
Viðskipti erlent

Aeroflot keppir við Icelandair um kaupin á CSA
Rússneska flugfélagið Aeroflot ætlar sér að bjóða í tékkneska ríkisflugfélagið Czech Airlines (CSA) og mun þar keppa meðal annars við Travel Service sem er dótturfélag Icelandair í Tékklandi.

Nýbúar halda fasteignamarkaði Kaupmannahafnar á floti
Á vissum svæðum í Kaupmannahafnarborg eru það nýbúar sem standa á bakvið sjö af hverjum tíu fasteignakaupum. Að hluta til skýrist það af því að þeir lána hver öðrum fyrir kaupum á íbúðum eða húsum.

Arabískir olíusjeikar á flótta frá Las Vegas
Vellauðugir olíusjeikar frá Dubai eru nú að koma sér undan því að fjárfesta áfram í stærsta hóteli og spilavíti Las Vegas borgar. Las Vegas hefur orðið illilega fyrir barðinu á fjármálakreppunni og viðskiptin þar eru ekki nema svipur hjá sjón m.v. fyrri ár.

Danir fjárfesta í gulli og silfri sem aldrei fyrr
Hin mikla óvissa sem ríkt hefur á fjármálamörkuðum undanfarna mánuði gerir það nú að verkum að Danir fjárfesta í gulli og silfri sem aldrei fyrr. Gullkaup Dana á fyrstu mánuðum þessa árs eru um 40% meiri en á sama tíma í fyrra.

Grimsby hagnast á erfiðleikum Íslands
Fisksalar í Grimsby brosa nú út að eyrum þar sem íslensk fiskiskip eru aftur byrjuð að sigla til þessarar sögufrægu hafnarborgar og selja þar afla sinn eftir 12 ára stopp.

Heimsmarkaðsverð á olíu skríður yfir 54 dollara
Heimsmarkaðsverð á olíu skreið yfir 54 dollara á tunnuna í gærkvöldi í kjölfarið á mikilli uppsveiflu á mörkuðunum á Wall Street. Hækkun gekk síðan aðeins til baka í morgun er verðið lá í kringum 53,80 dollara.

Kröfur í þrotabú Glitnir Privatökonomi nema 700 milljónum
Kröfur í þrotabú fyrrum fjármálaþjónustu Glitnis í Noregi, Glitnir Privatökonomi, nema nú yfir 40 milljónum norskra kr. eða yfir 700 milljónum kr.

Facebook fyrir 20.000 sterkefnuð svín
Stofnandi vefsíðunnar Affluence.org lýsir henni sjálfur sem ...“Facebook fyrir sterkefnuð svín“. Um er að ræða vefsíðu þar sem meðlimir verða að eiga a.m.k. 60 milljónir kr. í handraðanum eða vera með árslaun sem nema hátt í 40 milljónum kr.

Hækkun á Asíumörkuðum
Hlutabréf á mörkuðum í Asíu hækkuðu í verði í morgun með aukinni trú fjárfesta á að nýjustu áætlanir Timothy Geitners, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, gangi upp.

Hæstu bónusarnir verða greiddir til baka
Andrew Cuomo, saksóknari í New York fylki, segir að þeir fimmtán starfsmenn sem fengu hæstu bónusana frá bandaríska trygginga- og fjárfestingafélaginu AIG hafi samþykkt að skila þeim til baka. Um er að ræða 30 milljónir bandaríkjadala af þeim 165 sem félagið greiddi fyrr í þessum mánuði.

Salan á líkamsræktarstöðvum JJB Sports komin í uppnám
Salan á líkamsræktarstöðvum JJB Sports er komin í uppnám þar sem milljarðamæringurinn Mike Ashley, eigandi Newcastle United, reynir nú hvað hann getur til að koma í veg fyrir söluna til Dave Whelan sem er eigandi Wigan Athletic keppinauta Newcastle, Wigan Athletic.

Innanbúðarmaður næsti bankastjóri FIH bankans
Búið er að ganga frá ráðningu á nýjum bankastjóra FIH Bankans í Danmörku, en hann er í eigu Seðlabanka Íslands. Nýi bankastjórinn er Henrik Sjøgreen, 44 ára gamall innanbúðarmaður í bankanum.

Sænskt félag kaupir banka af Moderna Finans
Sænska félagið Scribona Nordic hefur fest kaup á Banque Invik SA af Moderna Finans sem var í eigu Milestone. Banque Invik er einn stærsti einkabanki í Lúxemborg. Það er skilanefnd Glitnis sem selt hefur bankann.

Gengið frá ráðningu Singer á 35 starfsmönnum Teathers
Um helgina var gengið frá ráðningu Singer Capital Markets á 35 starfsmönnum frá verðbréfamiðlunni Teathers. Við þetta tvöfaldast mannafli Singer.

Hlutabréf hækka á Asíumörkuðum
Hlutabréf á mörkuðum í Asíu hækkuðu í verði í morgun eftir því sem trú fjárfesta jókst, á að ríkisstjórnum álfunnar takist að koma lánastarfsemi banka í eðlilegt horf með hjálparaðgerðum sínum. Í Tókýó hækkuðu bréf Mitsubishi-bankans um tæplega fimm prósent og bréf ýmissa iðnfyrirtækja í Kína hækkuðu einnig, til dæmis hækkuðu bréf Angang-stálframleiðandans þar um 3,6 prósent.

Bermúda og Norðurlönd undirrita samning gegn skattsvikum
Undirritaður verður samningur milli Norðurlanda og Bermúda í apríl um upplýsingaskipti vegna skattsvika og auk þess gerðir röð af viðskiptasamningum. Samningarnir um upplýsingaskipti eru liður í herferð aðilanna um að stöðva skattsvik.

Þrír Íslendingar segja sig úr stjórn Aurum Holdings
Þrír Íslendingar, Þau Kristín Jóhannesdóttir, Pálmi Haraldsson og Pétur Már Halldórsson hafa sagt sig úr stjórn Aurum Holdings í Bretlandi. Fjórði maðurinn, sem var í stjórninni á vegum Baugs, Andras Szirtes, er einnig horfinn á brott.

Íslensk hjón í Noregi framleiða harðfiskflögur
Íslensku hjónin Kristín Hafsteinsdóttir og Kristjón Bergmundsson á Sommaröy í Noregi hafa þróað og framleitt stökkar og örþunnar harðfiskflögur sem hvorki molna né lykta.

Evrópski seðlabankinn byggir upp risavaxinn varasjóð
Evrópski seðlabankinn (ECB) er nú að byggja upp risavaxinn varasjóð sem hægt verður að greiða úr milljarða evra á innan 24 klukkustunda ef þörf er á.

Starfsmenn Wal-Mart fá 228 milljarða í bónusgreiðslur
Vöruhúsakeðjan Wal-Mart í Bandaríkjunum hefur ákveðið að greiða 2 milljarða dollara eða 228 milljarða kr. í bónusgreiðslur sem skiptast jafnt milli allra starfsmanna keðjunnar.

Sænsk greifynja vill milljarða frá manni sínum í skilnaðarmáli
Sænska greifynjan Marie Douglas-David hefur krafið eiginmann sinn um milljarð sænskra kr. eða um 14 milljarða kr. í skilnaðarmáli þeirra til þess að geta haldið lífsstíl sínum óbreyttum að hjónabandinu loknu.

Tekur fimm ár að gera upp starfsemi Straums í Danmörku
Oscar Crohn forstjóri Straums í Danmörku telur að það taki um fimm ár að gera starfsemi bankans upp þar í landi og ganga frá öllum lausum endum.

Singer tekur við tæplega 40 starfsmönnum Teathers
Reiknað er með að samruni Singer Capital Markets og verðbréfamiðlunarinnar Teathers verði tilkynntur síðar í dag. Singer mun taka við 35 til 40 starfsmönnum Teathers við samrunann eða um helmingi starfsmanna.

Bréf lækkuðu í Asíu
Hlutabréf á mörkuðum í Asíu féllu í verði í morgun eftir mestu samfelldu hækkun síðan í ágúst 2007. Bankar og hátæknifyrirtæki lækkuðu mest og má sem dæmi nefna að kínverska fjarskiptafyrirtækið China Mobile lækkaði um rúmlega fjögur prósent. Eitthvað var þó um að bréf hækkuðu í verði, til dæmis bréf námufyrirtækisins Billington en þau hækkuðu um þrjú prósent.

Kaupþing yfirtekur hlut Stanfords í Mulberry
Kaupþing banki í Lúxemborg, dótturfyrirtæki Kaupþings á Íslandi, hefur tekið yfir 25,4% hlut Kevin Stanford í töskufyrirtækinu Mulberry.

Ál og aðrir málmar í uppsveiflu á mörkuðum
Ál og aðrir málmar hafa verið í töluverðri uppsveiflu á mörkuðum í dag.

Nakin skortsala ein ástæðan fyrir gjaldþroti Lehman Brothers
Hugsanlega hefði verið hægt að koma í veg fyrir stærsta bankagjaldþrot sögunnar ef að miðlurum á Wall Strret hefði verið bannað að nota umdeildasta vopnið í búri sínu, nakta skortsölu.

Teathers bjargað af fyrrum félagi Kaupþings í London
Nýr eigandi að verðbréfamiðluninni Teathers verður að öllum líkindum Singer Capital Markets, félag sem var fyrrum í eigu Kaupþings, það er Singer & Friedlander bankans í London. Reiknað er með tilkynningu um málið í dag eða á morgun.

Norska krónan gjaldeyrisskjól í stað dollarans og frankans
Töluverð umræða er nú um það að norska krónan muni í náinni framtíð taka við af dollaranum, svissneska frankanum og japanska jeninu sem helsta gjaldeyrisskjól heimsins.

Markaðsvirði Unibrew minnkaði um 65% á þremur vikum
Markaðsvirði Royal Unibrew, næststærstu bruggverksmiðju Danmerkur, hefur lækkað um 65% á s.l. þremur vikum eða frá því að Unibrew birti ársuppgjör sitt þann 25. Febrúar. Stoðir eru einn stærsti hluthafinn í Royal Unibrew með 25% hlut.