íslenska hestsins þar sem hundruð knapa keppa og sýna hross. Mót af þessari stærðargráðu er vissulega ánægjulegt fyrir mótshaldara, keppendur og áhorfendur. Hinsvegar er mikilvægt að ræða velferð hrossa í keppni og sýningum enda snýst mótið fyrst og fremst um þau.

Áróður Kremls gegn Úkraínu og NATO
Á undanförnum árum hafa átökin í Úkraínu og afstaða Vesturlanda gagnvart Rússlandi leitt til þess að Kreml hefur stundað umfangsmikla áróðursherferð.

Að gefnu tilefni
Prófessor Gauti Kristmannsson, bókagagnrýnandi Ríkisútvarpsins, ritar pistil hér á Vísi þann 28. júní s.l. og virðist gáttaður á því að ég skuli voga mér að halda uppi vörnum fyrir íslenska tungu.

Það er ákvörðun að beita mannvonsku
11 ára drengur með Duchenne-hrörnunarsjúkdóminn liggur á Barnaspítalanum og bíður brottvísunar sinnar af landinu. Sérfræðingar innan heilbrigðiskerfisins, hagsmunasamtök og almenningur hafa fordæmt brottvísun drengsins bæði vegna heilbrigðis- eða mannúðarsjónarmiða.

Löng barátta XD fyrir jafnrétti og frelsi
Við sjálfstæðismenn gátum glaðst yfir mörgu við þinglok. Eitt af því var hækkun á hámarksgreiðslum í fæðingarorlofi sem þingmenn Sjálfstæðisflokks hafa stutt ötullega. Við þinglega meðferð gerði meirihluti velferðarnefndar mikilvægar breytingar á málinu á þann veg að hækkunin gildi fyrir alla þá sem eiga rétt á greiðslum úr fæðingarorlofssjóði.

Árið er 1990
Í útvarpi allra landsmanna heyrist Bogi Ágústsson, fréttamaður reglulega segja þessi orð „Árið er“. Á eftir heyrast svo gamlir poppslagarar það árið, sem rifja upp gömlu og góðu dagana. Þessi orð “Árið er 1990” spretta upp í hugann í hvert einasta sinn sem ég ferðast um vegkaflann milli Patreksfjarðar og Reykjavíkur. Orð Boga fylgja mér svo langleiðina niður í Borgarfjörðinn, þegar nokkuð góðir vegkaflar taka á móti mér.

Létt Borgarlína og bráðavandi umferðar
Samgöngusáttmálinn með sinni dýru Borgarlínu leysir seint erfiðar tafir í umferð á höfuðborgarsvæðinu og skjótvirkari úrræða er þörf. Þar getur létt Borgarlína (BRT-Lite) með öðru létt undir.

Bestun Seðlabankastjóra
Stór hluti af starfi verkefnastjóra er að reyna að besta ferla verkefnis, til að skila verðmætari afurð. Ef Seðlabankastjóri er verkefnastjórinn og afurðin er skilgreind sem lækkun á verðbólgu í 2,5% og minnka eigi þenslu í hagkerfinu verður líka að TÍMASETJA afurðina; skilgreina hvaða dag, mánuð eða ár afurðin á að vera tilbúin.

Nýr tækniskóli rís við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði
Það má segja að vegferðin hafi farið af stað sumarið 2021 þegar viljayfirlýsing um framtíðarhúsnæði Tækniskólans var undirrituð hér í Hafnarfirði, m.a. af þáverandi menntamálaráðherra. Það var því stór stund í Hafnarfirði síðastliðinn fimmtudag þegar stjórnvöld, Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn undirrituðu skuldbindandi samkomulag þess efnis að nýr Tækniskóli verði staðsettur í Hafnarfirði og verkefnið fari nú af stað af fullum krafti í samræmi við stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar.

Úr samkeppni í einokun?
Íslendingar reiða sig á trausta vöruflutninga um sjó umfram flest önnur ríki. Í krafti skilvirkra og hagkvæmra sjóflutninga búa landsmenn við breitt vöruúrval og virka verðsamkeppni. Skilvirkir flutningar eru einnig lífæð íslenskra útflytjenda sem skapa þær gjaldeyristekjur sem gera okkur kleift að stunda innflutning.

Að mála sig út í horn
Ekki verður séð að minnimáttarkennd sé hótinu betri en oflátungsháttur. Síðustu vikur og mánuði hafa birst greinar eftir Hjört J. Guðmundsson þar sem hann útmálar hvað Ísland yrði lítið og pervisið ef við gengum að fullu inn í ESB og færðum okkur af göngum og náðhúsum inn á fundina þar sem mál eru rædd og ákvarðanir teknar.

Verst fyrir fámennustu ríkin
Væntanlega getum við verið sammála um það að hálfur þingmaður á Alþingi væri ekki beinlínis ávísun á áhrif þar á bæ. Hvað þá einungis 5% af þingmanni. Þetta er engu að síður sambærilegt við það vægi sem Ísland myndi hafa annars vegar á þingi Evrópusambandsins og hins vegar allajafna í ráðherraráði þess kæmi til inngöngu landsins í sambandið. Vægi ríkja innan þess fer enda fyrst og fremst eftir íbúafjölda þeirra.

Hvað getum við tekið á móti mörgum?
Óttinn við ófyrirsjáanlegan fjölda umsókna dúkkar upp í hvert skipti sem ræða á stöðu umsækjenda um alþjóðlega vernd. Þessi ótti er ekki nýr af nálinni og á sér ekki rætur í fjölgun umsókna síðustu ár, heldur hefur hann alla tíð fylgt umræðum um mögulega fólksflutninga til landsins.

Yazan, Kant og siðleg breytni á Íslandi
Hvað myndi gamli Kant segja við íslensk yfirvöld eða ráðleggja þeim varðandi stöðu Yazan Tamimi, ellefu ára palestínsks drengs, varðandi hvort þau ættu að hætta við að endursenda hann og fjölskyldu hans í óvissu á Spáni eða ekki?

Dauðinn og skattarnir
Fyrir skemmstu tóku starfsmenn hins opinbera hlutafélags Isavia ákvörðun um að innheimta nýtt gjald af þeim notendum innanlandsflugs sem voguðu sér að koma á eigin bíl á flugvellina.


Flug frá Keflavík til Köben tekur styttri tíma en meðaltími nauðgunar
Kynferðisofbeldi á ekkert skylt með kynlífi. Ofbeldið sem er beitt er í formi valdníðslu og djúprar fyrirlitningar. Markmiðið er að hafa vald yfir þér. Ef fólk hefur ekki velt því fyrir sér hver meðaltíminn er sem kynferðisofbeldi stendur yfir að þá eru það um 4,5 klukkustundir. Flug frá Keflavík til Köben tekur styttri tíma en meðaltími nauðgunar. Það má vera að sumir skilji ekki hvernig karlmaður gæti enst svona lengi en raunin er sú, enn og aftur, að kynferðisofbeldi er ekki kynlíf og á ekkert skylt við kynlíf.

Hvers vegna getur ein greiðsla á ári frá TR verið góður kostur?
Sífellt fleiri lífeyrisþegar kjósa að nýta sér eina greiðslu á ári frá Tryggingastofnun (TR) til að koma í veg fyrir endurgreiðslu til TR í kjölfar árlegs uppgjörs, en ein greiðsla á ári er einmitt góður kostur fyrir lífeyrisþega með háar og breytilegar tekjur.

Í gíslingu Ríkislögmanns, samtryggingar og spillingar
Þú átt ekki sjens ef ríkið, „kerfið“, brýtur á þér. Það er hin einfalda staðreynd málsins.