Viðskipti innlent

Kvika slítur samrunaviðræðum við Íslandsbanka
Kvika banki hefur tilkynnt að bankinn hafi slitið viðræðum um mögulegan samruna bankans við Íslandsbanka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum til Kauphallarinnar. Íslandsbanki segist sammála þeirri ákvörðun.

Grétar, Hafdís og Jón til liðs við LSR
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) hefur ráðið þrjá nýja starfsmenn, tvö á svið stafrænnar þróunar og reksturs og einn á eignastýringarsvið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lífeyrissjóðnum.

Framboð íbúða eykst enn og sölutíminn lengist
Framboð íbúða hefur haldið áfram að aukast, aðallega vegna lengri sölutíma, og þá hefur þeim íbúðum fjölgað hlutfallslega sem seljast undir ásettu verði. Íbúðum til sölu hefur fjölgað um 300 á þremur mánuðum og eru nú 1.800 talsins.

Alvotech fær ekki markaðsleyfi fyrir hliðstæðu Humira að svo stöddu
Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna mun ekki afgreiða umsókn Alvotech um markaðsleyfi fyrir AVT02, hliðstæðulyf Humira, að svo stöddu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Sláandi að menn telji enn söluna hafa verið farsæla
Þingmenn stjórnarandstöðu telja mörgum spurningum enn ósvarað um mál Íslandsbanka. Bankasýslan segir ábyrgðina liggja hjá bankanum og að útboðið hafi verið eitt það farsælasta í Evrópu.

Hagar högnuðust um tæplega 700 milljónir
Hagnaður Haga á fyrsta fjórðingi ársins var 653 milljónir króna, tæplega þrjú hundruð milljónum króna minni en á síðasta ári. Forstjórinn segir starfsemi félagsins heilt yfir hafa gengið vel.

Íslandsbankasalan eitt farsælasta útboðið í Evrópu
Stjórnarmenn Bankasýslu ríkisins segja það hafa verið mikil vonbrigði að ekki hafi verið farið að lögum við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Þeir standa við orð sín um að hlutafjárútboðið hafi verið það farsælasta í Íslandssögunni og segja það eitt af farsælli útboðum Evrópu.

Toppur verður að Bonaqua
Vörumerkið Toppur mun brátt heyra sögunni til. Nafnabreyting verður á vörunni í sumar og mun drykkurinn framvegis kallast Bonaqua. Engin breyting verður þó á bragði eða þeim bragðtegundum sem í boði eru.

Ekki hægt að gera starfsmenn persónulega ábyrga fyrir sektargreiðslum
Hægt er að hafa fullt traust á íslensku fjármálakerfi þrátt fyrir þá atvikalýsingu sem lesa má um í sátt Fjármálaeftirlitsins við Íslandsbanka vegna sölunnar á hlut ríkisins í bankanum. Betra væri að ræða um játningu en sátt. Þetta er meðal þess sem fram kom á opnum fundi í efnahags-og viðskiptanefnd fyrir skemmstu. Fulltrúar frá Seðlabankanum voru gestir á fyrri hluta fundarins.

Landsbankinn hefur fundið ný heimkynni á Akureyri
Landsbankinn á Akureyri mun flytja sig yfir í Hofsbót 2-4 á Akureyri fyrir árslok 2024, samkvæmt langtímaleigusamningi sem gerður hefur verið við eigendur húsanna.

Boðað til hluthafafundar í lok júlí
Finnur Árnason, formaður stjórnar Íslandsbanka, segir að boðað verði til hluthafafundar bankans þann 28. júlí. Hann segir síðustu daga hafa verið erfiða. Nýr bankastjóri er tekinn við.

Verðbólgan undir níu prósent í fyrsta sinn í heilt ár
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,85 prósent milli mánaða og mældist 595,6 stig í júní. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 491,1 stig og hefur hækkað um 0,68 prósent frá því í maí.

Jón Guðni ráðinn bankastjóri af stjórn Íslandsbanka
Stjórn Íslandsbanka hefur komist að samkomulagi við Birnu Einarsdóttur um starfslok hennar hjá bankanum og ráðið Jón Guðna Ómarsson í starf bankastjóra. Jón Guðni hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra fjármála bankans og mun sinna því áfram þar til ráðið hefur verið í þá stöðu.

Birna lætur af störfum hjá Íslandsbanka
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, hefur ákveðið að stíga til hliðar „með hagsmuni bankans að leiðarljósi“. Segist hún gera það til að „ró geti myndast vegna sáttar Íslandsbanka við fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands“.

Yfirgefa Íslandsbanka og vilja að stjórnendur greiði sekt úr eigin vasa
Stjórn Neytendasamtakanna hefur tekið ákvörðun um að færa viðskipti félagsins frá Íslandsbanka vegna þeirra brota sem stjórnendur hans hafa gerst uppvísir að í tengslum við sölu hluta í bankanum.

Veru mathöll lokað
Veru mathöll, sem rekin hefur verið í Grósku í Vatnsmýri í Reykjavík, verður lokað á laugardaginn 1. júlí.

Fékk 11 milljónir aukalega vegna undirbúnings sölunnar
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, fékk 10,9 milljónir greiddar aukalega árið 2021 vegna yfirvinnu í tengslum við undirbúning hlutafjárútboðs og skráningar bankans á markað.

Nefndarfundurinn verður opinn eftir allt saman
Fundur efnahags-og viðskiptanefndar þingsins á morgun verður opinn og hefst klukkan eitt eftir hádegi. Fundað verður um brot Íslandsbanka við sölumeðferð á eignarhluta ríkisins í bankanum.

Húrra lokað: „Reykjavík er að verða ömurlega leiðinleg borg“
Eigandi tónleikastaðarins Húrra við Tryggvagötu í Reykjavík hefur lokað staðnum, að minnsta kosti tímabundið. Hann segir leiguna of háa en viðræður standi yfir við eigendur hússins. Hann segist óttast að Reykjavík stefni hraðbyri að því að verða einsleitari borg þar sem tónleikastaðir fái ekki þrifist.

Hafsteinn, Jón Gunnar og Sigríður Gyða til LearnCove
Hafsteinn Sigurðsson, Jón Gunnar Stefánsson og Sigríður Gyða Héðinsdóttir hafa öll verið ráðin til starfa hjá nýsköpunarfyrirtækisins LearnCove.

Stjórn Íslandsbanka boðar til hluthafafundar
Stjórn Íslandsbanka ætlar að bjóða til hluthafafundar á næstu dögum. Á fundinum mun stjórn og stjórnendur bankans fjalla um framkvæmd bankans á útboði Bankasýslu ríkisins sem fram fór þann 22. mars árið 2022.

Fengið um 400 nýja viðskiptavini síðan á föstudaginn
Indó hefur fengið inn til sín hátt í fjögur hundruð nýja viðskiptavini síðan á föstudaginn. Haukur Skúlason, framkvæmdastjóri og annar af stofnendum Indó, segist ekki geta fullyrt hvort það tengist sáttinni sem Íslandsbanki gerði við fjármálaeftirlitið.

Gerla nýr formaður Myndstefs
Myndhöfundurinn Guðrún Erla Geirsdóttir, betur þekkt sem Gerla, er nýr formaður höfundarréttarsamtakanna Myndstefs. Tekur hún við af Ragnari Th. Sigurðssyni ljósmyndara.

„Hæfiskilyrði fyrir aðila í þessum stöðum eru ströng“
Varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands telur að fjármálaeftirlitið hafi sinnt hlutverki sínu vel í rannsókninni á seinna útboðinu á Íslandsbanka. Hún segir hæfiskilyrði stjórnenda Íslandsbanka vera ströng, það sé þó bankans að meta hverju sinni hvort þau séu uppfyllt.

Bankinn hafi brugðist trausti
Fjármálaráðherra segir ljóst af sátt Íslandsbanka og Seðlabanka Íslands að Íslandsbanki hafi brugðist því trausti sem honum var sýnt þegar ákveðið var að hann myndi sjálfur sjá um útboð á hlut ríkisins í bankanum.

Bankasýsla ríkisins lýsir yfir miklum vonbrigðum
Í fréttatilkynningu segir að Bankasýsla ríkisins lýsi yfir miklum vonbrigðum með vinnubrögð Íslandsbanka við útboð á 22,5 prósent eignarhlut ríkisins í bankanum, í ljósi þess sem fram kemur í nýgerðri sátt bankans við fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands. Boðað verður til hluthafafundar vegna málsins.

Ólögmæt notkun Stjörnugríss á íslenska fánanum
Neytendastofa hefur bannað Stjörnugrís að merkja Smass-hamborgara sína með íslenska fánanum þar sem kjötið er ekki alíslenskt. Neytendastofa segir fyrirtækið stunda óréttmæta viðskiptahætti sökum villandi upplýsinga þar sem hamborgararnir eru að mestu úr þýsku nautakjöti.

Fullyrtu um tuttugu milljóna lágmark sem enginn fótur var fyrir
Starfsmenn Íslandsbanka beindu útboði á hlut ríkisins að 99 almennum fjárfestum, þrátt fyrir að um útboð fyrir fagfjárfesta hafi verið að ræða. Í níu tilfellum, þar sem hljóðrituð símtöl liggja fyrir, kemur fram í símtölum starfsmanna bankans við almenna fjárfesta að lágmarksfjárhæð í útboðinu væri 20 milljónir króna. Þær fullyrðingar voru rangar.

Hægt að ná verðbólgu hratt niður með miklum fórnarkostnaði
Fyrrverandi seðlabankastjóri segir fólk þurfa hætta að leita af sökudólgum eða einföldum skýringum í umræðu um verðbólguna. Hægt sé að keyra hana niður með miklum hraða ef vilji sé fyrir hendi en ekki án mikils fórnarkostnaðar.

Samþykktu allar beiðnir starfsmanna um að taka þátt í útboðinu
Regluvarsla Íslandsbanka samþykkti allar beiðnir starfsmanna um þátttöku í útboði á hlut ríkisins í bankanum í fyrra þrátt fyrir að aðeins fjórir starfsmenn og einn tengdur aðili væri flokkaður sem fagfjárfestar þegar útboðið hófst. Fjármálaeftirlitið telur þátttöku starfsmanna hafa skapað fjölmarga hagsmunaárekstra.