Viðskipti erlent
211 212 213 214 215 216 217 218 219 … 334 ›
Leysa þarf vanda evruríkja án tafar Verði skuldavandi evruríkjanna ekki leystur án tafar gæti það leitt til þess að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn ráði ekki yfir nægum fjármunum til að aðstoða önnur ríki í vanda. Þetta er mat seðlabankastjóra Kína og framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Viðskipti erlent 25.9.2011 12:00
Mótmælendur handteknir á Wall Street Um áttatíu mótmælendur voru í gær handteknir skammt frá kauphöllinni í New York en stíf mótmæli hafa verið á Wall Street undanfarna viku. Mótmælendurnir eru að andmæla kapítalisma og björgun bankanna. Viðskipti erlent 25.9.2011 11:45
Vikan endaði í smávegis plús Hlutabréfavísitölur í helstu kauphöllum heimsins hækkuðu lítillega í gær eftir sleitulítið verðfall í vikunni. Viðskipti erlent 24.9.2011 10:00
Markaðir í Evrópu enn í niðursveiflu Markaðir í Evrópu eru enn í rauðum tölum eftir stórfall beggja vegna Atlantsála í gær. G20 ríkin hafa boðað aðgerðir til að bregðast við sveiflum á mörkuðum. Viðskipti erlent 23.9.2011 12:23
Hækkanir við opnun markaða - sérfræðingar þó enn svartsýnir Þegar markaðir opnuðu í Evrópu klukkan sjö í morgun hækkuðu helstu vísitölur nokkuð, FTSE vísitalan í London hækkaði um eitt prósent við opnun en hefur nú lækkað á ný um hálft prósent. Svipaða sögu var að segja í París og í Frankfurt og þar var dálítil hækkun strax við opnun. Viðskipti erlent 23.9.2011 07:52
Verðfallið hélt áfram í Asíu Hlutabréf í Asíu héldu áfram að lækka við lokun markaða þar í nótt og fylgja lækkanirnar í kjölfarið á mikilli lækkun í Evrópu og Bandaríkjunum í gær. Vikan sem er að líða er því sú versta fyrir hlutabréfamarkaðina frá árinu 2008. Viðskipti erlent 23.9.2011 06:41
Christine Lagarde: Heimurinn er á hættulegum stað Framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sagði efnahagsástandið væri á hættulegum stað vegna þeirra snörpu dýfu sem fjármálaheimurinn tók í dag eftir að seðlabanki Bandaríkjanna varaði við verulegri efnahagslegri hættu. Viðskipti erlent 22.9.2011 15:48
Ekkert lát á lækkunum Ekkert lát hefur orðið á lækkunum á mörkuðum í Evrópu í dag. Hlutabréf í bönkum, námufyrirtækjum og olíufyrirtækjum hafa lækkað mest en fjárfestar óttast enn ástandið í Grikklandi og ástand efnahagsmála heimsins almennt. Lækkanirnar í Evrópu koma í kjölfarið á lækkunum í Bandaríkjunum í gær og þá lækkuðu helstu vísitölur í Asíu fyrir lokun í nótt. FTSE vísitalan í London hefur lækkað um um 4,75 prósent það sem af er degi, DAX vísitalan í Frankfurt hefur lækkað um 4,37 og CAC vísitalan í París hefur hrunið um fimm prósent.. Viðskipti erlent 22.9.2011 12:11
Rauðar tölur á mörkuðum í Evrópu Miklar lækkanir urðu á mörkuðum í Evrópu við opnun í morgun. Hlutabréf í bönkum, námufyrirtækjum og olíufyrirtækjum urðu verst úti en fjárfestar óttast enn ástandið í Grikklandi og ástand efnahagsmála heimsins almennt. Lækkanirnar í Evrópu koma í kjölfarið á lækkunum í Bandaríkjunum í gær og þá lækkuðu helstu vísitölur í Asíu fyrir lokun í nótt. FTSE vísitalan í London lækkaði um 3,2 prósent við opnun og DAX vísitalan í Frankfurt fór niður um 3,5 prósent. Viðskipti erlent 22.9.2011 08:55
Grikkir efna til verkfalla - mikil mótmæli í Aþenu Verkföll lama nú samfélagið í Grikklandi en allar almenningssamgöngur hafa stöðvast í sólarhringsverkfalli sem ætlað er að mótmæla niðurskurðartillögum ríkisstjórnarinnar. Þá er búist við gríðarlegu fjölmenni þegar opinberir starfsmenn koma saman í Aþenu í dag til að mótmæla. Viðskipti erlent 22.9.2011 08:25
Ikea opnar sérstakt karlaland Ikea í Melbourne í Ástralíu ætlar að taka upp á þeirri nýbreytni að bjóða upp á sérstakt karlaland í verslun sinni. Þessi hluti verslunarinnar verður, eðli málsins samkvæmt, einungis opinn körlum. Hugmyndin er sú að þetta verði nokkurs konar athvarf fyrir karlmenn þar sem þeir geti borðað ókeypis pylsur, horft á íþróttir og spilað Xbox tölvuleiki á meðan betri helmingurinn skoðar húsgögn og annað þarfaþing fyrir heimilið. Viðskipti erlent 21.9.2011 23:48
Bill Gates er ríkasti maður Bandaríkjanna Bill Gates, stofnandi Microsoft, trónir á toppi nýs lista tímaritsins Forbes yfir ríkustu menn í Bandaríkjunum. Þar með skýtur hann mönnum eins og Warren Buffet ref fyrir rass. Viðskipti erlent 21.9.2011 19:32
Nýr iPhone kynntur 4. október Tim Cook, forstjóri Apple, mun kynna nýjan iPhone 5 til sögunnar þann 4. október næstkomandi á stórum fjölmiðlaatburði í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 21.9.2011 13:00
AGS telur hagkerfið hafa veikst umtalsvert Alþjóðahagkerfið hefur veikst umtalsvert á síðastliðnum mánuðum, segir í árshlutaskýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Úrræðaleysi ríkisstjórna hefur orðið til þess að bæta við þau vandamál sem liggja í loftinu. Alþjóðagjaldeyrissjóðiurinn segir að hagkerfið í Bretlandi muni vaxa hægar en áður var gert ráð fyrir. Gert var ráð fyrir 1,5% hagvexti en samkvæmt skýrslunni er nú gert ráð fyrir 1,1% hagvexti. Stjórnvöld í Bretlandi gera aftur á móti enn ráð fyrir 1,7% hagvexti en viðurkenna að sú tala muni lækka þegar spáin verður endurskoðuð næst. Viðskipti erlent 20.9.2011 18:18
Lækkunin af pólitískum toga Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, segir að ástæða þess að matsfyrirtækið Standard & Poor's hafi lækkað lánshæfismat landsins gærkvöldi sé af pólitískum toga en ekki vegna raunverulegrar stöðu ríkissjóðs Ítalíu. Viðskipti erlent 20.9.2011 15:27
S&P lækkar lánshæfi Ítalíu Matsfyrirtækið Standard&Poors hefur lækkað lánshæfi ríkissjóðs Ítalíu úr A plús niður í A og segir fyrirtækið horfur til framtíðar vera neikvæðar. Í skýringum með ákvörðuninni segir að lítil trú sé til þess að Ítölum takist að draga úr ríkisútgjöldum og koma lagi á fjármál sín. Viðskipti erlent 20.9.2011 07:18
Vilja niðurskurð og betri skattheimtur í Grikklandi Grikkland þarf betri skattheimtur og meiri niðurskurð, en ekki skattahækkanir. Með því má koma í veg fyrir frekari áföll í efnahagslífi landsins. Þetta kom fram í máli forystumanna Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í dag. Viðskipti erlent 19.9.2011 19:45
Obama tilkynnti niðurskurðartillögur í dag Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur kynnt áætlanir sínar til þess að draga úr fjárlagahalla Bandaríkjanna og örva hagvöxt. Á fundi í Hvíta húsinu í dag sagði hann að nauðsynlegt væri að skerða framlög til heilbrigðismála en hann sagði jafnframt að hinir auðugu yrðu að greiða hærri skatta. Viðskipti erlent 19.9.2011 18:38
Segir Grikki gerða að blórabögglum Gríski fjármálaráðherrann Evangelos Venizelos fundar síðar í dag með fulltrúum Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins en hann er harðorður í garð stofnananna í fjölmiðlum í dag og segir að verið sé að nota Grikki sem blóraböggul og að harðari aðgerðir gegn þeim miði einungis að því að fela lélegan árangur forsvarsmanna þeirra í að takast á við krísuna. Viðskipti erlent 19.9.2011 13:01
Gríska ríkisstjórnin á neyðarfundi Gríska ríkisstjórnin kom í morgun saman á neyðarfundi en ótti manna um að ríkið verði gjaldþrota fer nú vaxandi með hverjum deginum sem líður. George Papandreu aflýsti í gær ferð sem hann ætlaði að fara til Bandaríkjanna til þess að vera viðstaddur aðalþing Sameinuðu Þjóðanna og fund hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Neyðarfundurinn snerist um nýjar niðurskurðartillögur sem miða að því að tryggja Grikkjum frekari lánveitingar en gríska dagblaðið To Vima fullyrðir að lánadrottnar landsins hafi sett ný skilyrði fyrir frekari lánum, meðal annars, að segja þurfi upp 20 þúsund ríkisstarfsmönnum. Leiðtogar á evrusvæðinu munu ákveða í Október hvort Grikkjum verði veitt frekari lánafyrirgreiðsla. Viðskipti erlent 19.9.2011 08:08
Hátekjuskattar bandaríkjaforseta í bígerð Barack Obama bandaríkjaforseti skipuleggur nú tillögur sínar um hátekjuskatta í Bandaríkjunum til að tryggja að þeir greiði allavega jafn háa skatta og þeir efnaminni. Tillögurnar eru kallaðar Buffet-reglan eftir milljarðamæringnum Warren Buffet en skrifaði grein í The New York times í sumar þar sem hann kallaði eftir hátekjusköttum og sagði hina ofurríku ekki leggja hönd á plóg í þeim efnahagsþrengingum sem bandaríski ríkissjóðurinn hefur gengið í gegnum. Samkvæmt upplýsingum úr Hvíta Húsinu stefnir Obama að því að kynna tillögur sínar á morgun. Heimildir breska ríkisútvarpsins herma að nýr skattur muni áhrif á þá sem hafa eina milljón bandaríkjadala eða meira í árstekjur. Viðskipti erlent 18.9.2011 10:04
Ræðst til atlögu gegn ofurlaunum Vince Cable, viðskiptaráðherra Bretlands, ætlar að uppræta ofurlaunastefnu í einkareknum fyrirtækjum. Viðskipti erlent 17.9.2011 22:40
Græða margar milljónir á New York New York er orðið að vörumerki sem skilar hundruðum milljóna króna í opinbera sjóði í fylkinu. Eins og mörgum er kunnugt um hafa alls kyns vörur merktar “I Love New York” selst vel á liðnum árum og njóta kaffibollar, stuttermabolir og ilmvötn með slíkri merkingu töluverðra vinsælda. Viðskipti erlent 17.9.2011 15:27
Brown líkir ástandinu við fall Lehman Brothers Gordon Brown, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, segir að efnahagskreppan í Evrópu sé hættulegri en fall Lehman Brothers fyrir þremur árum. Hann segir raunverulega hættu á því að kreppan geti orðið erfiðari en hún var árið 1930, verði ekki gripið til ráðstafana. „Evran getur ekki braggast í óbreyttu formi og við munum þurfa að breyta henni verulega,“ sagði Brown á ráðstefnu World Economic Forum. Viðskipti erlent 17.9.2011 15:01
Strangari fjárlagareglur í ESB Fjármálaráðherrar Evrópusambandsins hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um strangari reglur um ríkisfjárlög. Þær gera Evrópusambandinu meðal annars auðveldara að samþykkja refsiaðgerðir á hendur þeim ríkjum sem brjóta þessar reglur. Jasek Ratovski, fjármálaráðherra Póllands, sagði að samkomulag um þetta hefði náðst á fundi ráðherranna í Póllandi í gær. Viðskipti erlent 17.9.2011 02:00
Myndi engan vanda leysa „Grikklandi verður að bjarga. Annað kemur ekki til greina,“ segir Philippe de Buck, framkvæmdastjóri BUSINESSEUROPE, samtaka evrópska iðnaðarins. „Ástæðan er sú að við getum ekki látið Spán og Ítalíu falla. Það væri óhugsandi.“ Viðskipti erlent 16.9.2011 05:00
Fjarlægðu „gyðinga-app“ úr iPhone Tölvurisinn Apple hefur látið fjarlægja smárforrit úr iPhone-símanum í Frakklandi en það ber yfirskriftina: „Gyðingur eða ekki gyðingur.“ Viðskipti erlent 15.9.2011 10:48
Auðævi erfingja Jacksons margfaldast Verðmæti eigna poppgoðsagnarinnar Michael´s Jacksons hafa aukist um 310 milljónir bandaríkjadala á þeim tveimur árum sem liðin eru frá því að hann lést. Upphæðin nemur 36 milljörðum íslenskra króna. Viðskipti erlent 14.9.2011 12:36
Vísitölur lækkuðu í morgun Flestar vísitölur lækkuðu við opnun markaða í Evrópu í morgun. FTSE vísitalan í London lækkaði um hálft prósent, í Frakklandi lækkaði CAC vísitalan um eitt og hálft prósent og í Frankfurt fór DAX vísitalan niður um 1,2 prósent. Viðskipti erlent 14.9.2011 08:34
Moody's lækkar lánshæfi franskra banka Matsfyrirtækið Moodys hefur lækkað lánshæfi tveggja franskra banka, Credit Acricole og Societe Generale, en sérfræðingar óttast að bankarnir séu illa staddir vegna mikillar lánafyrirgreiðslu til Grikklands. Hlutabréf í bönkunum hafa fallið um 60 og 65 prósent frá því í febrúar og þriðji bankinn, BNP Paribas hefur lækkað um 53 prósent. Moodys ákvað að lækka ekki einkun þess banka en segir þó líkur á lækkun í nánustu framtíð. Viðskipti erlent 14.9.2011 06:31