Viðskipti erlent

Bílarisi lokar þúsund bílasölum
Bílarisinn General Motors hyggst loka 1100 bílasölum víðsvegar um Bandaríkin. Um er að ræða hluta af gríðarlegri endurskipulagningu fyrirtæksins sem hefur farið illa út úr kreppunni.

Casper varð milljónamæringur á Klovn þáttunum
Íslandsvinurinn Casper Christensen er orðinn milljónamæringur, í dönskum krónum, á hinum vinsælu sjónvarpsþáttum Klovn sem sýndir hafa verið hérlendis.

Norska ríkið hefur fengið Kaupþingsfé sitt endurgreitt
Kristin Halvorsen fjármálaráðherra Noregs segir að yfirtakan á starfsemi Kaupþings í Noregi hafi endað á farsælan hátt. Ríkissjóður Noregs hafi nú fengið allt endurgreitt sem sjóðurinn lagði út til innistæðueigenda hjá Kaupþingi í Noregi eftir bankahrunið s.l. haust.

Heimsmarkaðsverð á áli í niðursveiflu
Heimsmarkaðsverð á áli hefur verið í niðursveiflu þessa vikuna eftir að orðrómur komst á kreik í upphafi vikunnar um að Kínverjar ætluðu að hefja framleiðslu á ný í nokkrum álvera sinna sem staðið hafa lokuð um hríð.

Kaupþing seldi 4,5% í Storebrand í morgun
Gengið var frá sölunni á 4,5% hlut Kaupþings í norska tryggingar- og fjármálafyrirtækinu Storebrand í morgun. Söluverðið var nokkuð undir 10 milljörðum kr.

Chrysler lokar 800 bílasölum
Bílaframleiðandinn Chrysler mun á næstunni loka 800 af 3.200 bílasölum sínum í Bandaríkjunum til að vinna sig hraðar út úr gjaldþrotinu, sem hluti fyrirtækisins sætti.

Kaupþing selur í Storebrand - gæti fengið 10 milljarða
Kaupþing í Bretlandi hefur ákveðið að selja 4,5% hlut sinn í norska tryggingarfélaginu Storebrand. Hugsanlega fær bankinn rúma 10 milljarða kr. fyrir hlutinn.

Dóttir mafíuforingja úrskurðuð gjaldþrota
Fjármálakreppan hefur nú læst klónum í eina umtöluðustu raunveruleikaþáttastjörnu Bandaríkjanna Victoriu Gotti, dóttur hins alræmda mafíuforingja John Gotti. Victoria hefur sumsé verið úrskurðuð persónulega gjaldþrota.

Schwarzenegger vill selja San Quentin fangelsið
Arnold Schwarzenegger ríkisstjóri Kaliforníu leggur í dag fram tillögu um að selja San Quentin fangelsið og fleiri þekktar byggingar í ríkinu til að fá meira fé í ríkiskassann.

Japanskar húsmæður veðja á veikingu jensins
Sjálfstæðir fjárfestar í Japan þ.e. húsmæður, ellilífeyrisþegar og viðskiptamenn, veðja nú á það í miklum mæli að jenið muni veikjast þegar meiri stöðugleiki kemst á efnahag landsins.

Tap á íslensku bönkunum verður kosningamál í Kent
Kjördæminu Kent í Englandi er stjórnað af Íhaldsflokknum sem raunar hefur mikinn meirihluta í sveitarstjórnum héraðsins. En kosningar eru framundan og tap sveitarstjórnanna á íslensku bönkunum verður eitt af kosningarmálunum.

Noregur og Leichtenstein verða áfram í EES
Stjórnvöld Noregs og Leichtenstein eru sammála um að halda áfram með EES-samninginn þrátt fyrir að Ísland gangi í Evrópusambandið.

Segir hættu á lækkuðu lánshæfismati Bandaríkjanna
Bandaríkin eiga á hættu að lánshæfismat landsins verði lækkað úr toppeinkunninni AAA í fyrsta sinn síðan árið 1917. Þetta kemur fram í lesendabréfi sem David Walker fyrrum ríkisendurskoðandi Bandaríkjanna skrifar í Financial Times í dag og hefur farið sem logi um akur á viðskiptavefum heimsins.

ESB sektaði Intel um 180 milljarða króna
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur sektað bandaríska örgjörvaframleiðandann Intel um jafnvirði ríflega 180 milljarða íslenskra króna, fyrir að hamla samkeppni og brjóta gegn samkeppnislögum. Sektin er sú hæsta sem sambandið hefur lagt á eitt fyrirtæki

Býður 1,6 milljóna lán með 0% vöxtum í eitt ár
Handelsbanken í Svíþjóð býður nú upp á 100.000 sænskra kr. lán, eða 1,6 milljón kr., með 0% vöxtum í eitt ár. Lánið er ekki bundið við Svíþjóð því samkvæmt frétt á börsen.dk geta Danir einnig fengið þessi lán hjá bankanum.

Metfé fékkst fyrir sjaldgæfan bláan demant
Metfé fékkst fyrir sjaldgæfan bláan demant á uppboði hjá Sotheby's í Genf en hann var sleginn á 6,2 milljónir punda eða um 1,2 milljarð kr.

Danir hætta við neyðaraðstoð til Lettlands
Danski seðlabankinn, Nationalbanken, hefur ákveðið að framlengja ekki gjaldmiðlaskipasamningi sínum við Lettland sem hefur veitt Lettlandi mikilvæga neyðaraðstoð í formi aðgengis að evrum í skiptum fyrir lats. Um er að ræða samskonar samning og Ísland hefur við seðlabanka í þremur Norðurlandanna.

Dönsk eyja til sölu suður af Fjóni
Fyrir 11,5 miljónir danskra kr., eða 264 milljónir kr., er nú hægt að festa kaup á lítilli eyju, Svelmö, sem liggur við suðurströndin á Fjóni í Danmörku.

Þrotabú Chrysler erfiður ljár í þúfu
Allt að tvö ár getur tekið að fara gegnum þrotabú Chrysler-verksmiðjanna eftir að ítalski bílaframleiðandinn Fiat keypti stærstan hluta fyrirtækisins. Þeir 60 dagar, sem Barack Obama Bandaríkjaforseti gaf til verksins, hrökkva því að öllum líkindum skammt.

Aftur mótmæli í London vegna Kaupþings
Stuðningsfólk Iðnaðar og vísindasafnsins (MOSI) í Manchester ætlar að efna til mótmæla við Westminster, þinghúsið í London, vegna tap safnsins á hruni Singer & Friedlander banka Kaupþings í Bretlandi. Safnið átti 900.000 pund eða rúmlega 170 milljónum kr. á reikningi hjá bankanum.

Tap deCODE minnkar um helming
Tap deCODE á fyrsta ársfjórðungi ársins minnkaði um helming miðað við sama tímabil í fyrra. Tapið fór úr 26,7 milljónum dollara og niður í 12,6 milljónir dollara eða rúmlega 1,5 milljarð kr. í ár.

Bjartsýnin dvínar á Wall Street, hlutabréf falla í verði
Hlutabréfamarkaðurinn á Wall Street opnar með rauðum tölum í dag og greinilegt að bjartsýnin sem einkennt hefur markaðinn á síðustu dögum fer dvínandi.

Hörð kreppa framundan fyrir kaffiunnendur
Slæmar fréttir eru í vændum fyrir kaffiunnendur og sérstaklega þá sem nota sykur í kaffið sitt. Heimsmarkaðsverð á kaffi og sykri hefur hækkað gífurlega frá áramótum og er þeirra hækkana farið að gæta á neytendamarkaðinum.

Fyrrum Kaupþingsstjóri ráðinn bankastjóri Bretadrottningar
Michael Morley fyrrum yfirmaður eignastýringar hjá Singer & Friedlander, banka Kaupþings í Bretlandi, hefur verið ráðinn sem forstjóri Coutts, banka Elísabetar Bretadrottningar.

Vorið byrjar vel hjá McDonald‘s
Hátekjuskattar þeir sem boðaðir voru í fjárlagafrumvarpinu sem breski fjármálaráðherrann Alistair Darling kynnti þann 22. apríl síðastliðinn hafa hlotið misjöfn viðbrögð.

Ráðherra ver milljarða innspýtingu
„Ástandið kemur ekki til með að breytast á einni nóttu,“ segir Kaoru Yosano, fjármálaráðherra Japans, en aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa verið gagnrýndar.

Tekist á um Arsenal
Kaupsýslumaðurinn Stephen Perry reynir hvað hann getur til að tryggja dreifða eignaraðild í enska knattspyrnufélaginu Arsenal. Bandaríski viðskiptajöfurinn Stan Kroenke sem á 28,3% hlut í félaginu reyndi nýverið að fjárfesta í 8% sem er í eigu Carr-fjölskyldunnar. Þá er búist við að rússenski stálrisinn Alisher Usmanov blandi sér einnig í baráttuna en nú þegar á hann 25% hlut í knattspyrnufélaginu.

Breskir fasteignasjóðir töpuðu 37 milljörðum á bankahruninu
Alls hafa 13 af 45 fasteignasjóðum (building societies) Bretlands tilkynnt um að hafa tapað á hruni íslensku bankanna í haust. Í heildina nemur tapið 195 milljónum punda eða um 37 milljörðum kr.

Kröfuhafar Landsbankans á Guernsey fá 25% í ágúst
Þeir sparifjáreigendur sem áttu innistæður hjá Landsbankanum á Guernsey munu fá 25% af þeim borgaðar út í ágúst n.k. Þetta kemur fram í frétt á BBC en fólkið hefur þegar fengið 30% af fé sínu endurgreitt.

Störfum fækkaði um hálfa milljón á mánuði
Í aprílmánuði fækkaði störfum um 539 þúsund í Bandaríkjunum sem er talsvert minna en undanfarna mánuði. Spár gerðu ráð fyrir að 600 þúsund störf myndu tapast. Í mars fækkaði störfunum um 699 þúsund. Frá því í desember 2007 hefur efnahagslíf Bandaríkjanna tapað 5,7 milljón starfi.