
Veður

Von á skínandi veðri í flestum landshlutum
Veðurstofan gerir ráð fyrir að það ætti að verða skínandi veður í flestum landshlutum og ætti sólin að njóta sín stóran hluta dagsins.

Dálítil slydda eða rigning sunnantil en þurrt annars staðar
Veðurstofan spáir austanátt í dag, víða kalda eða stinningskalda en hægara um landið norðaustanvert. Reikna má með dálítilli slyddu eða rigningu öðru hverju á Suður- og Suðvesturlandi og verður hiti á bilinu núll til fimm stig.

Mældu átján stiga hita á Kvískerjum á miðnætti
Það hlýtur að teljast vorboði að átján stiga hiti hafi mælst á miðnætti á Kvískerjum undir Vatnajökli. Nú mun hins vegar taka að kólna og það frystir víða á landinu í dag.

Strekkingur og votviðri í dag
Búast má við sunnan- og suðvestan strekkingi í dag og hvössum vindstrengjum við fjöll norðantil á landinu í dag. Þá er vætusamt og hlýtt í veðri en úrkomulítið á Norðaustur- og Austurlandi.

Skil mjakast norðaustur yfir landið
Skil mjakast norðaustur yfir landið í dag og fylgja þeim austan og suðaustan tíu til átján metrar á sekúndu og slydda eða snjókoma. Reikna má með hægari vindi um landið austanvert og að víða verði vægt frost.

Rigning eða súld þegar lægð gengur yfir landið
Dálítil lægð gengur nú norðaustur yfir landið og spáir Veðurstofan að víða megi gera ráð fyrir suðvestan átta til fimmtán metrum á sekúndu fyrri part dags og rigning eða súld með köflum. Hiti verður á bilinu tvö til tíu stig.

Norðaustan átt og sums staðar rigning sunnantil
Reikna má með norðaustanátt í dag, víða fimm til þrettán metrum á sekúndi. Sums staðar verður rigning sunnanlands en él fyrir norðan.

Víða rigning en slydda og snjókoma fyrir norðan
Veðurstofan spáir suðlægri átt, þrír til tíu metrar á sekúndur í dag, en á Vestjförðum má reikna með að allhvöss norðaustanátt verði ríkjandi. Spáð er rigningu eða súld með köflum en slyddu eða snjókomu fyrir norðan.

Slydda og rigning sunnantil en þurrt fyrir norðan
Veðurstofan spáir austlægri átt í dag með slyddu eða rigningu á sunnanverðu landinu, en þurrt fram eftir degi fyrir norðan.

Dregur úr vindi og úrkomu í dag
Veðurstofan spáir allhvassri suðvestanátt með éljagangi í fyrstu og eru gular viðvaranir í enn í gildi um landið sunnan- og vestanvert fram eftir morgni.

Gular viðvaranir og má allvíða búast við stormi með snjókomu
Með morgninum fara skil yfir landið og má allvíða búast við suðaustan hvassviðri eða stormi með snjókomu og skafrenningi fyrir hádegi.

Gular viðvaranir á öllu landinu á morgun
Gular veðurviðvaranir verða á öllu landinu á morgun bæði vegna hvassviðris og úrkomu. Búast má við skafrenningi, lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum þegarr líður á morgundaginn.

Kröpp lægð veldur hvassviðri með snjó í nótt og á morgun
Lægðin sem stjórnaði veðrinu í gær er enn á Grænlandshafi en hún hefur grynnst töluvert. Veðrið verður því áfram svipað en vindurinn þó öllu minni, suðvestan átta til fimmtán metrar á sekúndu og éljagangur, en yfirleitt þurrt um landið norðaustanvert.

Lægðin beinir til okkar mjög óstöðugu lofti og líkur á frekari eldingum
Lægðin sem olli óveðri gærdagsins er nú stödd á Grænlandshafi og grynnist smám saman. Lægðin beinir til okkar mjög óstöðugu lofti og í dag verður suðvestlæg átt og víða talsverður éljagangur auk þess sem líkur eru á eldingum.

Óveður að skella á landið og appelsínugular viðvaranir
Appelsínugular viðvaranir verða í gildi víða um land í dag og skellur óveðrið á um upp úr klukkan níu á Faxaflóa og Breiðafirði en skömmu síðar á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra og á Miðhálendinu.

Víða allhvöss suðaustanátt og rigning
Veðurstofan spáir suðaustanátt í dag, víða allhvassri með rigningu eða skúrum, en þurrt á Norðurlandi.

Hvöss suðaustanátt með rigningu og hlýnandi veðri
Veðurstofan spáir nokkuð hvassri suðaustanátt í dag með rigningu og hlýnandi veðri, en snjókomu eða slyddu fram eftir degi norðvestantil á landinu.

Kröpp lægð gengur yfir austanvert landið
Kröpp lægð gengur nú yfir austanvert landið og veldur hún suðaustan hvassviðri eða stormi með rigningu austantil á landinu fram eftir morgni. Mun hægari vindur og úrkomuminna er í öðrum landshlutum.

Gul veðurviðvörun á Austfjörðum
Gul veðurviðvörun tekur gildi á Austfjörðum á miðnætti og gildir til hádegis á morgun. Hvergi annars staðar á landinu er veðurviðvörun.

Lægð nálgast hægt og bítandi úr suðri
Lægð nálgast nú hægt og bítandi úr suðri og skil frá henni ganga nú yfir landið með tilheyrandi umhleypingum.

Vaxandi austanátt og fer að snjóa í kvöld
Veðurstofan spáir suðvestanátt, víða fimm til þrettán metra á sekúndu, og éljum, en léttskýjuðu norðaustan- og austanlands.

Suðlæg átt og slydduél vestan til
Lægðardrag er nú á hreyfingu norðaustur yfir austurhluta landsins og fylgir því suðaustanátt og dálítil rigning eða slydda öðru hvoru á austanverðu landinu í dag. Lægðardragið fjarlægist svo með kvöldinu og rofar þá til fyrir austan.

Hvassviðri og rigning með tilheyrandi leysingum
Djúp lægð suðvestur af landinu veldur suðaustan hvassviðri og rigningu í dag með tilheyrandi leysingum, en á Norðurlandi hangir líklega þurrt fram á kvöld. Gular viðvaranir eru í gildi suðvestantil til um hádegis. Seinnipartinn og í kvöld fer að lægja, fyrst suðvestanlands.

Stormurinn á Suðaustur- og Austurlandi gengur smám saman niður
Alldjúp lægð norðaustur af landinu fjarlægist í dag og mun vestan hvassviðrið og stormurinn á Suðaustur- og Austurlandi því ganga smám saman niður.

Lægð fer norðaustur yfir landið
Febrúarmánuður endar með nokkrum gulum viðvörunum, en lægð fer norðaustur yfir landið í dag. Hvasst verður á landinu norðvestanverðu með éljum og lélegu skyggni en hægari vindur í öðrum landshlutum.

Appelsínugular viðvaranir þegar óveður gengur yfir landið í dag
Djúp lægð, um 950 millibara, er komin inn á Grænlandshaf og sendir hún óveður yfir landið í dag. Appelsínugular eða gular viðvaranir hafa verið gefnar út um allt land.

Hvöss norðanátt víða á landinu
Framan af degi er hvöss norðanátt nokkuð víða á landinu og skafrenningur, auk þess að það snjóar norðan- og austanlands. Það lægir smám saman í dag.

Appelsínugul viðvörun á Vestfjörðum og Snæfellsnesi
Veðurofsinn er ekki alveg yfirgenginn, þá sérstaklega ekki fyrir íbúa Snæfellsness, Vestfjarða og Norðurlands en stormur mun ríða yfir svæðin í dag.

Veðurvaktin: Viðvaranir enn í gildi og miklar samgöngutruflanir
Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi víða um land vegna lægðarinnar sem nú liggur yfir landinu. Þegar fram líður á morgun breytast viðvaranirnar margar hverjar í gular áður en þær falla úr gildi um miðjan dag í dag.

Appelsínugul viðvörun allsstaðar á landinu í kvöld
Verulega slæmu veðri er spáð á landinu öllu í kvöld og í nótt. Gul veðurviðvörun tekur vildi víða um land um miðjan daginn í dag en verður svo að appelsínugulri viðvörun þegar líður á kvöldið.