Viðskipti

Þessi vörumerki voru útnefnd bestu íslensku vörumerkin
Vörumerkjastofan brandr útnefndi „Bestu íslensku vörumerkin“ í þriðja sinn í dag. Viðurkenningar voru veittar í fjórum flokkum en sigurvegararnir voru Controlant, Blush, Ikea og Krónan.

Seðlabankastjóri segir Íslendinga í góðærisvanda
Seðlabankastjóri segir Íslendinga í góðærisvanda. Lakari horfur í efnahagsmálum stafi einkum af meiri launahækkunum en reiknað hefði verið með, gengissigi krónunnar og minna aðhalds í fjárlögum. Meginvextir Seðlabankans voru hækkaðir í 6,5 prósent í morgun og hafa ekki verið hærri í tæp þrettán ár.

Bein útsending: Bestu íslensku vörumerkin
Vörumerkjastofan brandr mun útnefna „Bestu íslensku vörumerkin“ í þriðja sinn klukkan 12 í dag. Viðurkenningar eru veittar í fjórum flokkum, sem er skipt upp eftir starfsmannafjölda og því hvort vörumerkin starfi á einstaklings- eða fyrirtækjamarkaði. Þá er kynntur til sögunnar nýr flokkur: Besta alþjóðlega vörumerkið á Íslandi.

Seðlabankinn hafi dregið stutta stráið
Seðlabankastjóri segir Seðlabankinn hafi dregið það stutta strá að þurfa að bregðast við verðbólgu hér á landi, sem skýri enn eina stýrivaxtahækkun bankans í morgun. Stjórnendur bankans gagnrýndu hið opinbera og aðila vinnumarkaðarins nokkuð fyrir ákvarðanir síðustu missera og var talað um sjálfsmark í því samhengi. Var því velt upp hvort að þessir aðilar væru staddir í öðrum veruleika en Seðlabankinn.

Andri Þór ráðinn til Advania
Andri Þór Atlason hefur gengið til liðs við mannauðslausnir Advania til að leiða vörustýringu og þróun Bakvarðar. Hann starfaði áður hjá Abacus Medicine og hefur víðtæka reynslu úr tækni- og lyfjageiranum í Kaupmannahöfn.

Vöruviðskipti óhagstæð um 15 milljarða króna í janúar
Vöruskipti í janúar voru óhagstæð um 15 milljarða en fluttar voru út vörur fyrir 79,3 milljarða króna og inn fyrir 94,4 milljarða króna. Vöruskiptajöfnuðurinn í janúar var 9,4 milljörðum óhagstæðari en á sama tíma fyrir ári.

Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður enn eina stýrivaxtahækkunina
Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja stýrivaxtahækkun sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Tilkynnt var í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um 0,5 prósentustig.

Ellefta hækkunin í röð: Seðlabankinn hækkar stýrivexti um 0,5 prósentur
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,5 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 6,5 prósent.

Bestu íslensku vörumerkin 2022: Að þessu sinni fær einstaklingur einnig viðurkenningu fyrir „Persónubrandr“
Í dag verður tilkynnt um hverjir hljóta viðurkenningu sem Bestu íslensku vörumerkin 2022 en þetta er í þriðja sinn sem hátíðin fer fram.

Setja gervigreind í farþegasætið á netinu
Starfsmenn Microsoft ætla að tengja gervigreindartækni, sem byggir á ChatGPT-tækninni vinsælu, við leitarvél fyrirtækisins Bing, netvafrann Edge, Office-pakkann og aðrar vörur fyrirtækisins. Forsvarsmenn fyrirtækisins lýsa tækninni sem aðstoðarbílstjóra fyrir notendur.

Landsbankinn tapaði máli sem gæti varðað um 70 þúsund lán
Landsbankanum hefur verið gert að greiða hjónum um 200 þúsund krónur vegna oftekinna vaxta af láni með breytilegum vöxtum. Málið var rekið fyrir héraðsdómi með stuðningi Neytendasamtaka sem telja að um 70 þúsund sambærileg lán hafi verið tekin á undanförnum árum. Komist var að öndverðri niðurstöðu í sambærilegu máli gegn Arion banka.

Þóra Arnórsdóttir til Landsvirkjunar
Þóra Arnórsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun. Þóra hætti störfum hjá RÚV fyrr í vikunni eftir 25 ára starf í fjölmiðlum.

Gott fólk: Allt önnur lögmál og jafnvel harðari í pólitík miðað við annars staðar
Gott fólk með Guðrúnu Högna eru nýir hlaðvarpsþættir í umsjón Guðrúnar Högnadóttur framkvæmdastjóra Franklin Covey.

Innkalla MUNA hampolíu vegna of mikils THC
Icepharma hefur sent frá sér tilkynningu um innköllun á framleiðslulotu af MUNA hampolíu vegna of hás innihalds af THC (tetrahydrocannabinol). Ráðist er í innköllunina í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.

Margt sem bendi til svipaðrar þróunar og fyrir hrun
Margt bendir til þess að á Íslandi gætu farið að gerast hlutir sem ekkert eru ósvipaðir því sem gerðist við aðdraganda hruns að sögn formanns VR. Efnahagsráðgjafi SA segir stöðuna vera snúna en með mjög litlum hætti sambærilega við hvernig hún var stuttu fyrir hrun.

Vegagerðin býður út styrkingu Þrengslavegar
Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í styrkingu Þrengslavegar á kaflanum milli Lambafells og Litla-Sandfells. Verkinu á að ljúka fyrir lok sumars.

Þrýstu á tollalækkanir á fundi með Bjarna
Fulltrúar þriggja stéttarfélaga og Félags atvinnurekenda funduðu í gær með Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra þar sem tillögur félaganna um lækkun og niðurfellingu tolla í þágu neytenda voru til umræðu.

Sölumet slegið hjá Play í janúar
Sölumet var slegið hjá Play í janúarmánuði og var bókunarstaðan mjög sterk. Flugfélagið flutti 61.798 farþega í janúar með 76,8 prósent sætanýtingu. Mest var nýtingin í flugi til Tenerife og Parísar, í kringum níutíu prósent.

Ómar nýr framkvæmdastjóri hjá Digido
Ómar Þór Ómarsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri vaxtar hjá markaðsstofunni Digido. Hlutverk hans verður að hjálpa íslenskum fyrirtækjum að vaxa á alþjóðavísu.

Öðru sinni dæmdur fyrir stórfelld skattalagabrot á innan við ári
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt framkvæmdastjóra og einn eiganda verktakafyrirtækis í tólf mánaða fangelsi og greiðslu um 207 milljóna króna sektar fyrir stórfelld skattalagabrot.

„Allt í þessum drykk er bara drasl“
Elísabet Reynisdóttir næringarfræðingur er harðorð þegar kemur að innihaldinu í íþróttadrykknum Prime. Drykkurinn hefur verið afar vinsæll hér á landi á meðal barna og ungmenna.

Nýr hótelstjóri á Hótel Selfossi í kjölfar eigendaskipta
Björgvin Jóhannesson hefur verið ráðinn hótelstjóri Hótel Selfoss.

Aðalheiður Anna og Flóvent sigruðu fyrsta mót meistaradeildar Líflands 2023
Fyrsta mót Meistaradeildar Líflands var haldið síðastliðinn fimmtudag í glæsilegri aðstöðu HorseDay hallarinnar á Ingólfshvoli. Keppt var í fjórgangi og var eftirvæntingin mikil að tímabilið myndi hefjast á ný.

Hjón í nýsköpun: Hugmyndin kom óvart í feðraorlofi í Barcelona
„Fyrstu mánuðina okkar í Barcelona var ég í feðraorlofi og að læra spænsku eftir að hafa flutt fra Danmörku. Ég hafði útbúið gagnagrunn í Excel um fýsileika vindmylluverkefna og velti fyrir mér hvort ég gæti selt þetta sem vöru en áttaði mig þó á því að ég myndi fljótt gera mig atvinnulausan sem ráðgjafi ef ég seldi grunninn frá mér,“ segir Edvald Edvaldsson um aðdragandann að því að nýsköpunarfyrirtækið Youwind Renewables varð til.

Gervigreind framleiddi heila auglýsingaherferð Advania
Ný auglýsingaherferð Advania var gerð af gervigreind. Allt ferlið tók einungis fjóra daga og er meira að segja rödd herferðarinnar gervigreind. Kostnaður við gerð auglýsinganna var aðeins brota brot af því sem slík herferð hefði annars kostað.

Morgunrútínan að breytast fljótlega og rokkið umfram diskó
Það má búast við að Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi hafi í nægu að snúast næstu vikurnar því í gær var tilkynnt um það að stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefði ráðið hann sem forstjóra frá og með 1. apríl næstkomandi og eins eru tvö barnabörn á leiðinni. Dóttir hans sem á von á barni býr enn heima.

Jóhanna Margrét til Play
Jóhanna Margrét Gísladóttir, fyrrverandi dagskrárstjóri Stöðvar 2, hefur verið ráðin sem yfirmaður viðskiptaþróunar hjá flugfélaginu Play.

Musk sýknaður af kröfum vegna meintrar markaðsmisnotkunar
Elon Musk, forstjóri bílaframleiðandans Tesla og einn ríkasati maður heimsins, var rétt í þessu sýknaður af öllum kröfum hóps fjárfesta í félaginu vegna meintrar markaðsmisnotkunar. Hópurinn sakaði hann um að hafa blekkt fjárfesta með því að tísta um að hann gæti tekið félagið af markaði árið 2018.

Davíð Lúther segir skilið við Sahara
Davíð Lúther Sigurðarson, einn stofnenda og framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Sahara, er hættur störfum. Hann greinir frá tímamótunum á Facebook.

N4 ehf. óskar eftir gjaldþrotaskiptum
N4 ehf. hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem birt var á samfélagsmiðlum sjónvarpsstöðvarinnar.