
Viðskipti

Gunnar Hörður til Brussel frá ríkislögreglustjóra
Gunnar Hörður Garðarsson, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra, hyggst kveðja félaga sína hjá embættinu en hann hefur þess í stað störf í Brussel við samskiptadeild uppbyggingarsjóðs EES.

Stjórn Regins fellur ekki frá yfirtökutilboði í Eik
Stjórn fasteignafélagsins Regins hyggst standa við áform sín um að leggja fram valfrjálst yfirtökutilboð í allt hlutafé Eikar. Stjórnir fasteignafélaganna Reita og Eikar tilkynntu á föstudag að þær hafi samþykkt að ganga til samrunaviðræðna.

Opel býður fyrirtækjum einfalda orkuskiptalausn í fimm þrepum
Opel rafsendibílar eru vinsælastir rafknúinna sendibíla á Íslandi í dag með 33,2% hlutdeild af rafsendibílamarkaði og hefur sala Opel rafsendibíla næstum sjöfaldast miðað við sama tíma fyrir ári.

„Maður notar hádegishléin, pissupásurnar, kvöldin og helgarnar í þessa vinnu“
„Við Elfa höfum þekkst frá því í grunnskóla en fórum í raun ekki að vera mikið saman fyrr en í háskólanum, um og uppúr 2014. Sigrúnu þekkti ég síðan úr fimleikunum í gamla daga,“ segir Vilborg Ásta Árnadóttir til að útskýra tengslin á milli hennar og meðeigenda hennar að visteyri.is, þeim Elfu Rós Helgadóttur og Sigrúnu Dís Hauksdóttur.

Launakröfur upp á allt að tíu milljónir og Helgi vill milljarð
Kröfur í þrotabú Torgs ehf., sem gaf út Fréttablaðið sáluga og fleiri miðla, nema tæplega einum og hálfum milljarði króna. Langsamlega stærsta krafan er krafa frá Helga Magnússyni, eiganda Torgs, upp á rétt tæpan milljarð. Samþykktar kröfur upp á 235 milljónir samanstanda nánast alfarið af forgangskröfum starfsmanna.

Ný stjórn kosin á hluthafafundi
Stjórn Íslandsbanka hefur boðað til hluthafafundar í lok mánaðar þar sem kosið verður í stjórn, varastjórn og embætti formanns stjórnar auk þess sem fjallað verður um sátt bankans við Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands.

Ásmundur Tryggvason hættur hjá Íslandsbanka
Ásmundur Tryggvason, framkvæmdastjóri á sviði fyrirtækja og fjárfesta hjá Íslandsbanka, hefur ákveðið að stíga til hliðar. Kristín Hrönn Guðmundsdóttir hefur verið ráðin í hans stað.

Bíður sjálf í röð ólíkt Kardashian-systrunum
Guðrún Kristmundsdóttir, eigandi Bæjarins beztu, segist sjálf bíða í röð eftir pylsu. Það hafi hins vegar Kardashian-systurnar ekki gert á sínum tíma. Hún segir vinsældir Bæjarins beztu vera miklar, það stafi af vinnu sem farið var í fyrir mörgum árum síðan.

Á það til að „Asana“ yfir sig og til í minni rigningu en meiri sól
Sigurður Svansson framkvæmdastjóri Sahara og einn stofnenda og eigenda, býr í Orlando með fjölskyldunni sinni og nýtir tímamismuninn klukkan fimm á morgnana fyrir símtöl til Íslands. Hann segir náttúrufegurðina á Íslandi magnaða en væri til í meiri sól og minni rigningu. Í Orlando er golfið áhugamál númer eitt.

Sven sem Jobs kom RÚV í klandur
Ríkisútvarpið var talið hafa gerst brotlegt við nýbreytt fjölmiðlalög með því að birta auglýsingar verslunarkeðjunnar Svens, sem selur einungis nikótínpúða svokallaða.

Borgin riftir samningi um uppbyggingu 176 íbúða
Reykjavíkurborg hefur rift samningi sínum við Vesturbugt ehf. um uppbyggingu í Vesturbugt við gömlu höfnina í Reykjavík. Reykjavíkurborg ber fyrir sig vanefndir vegna tafa en Vesturbugt ehf. telur riftunina ólögmæta, meðal annars vegna þess að deiliskipulag fyrir svæðið hefur ekki enn verið samþykkt.

Hefja gjaldtöku við Fjaðrárgljúfur
Nýjir eigendur jarðarinnar Heiðar í Skaftárhreppi, þar sem má finna náttúruperluna Fjaðrárgljúfur, hafa síðustu mánuði unnið að því að lagfæra bílastæði og göngustíga ásamt því að laga til salernisaðstöðu á svæðinu. Samhliða því hefur gjaldtaka verið tekin upp á bílastæðum á svæðinu.

Reitir og Eik kanna sameiningu
Stjórnir fasteignafélaganna Eikar og Reita hafa samþykkt að ganga til viðræðna um mögulega sameiningu félaganna. Fasteignafélagið Reginn gerði nýverið yfirtökutilboð í allt hlutafé Eikar en stærsti eigandi félagsins lagðist gegn tilboðinu. Vill stjórn Eikar kanna hvort grundvöllur sé fyrir samruna við Reiti sem væri hluthöfum hagfelldari en fyrirhugað yfirtökutilboð.

Stefán Þór til First Water
Stefán Þór Winkel Jessen hefur verið ráðinn sem tæknistjóri fiskeldisfyrirtækisins First Water, sem áður hét Landeldi. Stefán tekur meðfram því sæti í framkvæmdastjórn félagsins sem hann hefur starfað hjá síðan í lok síðasta árs.

Öll félög hækkað eftir Alvotech vendingar
Gengi allra skráðra félaga í Kauphöll Íslands hefur hækkað það sem af er degi eftir miklar lækkanir í gær. Líftæknifyrirtækið Alvotech er hástökkvari dagsins með 14,30 prósent hækkun en næst á eftir koma Sýn með 6,67 prósenta hækkun og Skel með 6,09 prósent. Þá hefur velta markaðarins verið umfram meðaltal mánaðarins bæði í dag og í gær.

Verslanir Iceland munu brátt heyra sögunni til á Íslandi
Verslanir sem reknar eru undir merkjum Iceland munu hverfa af markaðnum hér á landi á næstu mánuðum.

„Við höfum ekkert að fela“
Forstjóri Húsasmiðjunnar hafnar því að vörur hafi verið hækkaðar í verði til þess eins að telja neytendum trú um að afsláttur á sumarútsölu væri meiri. Valdar vörur í sumarbæklingi hafi farið á almennt listaverð í nokkra daga áður en allsherjarútsala hófst. Fyrirtækið hafi ekkert að fela.

Mardís, Tracey og Elísabet ráðnar til atNorth
Mardís Heimisdóttir, Tracey Pewtner og Elísabet Árnadóttir hafa allar verið ráðnar til starfa hjá gagnavers- og ofurtölvufyrirtækinu atNorth.

Borist ábendingar um tugmilljóna króna svik vegna innflutnings á húsum
Neytendasamtökunum hefur borist ábending um að tugir milljóna hafi verið sviknar út úr sextán manns af íslenskum aðila sem gefur sig út fyrir að flytja inn og selja hús frá Austur-Evrópu. Formaður Neytendasamtakanna segir samtökin hafi fengið ábendingu um málið en geti lítið gert í slíkum málum annað en að vísa þeim til lögreglu.

Fastus innkallar spaða vegna arómatísks amíns
Fyrirtækið Fastus hefur innkallað „Paderno World Cuisine“ eldhússpaða úr plasti. Ástæðan er að flæði arómatísks amíns fer yfir leyfileg mörk samkvæmt reglugerðum. Viðskiptavinir eru beðnir um að hætta notkun vöru hennar og farga henni eða skila.

Hvernig gott er að bregðast við óvæntum forstjóraskiptum
Það getur verið allur gangur á því hvort það er aðdragandi að því að forstjóra eða framkvæmdastjóra er skipt út.

Vörur á mesta afslættinum voru hækkaðar í verði í vikunni
Verkefnastjóri verðlagseftirlits hjá ASÍ kom sér upp sjálfvirkum gagnagrunni verðlags hjá hinum ýmsu fyrirtækjum á dögunum. Á innan við viku nappaði hann stórfyrirtæki sem hækkaði verð fjölda vara til þess eins að blása til útsölu þremur dögum seinna.

Viðræðum Kviku og Íslandsbanka slitið: „Það kom mér á óvart hvernig þessar niðurstöður voru“
Forstjóri Kviku banka segir Íslandsbanka eftir sem áður gott fyrirtæki og að hann sjái vel fyrir sér að hægt verði að taka upp þráðinn í viðræðum um sameiningu félaganna tveggja, að loknum hluthafafundi Íslandsbanka.

Segist maðurinn til að leiða bankann áfram og tekur varnaðarorðum VR alvarlega
Formaður VR segir félagið hætta milljarða viðskiptum sínum við Íslandsbanka ef bankinn telji það eitt duga að bankastjórinn hætti störfum vegna fjölmargra brota við útboð bankans á hlut ríkisins í fyrra. Nýr bankastjóri leggur áherslu á að bankinn bregðist við umbótakröfum Fjármálaeftirlitsins og segir sjálfsagt að biðjast afsökunar á því sem fór úrskeiðis.

Vildu ekki Prettyboitjokko en fengu hann samt
Mikil gremja og reiði er meðal útskriftarnema Menntaskólans við Sund eftir að útskriftarferð á vegum Tripical til Krítar á Grikklandi fór ekki eins og til stóð. Ítrekaðar breytingar á brottfaratímum, vandræði með farangur, lélegt upplýsingaflæði og óánægja með bókun tónlistarmannsins Prettyboitjokko er meðal þess sem nemendurnir hafa agnúast út í. Hafa margir farið fram á að fá hluta ferðakostnaðarins endurgreiddan.

Erling lætur af störfum hjá Ljósleiðaranum
Erling Freyr Guðmundsson framkvæmdastjóri Ljósleiðarans hefur óskað eftir því við stjórn Ljósleiðarans að láta af störfum. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Kvika slítur samrunaviðræðum við Íslandsbanka
Kvika banki hefur tilkynnt að bankinn hafi slitið viðræðum um mögulegan samruna bankans við Íslandsbanka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum til Kauphallarinnar. Íslandsbanki segist sammála þeirri ákvörðun.

Grétar, Hafdís og Jón til liðs við LSR
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) hefur ráðið þrjá nýja starfsmenn, tvö á svið stafrænnar þróunar og reksturs og einn á eignastýringarsvið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lífeyrissjóðnum.

Framboð íbúða eykst enn og sölutíminn lengist
Framboð íbúða hefur haldið áfram að aukast, aðallega vegna lengri sölutíma, og þá hefur þeim íbúðum fjölgað hlutfallslega sem seljast undir ásettu verði. Íbúðum til sölu hefur fjölgað um 300 á þremur mánuðum og eru nú 1.800 talsins.

Alvotech fær ekki markaðsleyfi fyrir hliðstæðu Humira að svo stöddu
Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna mun ekki afgreiða umsókn Alvotech um markaðsleyfi fyrir AVT02, hliðstæðulyf Humira, að svo stöddu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.