Viðskipti innlent

Stóru viðskiptabankarnir þrír lokaðir á morgun
Landsbankinn og Íslandsbanki munu loka útibúum sínum um allt land vegna kvennaverkfallsins á morgun. Fyrr í dag var greint frá því að Arion banki myndi loka af sömu ástæðu. Þar af leiðandi verða útibú stóru viðskiptabankanna þriggja lokuð.

Arion banki lokar útibúum á morgun
Útibú Arion banka verða lokuð á morgun, þriðjudag, vegna kvennaverkfalls.

Páll í Toyota er látinn
Páll Breiðdal Samúelsson, fyrrverandi forstjóri Toyota, er látinn. Páll, sem ávallt var kenndur við Toyota var 94 ára að aldri þegar hann skildi við en síðustu árin dvaldi hann að hjúkrunarheimilinu Sólvöllum á Eyrarbakka þar sem hann andaðist.

Ráðin framkvæmdastjóri Two Birds og Aurbjargar
Ásdís Arna Gottskálksdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjártæknifyrirtækisins Two Birds ehf. sem er rekstraraðili Aurbjorg.is. Hún kemur til Two Birds frá Abler þar sem hún starfaði sem fjármála - og rekstrarstjóri og bar meðal annars ábyrgð á fjármálum, áætlunum og daglegum rekstri félagsins.

Halldóra Anna stýrir markaðsmálum Vinnupalla
Halldóra Anna Hagalín hefur verið ráðin til að sjá um markaðsmál Vinnupalla.

Skýr merki um að erfiðara gangi að selja nýbyggingar
Nýjar tölur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sýna að framkvæmdir eru hafnar við byggingu á 8.683 íbúðum. Mikill samdráttur er þó í fjölda nýrra framkvæmda og nemur hann um 68 prósent á milli ára. Skýr merki eru um að erfiðara gangi að selja nýbyggingar.

Ákváðu að kaupa Kerið í hálfgerðu bríaríi
„Við höfðum bara náttúruvernd í huga og engum hugkvæmdist gjaldtaka. Þetta var skyndiákvörðun, tekin í hálfgerðu bríaríi. Það er ekki á hverjum degi sem hægt er að eignast eldgíg,“ segir Óskar Magnússon um kaup á Kerinu fyrir 23 árum.

Aðstoða fyrirtæki að vernda uppljóstrara
Ný lausn frá fyrirtækinu Origo, sem hjálpar fyrirtækjum að uppfylla lög um vernd uppljóstrara, var kynnt í vikunni. Lögin tóku gildi 1. janúar 2020 en sveitarfélögum, stofnunum og fyrirtækjum hefur reynst þrautinni þyngri að uppfylla lagakröfurnar.

Sahara tók gull og silfur
Markaðs- og auglýsingastofan Sahara hlaut verðlaunin Global Digital Excellence Awards 2023 í tveimur flokkum á dögunum. Gull fyrir herferðina „Keeping London Warm Since 2022“ sem stofan gerði fyrir 66°Norður og silfur fyrir herferðina „Life's Too Short“ sem gerð var fyrir Blue Car Rental.

Íslandsbanki hækkar vexti um allt að 0,8 prósentustig
Íslandsbanki mun hækka vexti á inn- og útlánum frá og með mánudegi. Fastir vextir óverðtryggðra húsnæðislána hækka mest, eða um 0,8 prósentustig.

Skrúfa niður í djamminu á Prikinu
Mikið stendur til á veitingahúsinu Prikinu í hjarta miðbæjar Reykjavíkur þessa dagana. Staðurinn gengur í gengum endurnýjun lífdaga og verður hér eftir aðeins á einni hæð. Skrúfað verður niður í djamminu sem hefur einkennt starfsemina síðusta áratug.

Auglýsa eftir nýjum rekstraraðilum í Mjódd
Um þrjú þúsund manns fara á hverjum degi um biðstöðina í Mjódd. Reykjavíkurborg auglýsir nú eftir nýjum rekstraraðila sem eigi að móta hann upp á nýtt. Gerð er krafa um opnun frá 8 til 22 og aðgengi gesta að salerni.

Kaup Sýnar á Já frágengin
Sýn hefur gengið frá kaupum á Eignarhaldsfélaginu Njálu, sem er móðurfélag Já hf. Áður hafði Samkeppniseftirlitið heimilað kaup Sýnar á Eignarhaldsfélaginu Njálu ehf. og Já hf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sýn.

Heildartekjur Icelandair aldrei verið meiri á einum ársfjórðungi
Heildartekjur Icelandair voru 74,7 milljarðar króna á þriðja ársfjórðungi. Í tilkynningu frá félaginu segir að það sé það séu mestu heildartekjur félagsins frá upphafi, en þær jukust um sautján prósent frá því í fyrra.

Samherji borgar ekki laun starfsfólks í kvennaverkfalli
Norðlenska fiskvinnslufyrirtækið Samherji hyggst ekki greiða konum og kvárum sem vinna hjá fyrirtækinu laun mæti þau ekki til vinnu næsta þriðjudag, þegar boðað hefur verið til kvennaverkfalls. Starfsfólki er þó frjálst að skreppa á 45 mínútna mótmælafund á Akureyri.

Atvinnurekendur telja engin efni til hækkana
Mikill meirihluti aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins telur svigrúm til launahækkana á næsta ári innan við fjögur prósent. Tæplega fjórðungur telur svigrúm á bilinu 0 til 0,9 prósent.

Bein útsending: Ársfundur atvinnulífsins
Ársfundur atvinnulífsins hefur fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur atvinnulífs og stjórnmála til að ræða brýn málefni samfélagsins og leiðir til að bæta lífskjör landsmanna. Fundurinn hefst klukkan 15 og stendur í klukkustund.

Helgi nýr framkvæmdastjóri sviðs fjármála og rekstrar hjá HH
Helgi Þorsteinsson hefur verið ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra sviðs fjármála og rekstrar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og mun hann taka til starfa bráðlega.

Festi hækkar afkomuspá um hundruð milljóna
Samkvæmt drögum að uppgjöri þriðja ársfjórðungs 2023 nemur hagnaður Festi, fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta á fjórðungnum 3,9 milljörðum króna samanborið við 3,1 milljarð króna árið áður, sem er aukning um 0,8 milljarða króna milli ára.

Næstfjölmennasta ferðamannasumarið í ár
Fjöldi ferðamanna var næstum sá sami í sumar og metsumarið 2018. Flestir voru Bandaríkjamenn, Þjóðverjar og Pólverjar. Ferðamenn dvöldu að jafnaði í um 6,8 nætur en Frakkar og Þjóðverjar dvöldu lengst, eða í um 10,9 nætur.

Breytingar í stjórnendateymi TM
Fríða Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri markaðsmála og sölu hjá TM. Þá hefur Garðar Þ. Guðgeirsson verið ráðinn framkvæmdastjóri stefnu og áhættu og mun Kjartan Vilhjálmson taka sæti í framkvæmdastjórn yfir lögfræðiþjónustu og vöruþróun hjá félaginu.

Tveir úr peningastefnunefnd vildu hækka stýrivexti
Tveir meðlimir peningastefnunefndar vildu hækka stýrivexti um 0,25 prósent þegar nefndin fundaði í upphafi mánaðar. Nefndin tilkynnti óbreytta stýrivexti þann 4. október síðastliðinn.

Bjarni Þór og Sæunn til Heimkaupa
Bjarni Þór Logason hefur verið ráðinn innkaupastjóri Heimkaupa og Sæunn Viggósdóttir mannauðsstjóri.

Eðalfang eignast meirihluta í 101 Seafood
Eðalfang ehf. hefur keypt 50,1 prósent hlutafjár í félaginu 101 Seafood ehf., og verður þar með stærsti hluthafi félagsins.

ÍL-sjóður tapaði 13,2 milljörðum á fyrri hluta árs
Afkoma ÍL-sjóð á fyrstu sex mánuðum ársins var neikvæð sem nemur 13,2 milljörðum króna samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé þann 30. júní 2023 var neikvætt um 243.916 milljónir króna samanborið við neikvætt eigið fé að fjárhæð 230.704 milljónir króna í ársbyrjun.

Hagvöxtur töluvert minni næstu ár og stýrivaxtahækkunum lokið
Í nýútgefinni hagspá Landsbankans til ársins 2026 segir að hátt vaxtastig hafi tekið að slá á eftirspurn, bæði einkaneyslu og fjárfestingu og að útlit sé fyrir að verðbólga hjaðni hægt og rólega á næstu mánuðum.

Sigurður Álfgeir frá Deloitte til Síldarvinnslunnar
Síldarvinnslan hefur ráðið Sigurð Álfgeir Sigurðarson, endurskoðanda, til starfa hjá fyrirtækinu. Sigurður verður firmaður reikningshalds hjá Síldarvinnslusamstæðunni og kemur þaðan frá Deloitte.

Kerið selt
Arctic Adventures hefur keypt allt hlutafé í Kerfélaginu af Óskari Magnússyni, Ásgeiri Bolla Kristinssyni, Sigurði Gísla Pálmasyni og Jóni Pálmasyni, sem áttu hver sinn fjórðungshlut. Helsta eign Kerfélagsins er Kerið í Grímsnesi sem hefur lengi verið vinsæll áningarstaður ferðamanna, rómað fyrir náttúrufegurð og jarðfræðilega sögu.

Elva Rakel tekur við af Hrund hjá Festu
Elva Rakel Jónsdóttir hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra Festu - miðstöð um sjálfbærni. Hún tekur við starfinu af Hrund Gunnsteinsdóttur sem hefur leitt störf Festu síðastliðin fjögur ár.

Yngvi hættur hjá Sýn
Stjórn Sýnar og Yngvi Halldórsson, forstjóri, hafa í dag gert samkomulag um starfslok forstjóra. Viðræður um starfslokin áttu sér stað að frumkvæði forstjóra. Hann hefur látið af störfum.