Viðskipti erlent

Skattar auknir hjá norska olíuiðnaðinum
Norska ríkisstjórnin leggur til að skattbyrðin verði aukin hlutfallslega á olíuiðnaðinn í landinu til að ýta undir vöxt í öðrum geirum atvinnulífsins.

Atvinnuleysistölur á Spáni vekja litla gleði
Nýjar atvinnuleysistölur á Spáni sýna að skráð atvinnuleysi minnkaði um 0,9% í apríl miðað við fyrri mánuð. Þetta vekur þó litla gleði enda er þessi minnkun tímabundin þar sem veitingahús og hotel hafa verið að ráða fólk til að mæta ferðamannastrauminum í sumar.

Peningarnir flæða inn í kassann hjá Lego
Peningarnir flæða inn í kassan hjá danska leikfangarisanum Lego. Hagnaður Lego á síðasta ári nam tæpum 6,3 milljörðum danskra kr. eða tæplega 130 milljörðum króna eftir skatta. Þetta er hátt í tvöfalt meiri hagnaður en árið áður.

Reikna með 1.500 milljarða hagnaði hjá Toyota
Reiknað er með að bílaframleiðandinn Toyota skili hagnaði upp á 1,3 trilljónir jena eða um 1.500 milljarða króna á síðasta rekstrarári sínu sem lauk í mars s.l. Þetta er nærri fjórfaldur hagnaður miðað við fyrra ár.

Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar áfram
Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að hækka og um tíma í morgun fór verðið á Brent olíunni yfir 105 dollara á tunnuna en hefur aðeins gefið eftir síðan.

Konur eru lykillinn að framtíðarauðlegð
Konur eru lykillinn að auðlegð Bandaríkjanna í framtíðinni, segir Warren Buffett, einn auðugasti maður Bandaríkjanna. Hann segist vera bjartsýnn á efnahagsástandið framundan vegna þess að Bandaríkjamenn séu farnir að gera sér grein fyrir mætti kvenna. Þetta sagði hann í grein sem hann ritaði í Fortune tímaritið.

Gott uppgjör hjá Actavis, eign Björgólfs eykst um 1,2 milljarða
Samheitalyfjafyrirtækið Actavis skilaði mun betra uppgjöri á fyrsta ársfjórðungi en sérfræðingar höfðu spáð. Eftir birtingu uppgjörsins hækkuðu hlutir í Actavis um rúm 2% en það þýðir að hlutafjáreign Björgólfs Thors Björgólfssonar jókst um 1,2 milljarða króna á markaðinum í New York í gærdag.

Iron Man 3 slær aðsóknarmet í Kína
Kvikmyndin Iron Man 3 hefur slegið öll fyrri aðsóknarmet í Kína. Tekjurnar af henni námu 21 milljón dollara, eða tæplega 2,5 milljörðum kr., á frumsýningardegi myndarinnar þar í landi.

Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar töluvert
Heimsmarkaðsverð á olíu hækkað töluvert eða um rúm 2% í gærdag. Tunnan af Brent olíunni er komin í tæpa 103 dollara og tunnan af bandarísku léttolíunni er komin yfir 93 dollara.

Hamingja eykst eftir því sem fólk er ríkara
Peningar skapa hamingju, ef marka má niðurstöður nýrrar könnunar sem byggir á gögnum frá Capacent og Financial Times greinir frá.

Stýrivextir í Danmörku komnir niður í 0,2%
Seðlabanki Danmerkur hefur lækkað stýrivexti sína um 0,1 prósentu og eru þeir þar með komnir niður í 0,2%. Hafa þessir vextir aldrei verið lægri í sögu landsins.

Reuters: Þýskaland hagnast vel á kreppunni í Evrópu
Þýskaland hefur hagnast vel á kreppunni í Evrópu sem og flest önnur ríki í norðanverðri álfunni. Á sama tíma hafa stjórnvöld í þessum ríkjum sagt að þau muni ekki þola að skattgreiðendur þeirra borgi með öðrum löndum sem þurft hafa á aðstoð að halda.

Seðlabanki Evrópu lækkar stýrivexti sína
Seðlabanki Evrópu (ECB) lækkaði stýrivexti sína í hádeginu eins og flestir sérfræðingar höfðu búist við. Stýrivextirnir voru lækkaðir um 0,25 prósentur eða niður í 0,5%. Hafa þessir vextir aldrei verið lægri í sögunni.

Forstjórastarf Century Aluminum gaf af sér 250 milljónir í fyrra
Michael Bless forstjóri Century Aluminum, móðurfélag Norðuráls, fékk samtals tæpar 2,2 milljónir dollara eða um 250 milljónir króna í laun, bónusa og kaupréttargreiðslur á síðasta ári.

Ríkustu Rússarnir fela auð sinn á aflandseyjum
Alisher Usmanov auðugasti maður Rússlands færði stjórnina á 20 milljarða dollara auðæfum sínum til eignarhaldsfélags á Bresku Jómfrúreyjum í desember á síðasta ári, en þær eru í tæplega 9.000 kílómetra frá Moskvu.

Hlutir í Danske Bank snarlækka eftir lélegt uppgjör
Verð á hlutum í Danske Bank hefur hríðlækkað í kauphöllinni í Kaupmannahöfn í morgun. Á fyrstu fimm mínútunum eftir að opnað var fyrir viðskipti féllu hlutir í bankanum um 3,7%.

Minnsta atvinnuleysi í Danmörku síðan árið 2009
Atvinnuleysi hefur ekki mælst minna í Danmörku síðan árið 2009. Nýjar tölur frá hagstofu landsins sýna að atvinnuleysið var 5,8% í mars og minnkaði um 0,1% frá fyrra mánuði.

Pinewood kvikmyndaverið haslar sér völl vestan hafs
Breska kvikmyndaverið Pinewood hefur tilkynnt um byggingu fyrsta hljóðvers síns í Bandaríkjunum. Kvikmyndaverið mun bera heitið Pinewood Atlanta en það verður byggt á stórri lóð fyrir sunnan borgina Atlanta í Georgíu.

Century Aluminum kaupir álver af Rio Tinto Alcan
Century Aluminum, móðurfélag Norðuráls, hefur gengið frá kaupum á bandarísku álveri af Rio Tinto Alcan móðurfélagi álversins í Straumsvík.

Veruleg lækkun á vöxtum á ítölskum skuldabréfum
Vextirnir á ítölskum ríkisskuldabréfum til tíu ára hafa ekki verið lægri í tvö og hálft ár eða síðan í október árið 2010.

Hótel d'Angleterre opnar að nýju 1. maí
Hið sögufræga Hótel d'Angleterre opnar að nýju þann 1. maí eftir mestu endurnýjun hótels í sögu Danmerkur. Því er ætlað að verða fremsta hótelið í Norður Evrópu.

Nærfatarisi í deilum við kristna fyrirsætu
Nærfatarisinn Victoria´s Secret er komið í deilur við fyrirsætuna fyrrverandi Kylie Bisutti. Fyrirsætan hætti að starfa sem slík í fyrra þar sem þetta starf samræmdist ekki kristilegum gildum hennar en Kylie mun vera strangtrúuð.

Dreamliner þoturnar aftur á loft
Langri martröð Boeing flugvélaverksmiðjanna er lokið því flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum og Japan hafa aflétt kyrrsetningu sinni á þessum þotum. Boeing hefur endurbætt rafhlöðukerfi Dreamliner en eins og kunnugt er af fréttum voru þoturnar kyrrsettar í janúar s.l. eftir að rafhlaða brann yfir í einni þeirra.

Grikkir segja upp 15.000 opinberum starfsmönnum
Gríska þingið samþykkti í gærdag lög sem gera stjórnvöldum þar í landi kleyft að segja upp 15.000 opinberum starfsmönnum fyrir árslok árið 2014.

Aflabrestur hjá skoskum humarveiðimönnum, verðið rýkur upp
Óvenju kalt veður í vetur hefur valdið aflabresti hjá skoskum humarveiðimönnum. Það hefur svo aftur leitt til þess að verðið á humrinum hefur rokið upp.

Baltasar Kormákur og CCP taka höndum saman
Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP og leikstjórinn Baltasar Kormákur hafa tekið höndum saman. Baltasar mun framleiða þáttaröð fyrir sjónvarp sem byggir á söguheim fjölspilunarleiksins EVE Online.

Sir Winston Churchill á nýjum 5 punda seðli
Andlit Sir Winston Churchill fyrrum forsætisráðherra Bretlands verður á nýjum 5 punda seðli sem tekinn verður í notkun árið 2016.

Suður Kóreumenn yfirgefa iðnaðarsvæðið í norðri
Stjórnvöld í Suður Kóreu hafa kallað heim alla þegna sína sem unnið hafa á iðnaðarsvæðinu Kaesong sem liggur í Norður Kóreu um 10 kílómetra frá landamærunum. Um 175 manns er að ræða.

Actavis nær samkomulagi við Shire um ofvirknilyf
Actavis og Watson Pharma hafa náð samkomulagi við lyfjaframleiðandann Shire um framleiðslu á samheitalyfi af lyfinu Intuniv sem notað er gegn ofvirkni og athyglisbrest.

Í Kaupmannahöfn mun skorta 17.000 íbúðir innan 5 ára
Ef svo heldur sem horfir mun skorta 17.000 íbúðir í Kaupmannahöfn að fimm árum liðnum.