Viðskipti innlent

Nýr banki fer í beina samkeppni við stóru viðskiptabankana
Nýr banki er við það að hefja starfsemi á Íslandi og ætlar sér í beina samkeppni við stóru banka landsins um viðskiptavini. Hann verður að öllu leyti rekinn á rafrænu formi, mun ekki halda úti einu einasta útibúi en telur sig munu breyta íslenskum bankamarkaði til framtíðar.

Fær um níu milljónir frá Arion banka
Landsréttur hefur dæmt Arion banka til að greiða fyrrverandi starfsmanni bankans um níu milljónir króna vegna fyrirvaralausrar uppsagnar árið 2016. Uppsögnin var að mati starfsmannsins ólögmæt og meiðandi í hans garð, en bankinn taldi starfsmanninn hafa brotið alvarlega gegn starfsskyldum sínum.

Smitten fær 330 milljóna fjármögnun til útrásar í Evrópu
Stefnumótaappið Smitten hefur fengið byr undir báða vængi fyrir útrás til Evrópu eftir að hafa lokað 330 milljóna króna fjármögnun. Stofnandi Smitten segir 25 þúsund Íslendinga hafa sótt appið og nokkur þúsund noti það á hverjum einasta degi, að stærstum hluta fólk undir þrítugu.

Fyrrverandi aðstoðarmaður utanríkisráðherra ráðinn framkvæmdastjóri Háafells
Gauti Geirsson sjávarútvegsfræðingur hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Háafells ehf., fiskeldisfyrirtækis í eigu Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf.

Eyddu 220 milljörðum á ferð sinni um Ísland árið 2020
Hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu nam 3,9% árið 2020 samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum ferðaþjónustureikninga, samanborið við 8% árið 2019. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Jóhann færir sig um set og auglýst eftir nýjum fjármálastjóra
Jóhann Sigurjónsson mun láta af störfum sem fjármálastjóri fasteignafélagsins Regins næsta haust og færa sig um set innan félagsins. Samhliða breytingunum verður auglýst eftir nýjum fjármálastjóra.

Ferðaþjónustan vill afnám sóttkvíar
Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar vonar að sóttkví við komuna til landsins verði fljótlega afnumin og að slíkt verði til þess að ferðaþjónustan hérlendis komist aftur á fullt.

Loka Litlu kaffistofunni í ágúst
Litlu kaffistofunni á Suðurlandsvegi verður lokað í sumar, en áætlað er að síðasti opnunardagur verði 31. júlí. Ástæðan er breytt rekstrarumhverfi.

Eimskip gerir sátt og greiðir 1,5 milljarða í sekt
Eimskip og Samkeppniseftirlitið hafa undirritað sátt vegna ætlaðra brota Eimskips á árunum 2008 til 2013. Með sáttinni gengst Eimskip alvarleg brot gegn samkeppnislögum og EES-samningnum.

Bein útsending: Kynna 45 milljarða króna uppbyggingu laxeldis á Reykjanesskaga
Samherji fiskeldi ehf. hefur gert samninga við HS Orku um uppbyggingu 40 þúsund tonna laxeldis á landi í Auðlindagarðinum við Reykjanesvirkjun. Almennur kynningarfundur um verkefnið hefst í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ klukkan 14 í dag.

Bjarni ánægður með fjölmennasta hluthafahóp landsins
Hluthafar Íslandsbanka verða um tuttugu og fjögur þúsund eftir hlutafjárútboð bankans og fleiri en í nokkru öðru skráðu fyrirtæki. Umfram eftirspurn eftir hlutabréfum var margföld og fjármálaráðherra segir stóran eigendahóp hafa mikla þýðingu fyrir samfélagslega sátt söluna.

Taka við veitinga- og verslunarrekstri á Þingvöllum
Icewear hefur tekið við veitinga- og verslunarrekstri Þjóðgarðsins á Þingvöllum, Þjónustumiðstöðinni á Leirum og einnig Gestastofu sem er staðsett rétt við útsýnisskífuna á Hakinu, þar sem gengið er niður í Almannagjá.

Karen ráðin til Athygli
Karen Kjartansdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, hefur verið ráðin til starfa hjá ráðgjafafyrirtækisinu Athygli.

Fimm teymi komust áfram í samkeppni um þróunina við Keflavíkurflugvöll til 2050
Fimm fjölþjóðleg teymi hafa verið valin til áframhaldandi þátttöku í forvali Kadeco um þróunaráætlun fyrir stórt svæði umhverfis Keflavíkurflugvöll.

Sérbýli í miðbæ Reykjavíkur hækkað um 36 prósent á milli ára
Enn eru mikil umsvif á fasteignamarkaði miðað við árstíma og ýmsir mælikvarðar gefa til kynna að eftirspurnarþrýstingur sé enn mikill. Á síðustu tólf mánuðum hefur íbúðaverð alls hækkað um 11,6 prósent á höfuðborgarsvæðinu og hefur verð á sérbýli í miðbæ Reykjavíkur hækkað um heil 36 prósent á milli ára.

Hafa lokið við stofnun sjö milljarða vísissjóðs
Frumtak Ventures hefur lokið við fjármögnun og stofnun nýs sjóðs, Frumtak III, sem er sjö milljarðar að stærð.

Hluthafar í Íslandsbanka 24 þúsund eftir útboðið
Um 24 þúsund hluthafar verða í Íslandsbanka eftir hlutafjárútboð bankans sem lauk á hádegi í dag. Það er mesti fjöldi hluthafa allra skráðra fyrirtækja á Íslandi.

Milljarðamæringur fjárfestir í veiðihúsum á Íslandi
Breski milljarðamæringurinn Jim Ratcliffe ætlar að fjárfesta fyrir fjóra milljarða í verkefni sem ætlað er að vernda laxastofninn á Íslandi. Markmiðið með verkefninu er að snúa við hnignun Norður-Atlantshafslaxstofnsins.

Play lék listir sínar yfir Reykjavík
Fagurrauð þota nýja flugfélagsins Play flögraði nokkra hringi yfir höfuðborgarsvæðinu nú síðdegis í kynningarskyni. Jómfrúarflug félagsins til Lundúna er eftir níu daga.

Þúsundþjalasmiður til Solid Clouds
Tölvuleikjafyrirtækið Solid Clouds hefur ráðið þúsundþjalasmiðinn Eyvind Karlsson til starfa sem rithöfund og markaðssérfræðing.

Saka Umhverfisstofnun um að verðlauna sérstaklega brotastarfsemi Arnarlax
Landvernd og Icelandic Wild Live Fund krefjast skýringa á starfsleyfi sem Umhverfisstofnun hefur veitt Arnarlaxi þrátt fyrir brot á starfsleyfi með notkun koparoxíð í sjókvíum sínum.

Anna Sigrún nýr framkvæmdastjóri skrifstofu forstjóra Landspítala
Anna Sigrún Baldursdóttir, sem starfað hefur sem aðstoðamaður forstjóra Landspítalans, hefur verið ráðin í nýtt starf sem framkvæmdastjóri skrifstofu spítalans. Þetta segir í tilkynningu frá Landspítalanum.

Tekur við starfi framkvæmdastjóra Gló
Berglind Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Gló veitinga ehf. Skeljungur keypti nýverið allt hlutafé í fyrirtækinu.

Alvarleg og stórfelld skattalagabrot í tengslum við Airbnb
Skattrannsóknarstjóri hefur aflað gagna frá Airbnb sem hafa vakið grun um stórfelld skattalagabrot Íslendinga í tengslum við síðuna, sem hefur milligöngu um að leigja út húsnæði til ferðamanna.

Landsbankinn varar við fölskum smáskilaboðum
Landsbankinn varar við fölskum SMS-skilaboðum sem send hafa verið á fólk í nafni bankans.

Lífeyrissparnaður jókst um nærri 15 prósent
Lífeyrissparnaður landsmanna í formi samtryggingar og séreignar lífeyrissjóða og annarra vörsluaðila nam 6.037 milljarða króna í árslok 2020. Sparnaðurinn jókst um 14,9 prósent á árinu.

Hlutafjárútboð Play hefst í næstu viku
Hlutafjárútboð Play fyrir skráningu félagsins á First North markaðinn hefst þann 24. júní klukkan 10. Útboðið mun standa yfir í rúman sólarhring en lokað verður fyrir kaup klukkan 16 föstudaginn 25. júní.

Aukning í sumarhúsakaupum rakin til faraldursins
Mikil aukning hefur orðið á sumarhúsakaupum hér á landi. Undirritaðir kaupsamningar um sumarhús voru 129 á fyrsta fjórðungi þessa árs og eru þeir margfalt fleiri en á sama tíma á síðasta ári.

Ráðnar til Góðra samskipta
Eva Ingólfsdóttir og Hafdís Rós Jóhannesdóttir hafa verið ráðnar sem ráðgjafar hjá ráðgjafarfyrirtækinu Góðum samskiptum.

Ein af vélum Play orðin leikhæf
Búið er að mála eina af flugvélum sem prýða mun flota flugfélagsins Play með einkennislitum og merki félagsins. Í dag eru ellefu dagar í fyrsta flug félagsins þann 24. júní til Lundúna.