Veður

Norð­læg átt og élja­gangur norðan- og austan­til

Atli Ísleifsson skrifar
Það dregur aðeins úr frosti og síðdegis má reikna með frosti á bilinu eitt til tíu stig.
Það dregur aðeins úr frosti og síðdegis má reikna með frosti á bilinu eitt til tíu stig. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan spáir norðlægri átt í dag, víða átta til þrettán metrum á sekúndu, en hvassara í vindstrengjum við fjöll suðaustantil á landinu.

Á vef Veðurstofunnar segir að það verði éljagangur á Norður- og Austurlandi, en léttskýjað syðra. Það dregur aðeins úr frosti og síðdegis má reikna með frosti á bilinu eitt til tíu stig.

Útlit er fyrir svipað veður á morgun, en hægari vindi og úrkomulitlu á miðvikudag. Þá herðir frostið aftur.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: Norðan 8-15 m/s, en 15-23 á suðaustanverðu landinu. Él á Norður- og Austurlandi, en bjartviðri sunnan- og suðvestanlands. Frost 2 til 10 stig.

Á miðvikudag: Norðvestan 8-13 austast, annars hægari norðlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum og dálítil él við norður- og austurströndina. Talsvert frost.

Á fimmtudag: Suðaustanátt, skýjað og dálítil snjókoma sunnan- og vestanlands. Frost 0 til 12 stig, kaldast norðaustantil.

Á föstudag: Suðlæg átt og víða rigning eða slydda, en úrkomulítið norðaustanlands. Hlýnar í bili.

Á laugardag og sunnudag: Vestlæg eða breytileg átt og él, en snjókoma um tíma austanlands. Kólnandi veður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×