

Bandaríska útgáfa The Huffington Post setti inn ítarlega umfjöllun um íslensku ullarpeysuna á heimasíðu sína nú rétt fyrir helgi. Blaðamaður þar á bæ heimsótti Ísland fyrir stuttu og heillaðist af landi og þjóð. En mest heillaðist hún þó af ullarpeysunni góðu og sögunni á bak við hana..
Leikkonan Vanessa Hudgens fékk leið á síða, dökka hárinu sínu og ákvað að klippa það stutt í vikunni.
Tískutímaritið LOVE birti þessar myndir sem Tim Walker, einn virtasti tískuljósmyndari heims, tók af Kate Moss nýlega. Kate, sem varð 39 ára á dögunum, hefur greinilega engu gleymt og eru bæði forsíðan og myndaþátturinn með þeim djarfari sem sést hafa með henni.
Stjörnurnar hafa í nógu að snúast þessa dagana, enda ekki þverfótað fyrir tískuvikum og verðlaunahátíðum...
Heimsfrægi ljósmyndarinn Juergen Teller býður upp á yndislegar myndir í nýjasta hefti W Magazine. Þar eru stjörnur á borð við Naomi Watts og Nicole Kidman algjörlega ómálaðar.
Breska ofurfyrirsætan Cara Delvingne hefur skotist hratt upp á stjörnuhimininn síðustu mánuði. Hér situr hún fyrir í nýjustu auglýsingaherferð DKNY. Myndirnar eru stórskemmtilegar og litríkar..
Íslenska fatamerkið KALDA sendi frá sér eftirtektarverða auglýsingaherferð fyrir nýjustu línu sína nú fyrir helgi. Fatnaður þeirra fæst í 5 löndum og vinna þær hart að því að setja upp bækistöðvar í London um þessar mundir. Lífið heyrði stuttlega í Katrínu Öldu Rafnsdóttur, yfirhönnuði KALDA.
Víðar leðurbuxur eru vinsælar bæði í Hollywood og á meðal þekktustu tískubloggara heims um þessar mundir.
Söng- og leikkonan Jennifer Lopez 43 ára gömul var stórglæsileg á frumsýningu kvikmyndarinnar Parker í gær klædd í hvítan Kaufman Franco síðkjól.
Það er alltaf gaman að fá að skyggnast á bak við tjöldin á tískuvikunum. Breska Vogue birti þessar fallegu myndir af fyrirsætum og förðunum áður en þær gengu sýningarpallana.
Það er alltaf gaman að fá að skyggnast á bak við tjöldin á tískuvikunum...
Jafnvel þó að grafíkin hafi verið áberandi innanhúss undanfarin ár halda vinsældir hennar ótrautt áfram, sérstaklega í stílhreinum og einföldum rýmum.
Það er aldrei langt í tískudrósirnar þegar Chanel er annars vegar...
Elie Saab sýndi Houte Couture línu sína á síðasta degi hátískuvikunnar í París í gær. Þar sveif mikil rómantík yfir vötnum, eins og venjan er á sýningunum hjá honum, og voru kjólarnir listaverkum líkastir. Það verður spennandi að sjá hvort við sjáum einhvern þeirra á Óskarsverðlaununum í febrúar, en Saab kjólarnir hafa verið afar vinsælir við það tilefni síðustu ár. Leyfum myndunum að tala sínu máli.
Hin fjölhæfa Nicole Richie tók af skarið í vikunni og lét klippa af sér hárið. Nú er hún komin með svokallaða “bob”-greiðslu sem á góðri íslensku gæti heitið bobbi.
Hátískulína Chanel fyrir vor – og sumar '13 var sýnd í París í gær. Karl Lagerfeld, yfirhönnuður Chanel til þrjátíu ára, sagði að innblásturinn af línunni hafi komið til hans í draumi, og eigi að vera einhverskonar ,,grískt leikrit í rómantískum skógi", eins og hann orðaði það. Klassíska Chanel dragtin var að sjálfsögðu á sínum stað í fallegum ljósum litum, sem og litli svarti kjólinn sem fylgt hefur tískuhúsinu frá upphafi.
Það er leikur einn að sjá hverjar heitustu tískustefnurnar eru hverju sinni með því að líta til stjarnanna í Hollywood.
Sænska hönnunarhúsið Acne mun ekki vera með í tískuvikunni í London nú í febrúar. Aðdáendur þurfa þó ekki að örvænta, því tískuhúsið er ekki horfið sjónum, heldur tóku yfirmenn þar á bæ þá ákvörðun að sýna haust og vetrarlínuna frekar í París. Yfirhönnuðurinn Jonny Johansson sagði ástæðuna vera að línan verði ekki tilbúin í tæka tíð, en tískuvikan í París er aðeins seinna í febrúar en sú breska. Acne rekur tvær búðir í París svo þessar breytingar ættu að falla vel í parísarbúa.
Í vor og sumar verður af nógu að taka í förðunartískunni. Lífið fékk Ernu Hrund Hermannsdóttur, förðunarfræðing og bloggara hjá Trendnet.is, til að fara í gegnum sína uppáhalds förðunarstrauma í sumartískunni þetta árið ásamt því að gefa okkur góð ráð.
Tískuheimurinn er alltaf í kapphlaupi við tímann og þó að það sé ekki komið sumar eru margir farnir að hugsa fram á haust. Millilínurnar, eða Resort'13 voru sýndar á dögunum og lífið tók saman þrjú trend sem verða flott í lok sumars og í haust. Kápur í fallegum litum, dýramunstur frá toppi til táar og rúllukragar.
Það fór ekki framhjá neinum að Barack Obama sór forsetaeiðinn í vikunni. Tískuheimurinn beið þess að sjá hverju forsetafrúin myndi klæðast við tilefnið , en síðustu vikur hafa margir reynt að rýna í klæðaburð hennar í gegnum tíðina og reyna þannig að spá fyrir um klæðnaðinn. Svo fór að hún klæddist sérsaumuðum kjól frá hönnuðinum Jason Wu sem klæddi hana einstaklega vel. Þá var hún í skóm frá Jimmy Choo. Michelle virðist kunna vel við hönnun Jason Wu, þar sem hún klæddist einnig kjól frá honum þegar eiginmaður hennar sór eiðinn árið 2009.
Franski söngfuglinn Vanessa Paradis er nýtt andlit umhverfisvænu fatalínu sænsku verslanakeðjunar H&M. Myndatakan fór fram í kastala og er draumi líkast. Sjá meira á Trendnet.is.
María Björk Sigurpálsdóttir fyrirsæta og klæðskeranemi hugsar vel um húðina og hárið. Hún er óhrædd við að nota eldrauðan varalit og eyeliner enda fer það henni áberandi vel. María upplýsir okkur hvaða snyrtivörur hún getur ekki verið án.
Hátískuvikan hófst í gær í París. Hátískusýningarnar, eða Haute Couture, eru sá viðburður sem tískuspekúlantar eru yfirleitt hvað spenntastir fyrir, en það eru aðeins nokkrir hönnuðir sem uppfylla skilyrðin til að geta talist vera Haute Couture. Versace reið á vaðið í þetta sinn með litríkri og skemmtilegri línu sem var svo sannarlega eitthvað fyrir augað.
Sjónvarpskonan Kelly Ripa og leikkonan nýgifta Evan Rachel Wood eru með svipaðan fatasmekk – þó ólíkar séu.
Tveir nýir Saffran-veitingastaðir opna í Bæjarhrauni og á Bíldshöfða á næstunni.
Ingvar Helgason er annar hluti fatahönnunartvíeykisins Ostwald Helgason, en hönnun hans og sambýliskonu hans Susanne Ostwald vakti mikla athygli tískuspekúlanta á síðasta ári. Ingvar lifir og hrærist í heimi tískunnar í dag.
Elísabet Ormslev söngkona með meiru upplýsir okkur hvaða snyrtivörur hún notar daglega.
Gallabuxur eru eitthvað sem aldrei fer úr tísku. En þó þær séu alltaf inn fáum við þó að sjá mismunandi útgáfur af þeim ár hvert. Víðar, og jafnvel rifnar, gallabuxur eru vinsælar um þessar mundir og hafa stjörnurnar mikið sést klæðast þeim í daglegu amstri. Við skulum skoða nokkrar myndir.
"Nú fer að líða að fermingum 2013 og mjög spennandi tímar framundan hjá fermingarbörnum. Þetta er aldurinn sem þau vita hvað þau vilja og sem betur fer er enginn eins," segir Helena Hólm hárgreiðslumeistari og eigandi Hárgreiðslustofu Helenu Stubba-lubbar spurð út í fermingargreiðslurnar hjá stúlkum.