Viðskipti innlent

Spá þriggja prósenta verðbólgu á næsta ári
Íslandsbanki spáir því að verðbólga verði þrjú prósent að jafnaði á næsta ári. Þá verði stýrivextir komnir niður í 6,5 prósent í árslok.

Breytingar hjá Arctic Adventures með nýju skipuriti
Nokkrar breytingar hafa orðið í stjórnendahópi Arctic Adventures þar sem nýtt skipurit var kynnt í upphafi árs.

Kolefnisförgunarstöð metin með hagsmuni íbúa að leiðarljósi
Bæjarstjóri Ölfuss segir að hugmynd um kolefnisförgunarstöð Carbfix í sveitarfélaginu verði metin með hagsmuni íbúa að leiðarljósi. Enginr vankantar hafi komið upp varðandi starfsemi Carbfix á Hellisheiði síðasta áratuginn.

Hæstiréttur tekur deilur Vinnslustöðvarinnar og ríkisins fyrir
Hæstiréttur hefur fallist á að taka mál Vinnslustöðvarinnar á hendur ríkinu vegna makrílkvóta fyrir. Landsréttur dæmdi ríkið til að greiða Vinnslustöðinni alls 269 milljónir króna, helmingi minna en héraðsdómur hafði dæmt. Ríkið óskaði sömuleiðis eftir því að Hæstiréttur tæki mál Hugins, sem Vinnslustöðin á, fyrir en Landsréttur dæmdi ríkið til að greiða Hugin 329 milljónir króna.

Nýir forstöðumenn hjá Motus
Motus hefur ráðið Tryggva Jónsson sem forstöðumann gagnalausna og Rúnar Skúla Magnússon sem forstöðumann vöruþróunar, en báðir hafa þegar þegar hafið störf hjá fyrirtækinu.

Landsbankinn sé „svo sannarlega“ enn banki allra landsmanna
Umsóknir um íbúðarlán vegna húsnæðis í dreifbýli kalla á ýtarlegri skoðun en þegar kemur að ákvörðun um lánveitingu vegna húsnæðis í þéttbýli. Þetta segir framkvæmdastjóri hjá Landsbankanum, sem segir bankann vissulega veita lán um land allt, þrátt fyrir að strangari skilyrði kunni að gilda í ákveðnum tilfellum. „Óheppilegt orðalag“ í svörum til viðskiptavina endurspegli ekki afstöðu bankans með réttum hætti.

Hallur Flosa rekstrarstjóri prentlausna hjá OK
Hallur Flosason hefur verið ráðinn rekstrarstjóri prentlausna hjá OK. Hlutverk rekstrarstjóra felst í að halda utan um sölu á HP prentbúnaði, rekstrarvöru, prentsamningum og þjónustu til viðskiptavina.

Telur furðulegt að „banki allra landsmanna“ veiti ekki íbúðalán í dreifbýli
Samkvæmt heimildum fréttastofu eru dæmi um að Landsbankinn hafi dregið í land með fyrirhugaða lánveitingu vegna „ágalla“ sem heimili ekki veitingu íbúðarláns. Ágallinn sem þar er vísað til er sá að húsnæðið er staðsett í dreifbýli. Fréttastofa kallaði í framhaldinu eftir svörum frá Landsbankanum, Íslandsbanka og Arion banka um lánareglur bankanna hvað lýtur að íbúðalánum í dreifbýli.

Berglind Una ný forstöðukona Digital Labs hjá Origo
Berglind Una Svavarsdóttur hefur tekið við sem forstöðukonu Digital Labs hjá Origo. Í tilkynningu segir að Digital Labs deildin veiti þjónustu og ráðgjöf á sviði stafrænnar umbreytingar, veflausna, hagnýtingu gagna og gervigreindar.

Loðnubrestur hefur gríðarleg áhrif á samfélagið
Hverfandi líkur á loðnuveiðum þennan veturinn eru mikil vonbrigði fyrir Vestmannaeyjabæ, að sögn bæjarstjórans. Hún heldur þó í vonina um að loðna finnist.

Loðnumælingar gefa ekki ástæðu til bjartsýni
Bráðabirgðaniðurstöður bergmálsmælinga Hafrannsóknarstofnunar sýna að heildarmagn fullorðinnar loðnu sem myndar veiðistofn vertíðarinnar, er aðeins um tveir þriðju þess sem mældist í september 2024. Það er því fyrirséð að þessar mælingar sem lokið er við nægja ekki til að breyta fyrri ráðgjöf um að engar veiðar verði leyfðar veturinn 2024/2025.

Þrír nýir eigendur bætast í hópinn
Nýlega bættust þau Eva M. Kristjánsdóttir, Kristbjörn Hrólfur Gunnarsson og Kristinn Jónasson við eigendahóp KPMG og KPMG Law en þau hafa öll starfað hjá KPMG um árabil.

Vatnsbúskapurinn fer batnandi
Landsvirkjun hefur ákveðið að hætta endurkaupum raforku af járnblendiverksmiðju Elkem á Grundartanga. Ástæðan er sú að vatnsbúskapur Landsvirkjunar hefur batnað.

Hildur nýr mannauðsstjóri Distica
Hildur Guðjónsdóttir hefur verið ráðin mannauðsstjóri Distica og tekur sæti í framkvæmdastjórn félagsins.

Einkaþotufyrirtæki með skrautlega sögu svipt starfsleyfi vegna öryggismála
Isavia svipti stærsta flugþjónustufyrirtæki einkaþotna starfsleyfi á bæði Reykjavíkur- og Keflavíkurflugvelli vegna öryggisástæðna í síðustu viku. Eigandi fyrirtækisins segir að sviptingin hafi verið kærð til Samgöngustofu en Isavia vill ekki svara hvers vegna rekstrarleyfið var tekið af því.

Norska sjóbjörgunarsveitin semur við íslenskt fyrirtæki
Hefring Marine, íslenskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun snjallsiglingartækja undirritaði í gær samning við norsku sjóbjörgunarsveitina, Redningsselskapet.

Boða til fundar með íbúum Ölfuss um kolefnisförgunarstöð
Kolefnisbindingarfyrirtækið Carbfix hefur boðað til fundar með íbúum Ölfuss til þess að kynna áform þess um uppbyggingu og rekstur á kolefnisförgunarstöð í sveitarfélaginu. Talsmaður fyrirtækisins segir fundinn upphaf að samtali við íbúa um staðsetningu, áhrif og ávinning af stöðinni.

Ari nýr tæknistjóri
Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Tern Systems hefur gengið frá ráðningu Ara Guðfinnssonar í starf tæknistjóra til að leiða nýtt tæknisvið innan fyrirtækisins.

Fimmti hver leigjandi vildi heldur búa annars staðar
Fimmti hver leigjandi á leigumarkaði býr í hverfi eða á stað þar sem viðkomandi myndi helst ekki kjósa að búa á. Meðal leigjenda með tvö börn eða fleiri er hlutfallið 30 prósent.

Nýtt 68 herbergja hótel byggt á Hvolsvelli
Fyrsta skóflustungan af nýju 68 herbergja lúxus hóteli hefur verið tekin á Hvolsvelli. Hótelið, sem mun kostar um tvo milljarða króna verður tekið í notkun í byrjun sumars.

Taka jákvætt í kolefnisförgunarstöð í Ölfusi
Bæjarráð Ölfuss tekur jákvætt í áhuga Carbfix á að reisa kolefnisförgunarstöð í sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að máli verði unnið í samvinnu við íbúa en áform Carbfix um kolefnisförgunarstöð í Hafnarfirði hefur mætt harðri andstöðu þar.

Ölgerðin kaupir Gæðabakstur
Ölgerðin hefur undirritað samkomulag um helstu skilmála kaupa á 100 prósent hlut í Gæðabakstri ehf.. Heildarvirði viðskiptanna er um 3,5 milljarðar króna.

Segir skipta gríðarlegu máli að fá loðnuvertíð
Bæjarstjóri Hornafjarðar segir skipta gríðarlegu máli fyrir sveitarfélagið og þjóðarbúið að það verði loðnuvertíð. Skip í loðnuleit hafa síðustu daga fundið loðnu undan Húnaflóa og úti fyrir Norðausturlandi og Austfjörðum.

Kaffi Kjós til sölu
Kaffi Kjós við Meðalfellsveg er til sölu. Kaffihúsið hefur verið rekið frá árinu 1998 og eigendur segja samfélagið á svæðinu vona að veitingarekstur haldi þar áfram.

Skóari skellir í lás á Grettisgötunni
Skóvinnustofunni í Reykjavík, sem áður gekk undir nafninu Þráinn skóari, verður lokað fyrir mánaðamót. Þar með hverfur síðasti starfandi skósmiðurinn í miðborg Reykjavíkur á braut.

Brotið á Jóhannesi en Birkir fer tómhentur frá Strassborg
Íslenska ríkið var í dag sýknað af öllum kröfum Birkis Kristinssonar, fyrrverandi knattspyrnumanns og viðskiptastjóra hjá einkabankaþjónustu Glitnis, í BK-44 málinu svokallaða fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu. Jóhannes Baldursson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðsviðskipta bankans, fer hins vegar ekki tómhentur frá Strassborg.

Karen inn fyrir Þórarin
Karen Áslaug Vignisdóttir hefur verið sett aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu hjá Seðlabanka Íslands. Þetta kemur fram á vef bankans.

Björn Leifsson horfir til Vestmannaeyja
Bæjarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt beiðni forstjóra World Class um viðræður um rekstur og uppbyggingu heilsuræktar á Heimaey. Bæjarstjóri segir beiðnina sönnun þess að Vestmannaeyjar séu spennandi kostur.

Yfirtakan hækkaði gengi krónunnar töluvert
Yfirtaka JBT á Marel hafði talsverð áhrif á gengi krónunnar árið 2024, sem hækkaði um fjögur prósent á árinu. Krónan hefur ekki verið stöðugri frá árinu 2015.

Afkoma Arion lengst yfir spám greinenda
Drög að uppgjöri Arion banka fyrir fjórða ársfjórðung 2024 liggja nú fyrir og samkvæmt þeim er afkoma fjórðungsins um 8,3 milljarðar króna, sem leiðir til 13,2 prósenta arðsemi eiginfjár á árinu 2024. Afkoma fjórðungsins er um 28 prósentum yfir meðaltalsspá greiningaraðila.