Veður

Allt að 18 stiga hita að vænta í dag
Hiti á landinu verður á bilinu 8 til 18 stig í dag.

Hiti víðast hvar yfir meðallagi í júní
Meðalhiti í Reykjavík í júnímánuði var 10,2 stig. Er það 1,2 stigum yfir meðallagi sama mánaðar áranna 1961 til 1990, en 0,1 stigi yfir meðallagi síðustu tíu ára.

Skjálfti að stærð 3,1 mældist við Gjögurtá í nótt
Jarðskjálftahrinan fyrir norðan er enn yfirstandandi.

Víða bjartviðri á landinu
Útlit er fyrir fremur hæga norðanátt, þó að suðvestantil megi reikna með vestan 5 til 10 metrum síðdegis.

Víða skúrir og hlýjast austantil
Hitinn á landinu verður á bilinu 8 til 17 stig þar sem hlýjast verður austantil.

Skúraveður í kortunum í dag
Fremur hæg suðvestlæg átt í dag og víða dálitlar skúrir en eftir hádegi má búast við heldur öflugri skúrum norðaustan til á landinu. Hiti átta til nítján stig, hlýjast austanlands.

Má búast við hellidembum, hagli og eldingum
Skammt suður af landinu er 994 mb lægð sem þokast norður og grynnist heldur.

Gæti orðið vart við eldingar eða hagl á Vestur- og Norðurlandi
Reikna má með fremur hægri suðlægri átt og stöku skúrum, en dálítil rigningu norðaustantil fram eftir morgni.

Rigning eða skúrir í dag
Veðurstofan spáir suðlægri átt, fimm til þrettán metrum á sekúndu, og rigningu eða skúrum í dag.

Gott veður og hiti allt að 19 stig á þjóðhátíðardaginn
Samkvæmt spá veðurstofu Íslands verður gott veður í öllum landshlutum í dag á þjóðhátíðardag okkar Íslendinga.

Skilakerfi fer yfir landið með tilheyrandi rigningu og súld
Mest verður vætan sunnanlands, en þó að áttin sé suðlæg mun einnig rigna af og til á Norður- og Austurlandi sem er vissulega gott fyrir gróðurinn á þeim slóðum.

Vara við miklu hvassviðri á norðanverðu Snæfellsnesi í kvöld
Lægð sem er að myndast og dýpka á vestanverðu Grænlandshafi mun dæla til okkar röku og hlýju loft næsta sólarhringinn með tilheyrandi sunnanátt og vætu.

Spá þurru veðri um land allt á 17. júní
Suðlægar áttir verða ríkjandi næstu daga með vætu öðru hverju þegar úrkomubakkar ganga yfir úr vestri.

Allt að 23 stiga hiti
Í dag gengur í sunnanátt, um 5 til 13 metra á sekúndu. Þurrt og bjart verður á Austurlandi, en búast má við rigningu annars staðar.

Hiti gæti farið yfir 20 stig
Í dag má búast við suðlægri átt og fremur hægum vindi, en þó strekkingi vestanlands fram yfir hádegi. Léttskýjað verður á Norðaustur- og Austurlandi, og hitinn þar gæti jafnvel farið yfir 20 stig.

Allt að 18 stiga hiti á landinu í dag
Í dag verður vestlæg eða breytileg átt, 3-8 metrar á sekúndu og skúrir. Léttskýjað verður austantil en rigning norðvestanlands. Þurrt verður að mestu í kvöld.

Allt að 19 stiga hiti á Norðausturlandi
Dagurinn í dag verður fremur vætusamur sunnan- og vestanlands, en gera má ráð fyrir stöku skúri á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti á norðaustanverðu landinu gæti farið upp í allt að 19 stig síðdegis.

Gul viðvörun á Austfjörðum og Suðausturlandi
Gul veðurviðvörun er í gildi á Austfjörðum og Suðausturlandi. Hún gildir til klukkan átta í kvöld.

Hlýjast á höfuðborgarsvæðinu í dag
Allt að 14 stiga hiti verður á Suðvesturhorninu síðdegis.

Hlýjast á Suðausturlandi í dag
Hlýjast verður á Suðausturlandi í dag, en kólnar á landinu norðaustanverðu síðdegis.

Hlýjast á Austurlandi
Hiti verður á bilinu 8 til 17 stig í dag, en hlýjast austan- og suðaustanlands.

Allt að 16 stig á Austurlandi í dag
Útlit er fyrir suðvestan 3-10 m/s í dag með skúrum um vestanvert landið en einkum fyrri hluta dagsins.

Líklegt að fyrstu 20 stig 2020 mælist í dag
Líklegt er að hiti muni ná 20 stigum í fyrsta skipti á landinu á þessu ári í dag. Spár Veðurstofunnar gera ráð fyrir að hitinn gæti farið í 21 stig í Ásbyrgi.

Súld eða rigning sunnan- og vestanlands
Útlit er fyrir sunnan golu eða kalda í dag þar sem súld eða rigning verður viðloðandi sunnan- og vestanlands með hita á bilinu átta til tólf stig.

Hiti allt að tuttugu stig á föstudaginn
Nú er hann lagstur í dæmigerðar sunnanáttir með vætu sunnan- og vestanlands. Reikna má með suðvestan 10 til 18 metra á sekúndu þar sem hvassast verður á norðvestantil.

Allkröpp lægð fer þvert norðaustur yfir landið
Lægðinni fylgir óstöðugt loft með skúradembum eða rigningu og strekkingsvestanvindum, sér í lagi á Suðausturlandi.

Hlýjast fyrir norðan í dag
Hiti á landinu í dag verður á bilinu 6-15 stig. Hlýjast verður á norðurlandi.

Bongó í bænum en varað við veðri undir Vatnajökli
Hiti gæti náð allt að 18 gráðum á höfuðborgarsvæðinu í dag. Gul veðurviðvörun er nú í gildi á Suðausturlandi.

Einn „besti dagur ársins“ á Norðaustur- og Austurlandi
Íbúar Norðaustur- og Austurlands mega búast við að fá „einn besta dag ársins“ hingað til í dag ef spár ganga eftir.

Myndarlegt regnsvæði á leið til landsins á morgun
Útlit er fyrir að veðrið í dag verði svipað og í gær þar sem vindur verður yfirleitt hægur og breytilegur. Má reikna með rúmlega tíu metrum á sekúndu úr austri við suðurströndina.