
Viðskipti innlent

Átta sagt upp hjá Arion banka
Átta manns var sagt upp hjá Arion banka í gær. Upplýsingafulltrúi bankans segir uppsagnirnar lið í breytingum innan einstakra sviða. Þær séu ekki liður í stórum skipulagsbreytingum.

Bein útsending: Ársfundur Orkustofununar á Akureyri
Ársfundur Orkustofnunar fer fram í Hofi á Akureyri og hefst klukkan 14 í dag. Fundinum er streymt á Vísi.

Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman
Bananalýðveldið ehf., eignarhaldsfélag í eigu skemmtikraftsins Björns Braga Arnarssonar, hagnaðist um rúmar tíu milljónir króna á síðasta ári. Hagnaðurinn árið áður nam tæpum fjörutíu milljónum króna.

Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“
Aðalhagfræðingur Samtaka Iðnaðarins segir misskilnings gæta í ummælum Seðlabankastjóra um stöðu byggingageirans og hússnæðisskort. Seðlabankastjóri tali með skringilegum hætti um áhrif hárra vaxta á greinina, líklega í tilraun til að halda verðbólguvæntingum niðri.

Icelandair fyrsta samstarfsflugfélag bandarísks risa
Icelandair og bandaríska flugfélagið Southwest hafa undirritað viljayfirlýsingu um að hefja samstarf á árinu 2025. Samstarfið mun gefa viðskiptavinum tækifæri á þægilegum tengingum á milli leiðakerfa flugfélaganna tveggja. Icelandair verður þar með fyrsta samstarfsflugfélag Southwest.

Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári
Greiningadeild Arion banka spáir því að verðbólga verði 3,6 prósent í lok næsta árs og aðeins 3,1 prósent í lok spátíma árið 2027. Spáin gerir ráð fyrir því að Hagstofan taki nýtt kílómetragjald ekki inn í vísitölu neysluverðs, sem muni minnka verðbólgu um heilt prósentustig.

Fjármálaeftirlitið samþykkir samruna Landsbankans og TM
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur samþykkt samruna TM og Landsbankans. Í tilkynningu á vef bankans kemur fram að Fjármálaeftirlitið telji Landsbankann hæfan til að eiga virkan eignarhlut í TM tryggingum hf. Bankinn undirritaði samning um kaup á öllu hlutafé í TM í maí 2024.

Verður framkvæmdastjóri á hugbúnaðarsviði Origo
Árni Geir Valgeirsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hjá Origo og mun hann leiða hugbúnaðarsvið félagsins frá októbermánuði.

Geta veitt fyrirtækjum hagstæðari lán
Evrópski fjárfestingasjóðurinn, EIF, og Arion banki hafa undirritað ábyrgðarsamning með það að markmiði að styðja við frumkvöðla hér á landi. Ábyrgð frá EIF, sem er studd af InvestEU áætlun Evrópusambandsins, gerir Arion banka kleift að lána allt að 15 milljarða króna til íslenskra fyrirtækja á hagstæðari kjörum en ella.

Telur vaxtahækkanir viðskiptabankanna brattar
Seðlabankastjóri telur hækkanir viðskiptabankanna á verðtryggðum vöxtum íbúðalána brattar á skömmum tíma. Hann telur hins vegar að þær muni leiða til þess að hækkun á fasteignaverði heyri sögunni til. Hann kveður umræðu um að of lítið sé byggt, á villigötum. Útlán til byggingageirans séu mikil og nóg af eignum til sölu.

Bein útsending: Haustráðstefna Stjórnvísi – Snjöll framtíð
Haustráðstefna Stjórnvísi fer fram í dag og ber hún yfirskriftina „Snjöll framtíð“ að þessu sinni.

Þrálát verðbólga og hægari vöxtur geti skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið
Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum. Eiginfjár- og lausafjárstaða kerfislega mikilvægra banka er sterk, aðgengi að fjármögnun gott og fjármögnunarkostnaður erlendis hefur lækkað. Þrálát verðbólga samhliða hægari vexti efnahagsumsvifa getur skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið. Fjármálastöðugleikanefnd hefur ákveðið að halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5 prósentum.

Hrönn, Viktor og Þórdís til Varðar
Tryggingafélagið Vörður hefur ráðið þrjá nýja forstöðumenn. Það eru Hrönn Vilhjálmsdóttir, Viktor Hrafn Hólmgeirsson, og Þórdís Lind Leiva.

Ísak Einar til Samtaka atvinnulífsins
Ísak Einar Rúnarsson hefur verið ráðinn nýr forstöðumaður málefnasviðs Samtaka atvinnulífsins. Ísak hóf störf 1. september síðastliðinn. Hann tekur við starfinu af Páli Ásgeiri Guðmundssyni, en Páll verður samtökunum áfram innan handar sem ráðgjafi í stjórnsýslu.

Andri aðstoðarframkvæmdastjóri Júní
Andri Úlfarsson hefur verið ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri stafrænu stofunnar Júní. Í tilkynningu kemur fram að Andri hafi gengið til liðs við stofuna í júní eftir að hafa starfað sem framkvæmdastjóri sölusviðs Toyota í sjö ár.

Sunna veitir Livio samkeppni í frjósemi
Sunna frjósemi hefur fengið samþykkt starfsleyfi frá heilbrigðisráðuneytinu og mun formlega opna frjósemisstofu í Evuhúsi í Urðarhvarfi á haustmánuðunum. Aðeins ein frjósemisstofa hefur verið starfandi á Íslandi síðustu áratugi en með opnun Sunnu frjósemi verða þær tvær.

Enn eitt félag Quangs gjaldþrota
Vietnam restaurant ehf. varð á dögunum sjötta félagið í eigu athafnamannsins Quangs Lé, sem úrskurðað hefur verið gjaldþrota.

Svekktur en ekki hissa á færri íbúðum í byggingu
Forseti ASÍ segir svekkjandi að íbúðauppbygging hafi dregist saman um tæp sautján prósent á síðasta árinu. Það komi hins vegar ekki á óvart miðað við núverandi vaxtaumhverfi og verðbólgu.

Færri íbúðir í byggingu en fyrir ári
Alls voru 16,8 prósentum færri íbúðir í byggingu á landinu í september en á sama tíma á síðasta ári. Ljóst má vera að framkvæmdir eru að hefjast á of fáum íbúðum ef ekki á að verða frekari samdráttur á nýjum íbúðum.

Gengi Icelandair flaug upp á við
Gengi hlutabréfa Icelandair rauk upp um 6,45 prósent í dag í 612 milljóna króna viðskiptum. Gengið hefur ekki verið hærra frá 9. júní. Þá hækkaði gengi Play næstmest allra félaga í Kauphöllinni, um 3,03 prósent.

Vill laða að lágverðsverslun á Krókinn
Álfhildur Leifsdóttir, sveitarstjórnarmaður í Skagafirði, hefur stuggað við kaupmönnum á Sauðárkróki, með tillögu um að sveitarstjórnin laði að lágverðsverslun á svæðið með ókeypis lóð á nýju athafnasvæði í bænum.

Spá 7,5 prósent stýrivöxtum í lok 2025
Greining Íslandsbanka spáir því að stýrivextir verði komnir í 8,25 prósent um mitt næsta ár, 7,5 prósent í lok árs 2025 og niður í 5,5 prósent í lok árs 2026. Þetta kemur fram nýrri þjóðhagsspá bankans. Stýrivexti eru í dag 9,25 prósent og hafa verið óbreyttir í meira en ár.

Fura Ösp nýr formaður stjórnar hjá Brandenburg
Fura Ösp Jóhannesdóttir hefur tekið sæti í stjórn hjá sköpunarstofunni Brandenburg og mun þar fara með stöðu formanns stjórnar.

Tekur við stöðu forstöðumanns þjónustu hjá Reitum
Margrét Helga Jóhannsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður þjónustu hjá Reitum.

Ráðin markaðsstjóri Sensa
Eydís Eyland hefur verið ráðin markaðsstjóri Sensa.

Milljarður í arðgreiðslur hjá Toyota
Stjórnir systurfélaga Toyota umboðsins á Íslandi leggja til að greiddur verði út milljarður króna í arð vegna rekstrarársins 2023.

Verðtryggð jafngreiðslulán aðeins í boði fyrir fyrstu kaupendur
Landsbankinn hækkaði vexti verðtryggðra íbúðalána sinna um fjórðung úr prósenti í dag. Hækkunin er nokkru minni en hinna stóru bankanna. Héðan í frá býður bankinn aðeins fyrstu kaupendum upp á verðtryggð íbúðalán með jöfnum greiðslum.

4,4 milljarðar til borgarinnar vegna framkvæmda á Hólmsheiði
Áætlaðar tekjur Reykjavíkurborgar af sölu byggingarréttar og álagningu gatnagerðargjalda í tengslum við uppbyggingu nýs atvinnusvæðis á Hólmsheiði er 4,4 milljarðar króna. Borgarstjóri og fulltrúar fimm fyrirtækja skrifuðu í gær undir viljayfirlýsingu um lóðarvilyrði á svæðinu

Fegurð er glæpur kom út í mínus
Fegurð er glæpur ehf., félag stofnað í kringum strákasveitina Iceguys, tapaði rúmum tveimur milljónum í fyrra.

Skuldar félagi Einars 44 milljónir og gæti misst 295 milljóna hús
Fjárfestingafélagið Gnitanes ehf., sem er í eigu forstjóra flugfélagsins Play meðal annarra, hefur farið fram á nauðungarsölu á einbýlishúsi athafnamannsins Jóni Óðins Ragnarssonar vegna krafna að upphæð 44 milljóna króna. Húsið er á sölu sem stendur og uppsett verð er tæpar 300 milljónir króna.