Tíska og hönnun

Ekki bara ein flík
Ný vara frá hönnunarfyrirtækinu Björg í bú kom nýlega á markaðinn, fjölnota ullarflík sem hefur fengið nafnið Peysuleysi.

Vopnabúrið í hóp bestu verslana heims
Tímaritið Wallpaper hefur valið Vopnabúrið, hönnunarverslun í eigu vöruhönnuðarins Sruli Recht, á meðal tíu athyglisverðustu verslana heims árið 2010. Vopnabúrið er þar með komið í hóp verslana á borð við Hermès í New York.

Sléttunarmeðferð sem endist í nokkra mánuði
Krullhærðir vita að það getur farið illa með þurrt og hrokkið hár að slétta það. Natura Keratin er ný stofumeðferð sem sléttar hár án þess að taka hárböndin í sundur og endist í þrjá til fimm mánuði.

Fram undan í tískuheimi
Margir spá nú í tískuárið sem er fram undan. Tískutímaritið Elle hefur tekið saman það helsta sem mun verða vinsælt á árinu í tískuheiminum.

Þyngra yfirbragð á árinu
Þung leðurhúsgögn, leðursófar og -stólar, brúnir, svartir og sinnepsgulir litatónar, stærri persneskar mottur, flónel og þyngri gardínur virðist vera það sem er í tískukortum heimilanna á næsta ári.

Ein af stjörnum morgundagsins
Brynjar Sigurðsson gerir janúarforsíðu Wallpaper. Hann stundar um þessar mundir nám í vöruhönnun við hinn virta svissneska skóla ECAL í Lausanne. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Brynjar þegar vakið mikla athygli.

Mátaði ekki annan kjól
Katrín Atladóttir, forritari hjá CCP, mætir í brúðkaup á nýársdag í sínum eigin brúðarkjól. Hún spurði þó brúðgumann um leyfi.

Þórunn Árna verðlaunuð
„Þetta er fyrst og fremst mjög góð viðurkenning fyrir mig og mína hönnun en auðvitað skemmir ekki fyrir að fá þessi peningaverðlaun,“ segir Þórunn Árnadóttir vöruhönnuður en hún lenti í öðru sæti í samkeppni sem virt hönnunarheimasíða, designspongeonline.com, stóð fyrir.

E-label selt í stærstu vefverslun Bretlands
Íslenska merkið E-label hefur hafið samstarf við vefverslunina Asos.com og verður fáanlegt á síðunni frá og með janúarmánuði. Asos er stærsta vefverslun Bretlands og á hverjum mánuði heimsækja yfir átta milljónir manna síðuna.

Hvað er undir trénu?
Jólin koma og gjafakaupin eru komin á fullt. Stuttu fyrir jól getur verið gaman að láta sig dreyma um hvað verður í jólapökkunum þetta árið. Það er margt sem hugurinn girnist þótt aðeins brot af því rati undir jólatréð.

Hlýjar tær á ferðalagi
Vinkonurnar Ingibjörg Þóra Gestsdóttir fatahönnuður og Kristín Unnur Þórarinsdóttir flugfreyja hafa hannað lopapeysu sem nýtist líka sem hlýtt teppi. Peysan nýtist sérlega vel á löngum ferðalögum.

Jóla- og áramótaförðunin: Ferskt og fínt yfir hátíðarnar
Föstudagur fékk Hörpu Káradóttur hjá Mac til að sýna lesendum hvernig hægt er að farða sig um hátíðarnar og hvaða straumar og stefnur eru ráðandi um þessar mundir í förðun. Það er ágætt að hafa nokkur góð ráð bak við eyrað þegar síðustu tvær vikur ársins ganga í garð enda yfirleitt þétt dagskrá hjá flestum.

Listfengur Lagerfeld
Frá árinu 2003 hefur Karl Lagerfeld árlega hannað línu fyrir Chanel sem kallast Metiers d‘Art og er á öðrum meiði en hátískulína og Prêt-à-porter lína tískumerkisins.

Nýr hringur í skartgripalínunni Umvafin trú
Skartgripahönnuðurinn Brynja Sverrisdóttir hefur sent frá sér nýjan hring í skartgripalínu sinni Umvafin trú eða Embracing Faith eins og línan heitir á ensku.

Gull og gersemar fyrir jólin
Á dögunum þegar ég flaug frá Nice til Parísar fletti ég tímariti franska flugfélagsins, Air France. Við lesturinn hugsaði ég hvort það væri nálægð jólanna eða hvort meirihluti ferðalanga væri í leit að rándýrum úrum, svo mikið var af auglýsingum í ritinu. Reyndar, þegar betur er að gáð, má segja það sama um tískublöðin sem eru full af auglýsingum tískuhúsanna og annarra sem hanna skart og auglýsa stíft sínar dýrustu vörur, úr og skart úr eðalmálmum skreytt demöntum eða öðrum eðalsteinum.

21 hönnuður sýnir á RFF
Íslenskir tískuunnendur eiga von á góðu þegar Reykjavík Fashion Festival verður sett 31. mars. Erlendir fjölmiðlar sýna íslensku tískuhátíðinni mikinn áhuga.

Sit við sauma
Elísabet Björgvinsdóttir hannar og saumar skóhlífar undir heitinu Babette, sem er nafnið hennar á frönsku.

Endurvinnur ullarpeysur
Sigríður Ásta Árnadóttir textílhönnuður hannar stórskemmtilegar flíkur undir heitinu Kitschfríður. Sigríður segir nafnið vera nokkuð lýsandi fyrir hönnun sína, „kitsch“ merkir eitthvað sem er skrautlegt og ofhlaðið og „fríður“ minnir svolítið á gamla tíma.

Hátíðarborð Hönnu Margrétar
Hátíðarborð Hönnu Margrétar Einarsdóttur er sérstaklega hlýlegt þar sem jarðlitir í náttúrulegum og einföldum borðskreytingum úr kanilstöngum, lifandi jurtum og könglum spila aðalhlutverkið. Borðskreytingin er ekki síður barnvæn.

Látlaust og klæðilegt
Tískumerkið Rag & Bone kynnti nýverið hluta af nýrri haustlínu sinni fyrir árið 2011. Línan er látlaus, þægileg og hrikalega flott og samanstendur af síðum pilsum, víðum stuttermabolum og þægilegum prjónapeysum.

Jólaleg hönnun
Mikið er til af fallegri íslenskri hönnun sem er jólaleg en á ekki síður vel við árið um kring. Slíka muni er gaman að gefa sem jólagjafir eða skreyta eigið heimili með þeim í þeirri vitneskju að þeir þurfa ekki að rykfalla inni í kompu árstíða á milli.

Hönnunin rataði á síður Vogue
„Nú fara Ítalirnir vonandi að taka línuna inn í sínar búðir,“ segir fatahönnuðurinn Sunna Dögg Ásgeirsdóttir. Hluti úr nýjustu fatalínu hennar birtist í ítalska barnablaði Vogue á dögunum, Vogue Bambini.

Fimm hlutir sem þú vissir ekki um Helenu Christensen
Danska fyrirsætan Helena Christensen hefur löngum þótt ein fallegasta kona heims. Hún deilir tíma sínum á milli Kaupmannahafnar og New York og á einn son sem hún segir vera það eina sem skipti hana máli í lífinu.

Lærðu að gera kattaraugu eins og Kate
Kate Moss er fyrirmynd margra í klæðnaði og förðun. Hún skartar oftar en ekki svokölluðum kisuaugum. Svanhvít Valgeirsdóttir, yfirkennari hjá Förðunarskóla Snyrtiakademíunnar, sýnir hvernig mála má slík augu með auðveldum hætti.

Litríkt sumar hjá Saunders
Einkunnarorð Jonathans Saunders fyrir vor og sumar 2011 er fegurð, hreinleiki, bjartsýni og léttleiki.

Litlar dömur og herramenn
Allir fá þá eitthvað fallegt syngja börnin á jólatrésskemmtunum á aðventunni. Enda er það í flestum tilfellum rétt. Börnin fá flest einhvern sparilegan klæðnað fyrir jólin. Úr nógu er að velja eins og sjá má á broti af því sem í boði er í verslunum í bænum.

Lanvin fyrir lítið
Samstarf H&M tískukeðjunnar við víðfræga tískuhönnuði hefur vakið heimsathygli. Nýlega voru frumsýndar á tískupöllunum flíkur frá tískumerkinu Lanvin sem seldar verða í verslunum H&M. Tískukeðjan hefur í gegnum tíðina verið þekkt fyrir lágt verð og hefur

Hár greitt til hægri
Að greiða til hliðar hefur löngum þótt klassísk sparigreiðsla karlmanna. Þetta árið hefur mikið borið á þykkum lubba, vatnsgreiddum til hægri, á höfðum bæði Hollywood-stjarna og tískufyrirsætna og nú eru íslenskir snyrtipinnar einnig farnir að safna hári

Frísklegur Wang
Alexander Wang leit ekki við svörtum lit í sköpun nýjustu línu sinnar og var afraksturinn frískleg og létt lína fyrir næsta ár. Í nýjustu línu hins unga Alexanders Wang mátti ekki sjá eina einustu flík í svörtum lit.

Hafnaði Lars Von Trier
Berglind Rósa Magnúsdóttir hefur hannað falleg barnaföt undir nafninu Beroma frá því í byrjun þessa árs. Vörurnar hafa slegið í gegn enda skemmtilegar og einstakar.