Viðskipti

Róbert ráðinn fjármála- og rekstrarstjóri KAPP
Róbert Gíslason hefur verið ráðinn rekstrar- og fjármálastjóri þjónustufyrirtækisins KAPP ehf. og mun sjá um daglegan rekstur félagsins. Róbert kemur til KAPP frá Greiðslumiðlun Íslands.

María tekur við sem fjármálastjóri HPP Solutions
María Jónsdóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri HPP Solutions ehf. Hún var áður fjármálastjóri Héðins, sem HPP var hluti af fram til síðustu áramóta.

Bjarki nýr inn í lykilstjórnendahóp N1
Bjarki Már Flosason hefur verið ráðinn forstöðumaður stafrænnar þróunar hjá N1 og verður þar með hluti af forstöðumannahóp félagsins. Bjarki sinnti áður starfi þróunarstjóra stafrænna lausna hjá N1.

„Þá segir Jói: Veistu, þetta er mesta snilld sem ég hef heyrt!“
„Ég man þegar að við tókum við rekstri Rush Trampólín garðsins að þá var eitt það fyrsta sem starfsfólkið spurði okkur „Þýðir það þá að við fáum Pétur Jóhann til okkar líka?““ segir Jóhannes Ásbjörnsson einn eigenda Gleðipinna um hversu vel starf Péturs Jóhanns Sigfússonar í hlutverki Móralska er að mælast hjá starfsfólki.

Eik hættir við kaup á Lambhaga
Eik fasteignafélag hefur hætt við að kaupa garðyrkjustöðvarnar Lambhaga í Úlfarsdal og Lund í Mosfellsdal. Kaupverð var áætlað 4,2 milljarðar króna.

Bjarni fagnar langþráðri hreinni sakaskrá
Bjarni Ármannsson, forstjóri Iceland Seafood og fjárfestir, er ekki lengur með dóm á bakinu fyrir meiriháttar skattalagabrot. Málinu var vísað frá héraðsdómi í Hæstarétti í gær. Bjarni segir réttlætið hafa sigrað.

Brosið stirðnar á andlitum bíófólks
Kvikmyndagerðarfólki brá illilega í brún þegar fjárlög voru kynnt í vikunni. Fyrir dyrum stendur 33 prósenta niðurskurður á framlögum til kvikmyndasjóðs; innlendrar kvikmyndagerðar. Óhætt er að segja að það leggist illa í íslenska bíóbransann, vægt til orða tekið.

Smitten fær fjármagn upp á 1,4 milljarða
Íslenska stefnumótaforritið Smitten hefur tryggt sér rúmlega 1.400 milljónir króna í fjárfestingu til að halda áfram þróun forritsins. Smitten er vinsælasta stefnumótaforritið á Íslandi.

Reikna með að verðbólgan mjakist niður á við
Hagfræðideild Landsbankans spáir því að ársverðbólga muni mælast 9,6 prósent í september. Gangi það eftir telur hagfræðideildin að það sé frekari staðfesting þess að verðbólga hafi náð hámarki hér á landi.

Emilía nýr verkefnastjóri hjá Húsasmiðjunni
Emilía Borgþórsdóttir hefur verið ráðin í stöðu verkefnastjóra umhverfis- og samfélagsmála hjá Húsasmiðjunni. Hún hefur nú þegar hafið störf.

Andrea nýr forstöðumaður hjá Fossum
Andrea Björnsdóttir hefur verið ráðin í starf forstöðumanns á skrifstofu forstjóra Fossa fjárfestingarbanka. Hún hefur störf í dag.

Eigandi Patagonia gefur fyrirtækið til góðgerðarsjóðs
Bandaríski auðmaðurinn Yvon Chouinard, sem er stofnandi og eigandi útivistarfataframleiðandans Patagonia, segir að hann hafi gefið fyrirtækið til góðgerðarsjóðs.

Innherji á Vísi færður fyrir aftan greiðsluvegg
Frá og með deginum í dag verður viðskiptamiðillinn Innherji á Vísi í áskrift og færður fyrir aftan greiðsluvegg. Samhliða þessu er ný innskráning á Vísi kynnt til leiks þar sem notast er við rafræn skilríki. Þegar fram líða stundir verður ýmis önnur þjónusta í boði fyrir innskráða lesendur.

Hlíf af mótor flugvélar Atlanta lenti í innkeyrslu í Belgíu
Hlíf féll af mótor flugvélar frá flugfélaginu Atlanta ehf. sem var á leið frá Liége í Belgíu til Möltu síðastliðinn fimmtudag. Hlífin lenti í innkeyrslu við íbúðarhúsnæði í Waremme í Belgíu.

Bein útsending: Ferðaþjónustudagurinn 2022
Ferðaþjónustudagurinn 2022 fer fram í Norðurljósasal Hörpu í dag, miðvikudaginn 14. september. Á fundinum verður fjallað um ferðaþjónustu með tilliti til verðmætasköpunar og stöðunnar í hagkerfinu meðal annars en honum verður streymt í beinni útsendingu hér á Vísi.

Um 380 milljónum deilt til 25 einkarekinna fjölmiðla
25 einkareknir fjölmiðlar deila með sér rúmlega 380 milljónum króna samkvæmt niðurstöðu úthlutunarnefndar um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla. Þremur umsóknum var hafnað þar sem umsóknirnar uppfylltu ekki skilyrði fyrir rekstrarstuðning en í heildina sóttu fjölmiðlarnir 28 um rekstrarstuðning að fjárhæð 917,5 milljónir króna.

Guðrún Edda, Stefanía og Vigdís Perla til liðs við Aton.JL
Aton.JL hefur ráðið þær Guðrúnu Eddu Guðmundsdóttur, Stefaníu Reynisdóttur og Vigdísi Perlu Maack til starfa. Allar hafa þær þegar hafið störf. Guðrún Edda og Stefanía starfa sem ráðgjafar og Vigdís sem verkefnastjóri.

Lóa Fatou nýr framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Good Good
Lóa Fatou Einarsdóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri rekstrarsviðs (COO) í höfuðstöðvum matvælafyrirtækisins Good Good í Reykjavík. Hún mun sem slíkur leiða uppsetningu og rekstur á starfsemi fyrirtækisins í Evrópu og Norður-Ameríku.

Hörn ráðin til Transition Labs
Hörn Halldóru- og Heiðarsdóttir hefur verið ráðin til starfa hjá Transition Labs þar sem hún mun gegna stöðu verkefnastjóra.

Kemur til 50skills frá CreditInfo
Kristín Helga Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá fyrirtækinu 50skills sem sérhæfir sig í hugbúnaðargerð á sviði ráðninga. Hún starfaði áður hjá Creditinfo Lánstrausti þar sem hún gegndi stöðu forstöðumanns vöru- og verkefnastýringar.

Íbúðum sem seljast yfir ásettu verði fækkar
Íbúðum sem seldust yfir ásettu verði fækkaði um tæp tíu prósent á höfuðborgarsvæðinu milli maí og júní. Þrátt fyrir það styttist meðalsölutími íbúða á höfuðborgarsvæðinu milli júní og júlí mánaða úr 42,3 dögum í 40,1 dag.

Hamingjuvikan framundan: „Þetta þarf ekki að vera flókið eða dýrt“
Í næstu viku er International Week of Happiness at work. Vikan hefst mánudaginn 19.september og lýkur 25.september.

Opnuðu Hlöllastað í kyrrþey og koma upp mathöll við Smáralind
Hlöllabátar hafa opnað útibú í Öskjuhlíð við Bústaðaveg, í húsi sem staðið hefur autt um nokkra hríð. Framkvæmdastjóri Hlöllabáta ehf. segir ekki hafa farið mikið fyrir opnuninni í maí, en nú sé rekstur staðarins að komast á mikið skrið. Þá stefnir félagið að opnun lítillar Mathallar við Smáralind.

Loka Skuggabaldri í síðasta sinn á laugardagskvöld
Næstkomandi laugardagskvöld verður haldið kveðjupartý fyrir djassbúlluna Skuggabaldur við Austurvöll.

Takk fyrir ekkert, segja andvaka veitingamenn
Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði hafa sent frá sér harðorða yfirlýsingu þar sem þau lýsa yfir gríðarlegum vonbrigðum með fyrirhugaða hækkun áfengisgjalda.

Halla nýr forstjóri Sóltúns heilbrigðisþjónustu
Halla Thoroddsen er nýr forstjóri Sóltúns heilbrigðisþjónustu ehf. (SH). Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Sóltúns.

Amazon birtir heimildarþátt um Kerecis
Heimildarþáttur um íslenska lækningavörufyrirtækið Kerecis er nú aðgengilegur á streymisveitunni Amazon Prime. Aðstoðarforstjóri Amazon stýrir þáttaröðinni sem fjallar um áhugaverð fyrirtæki, sem hann telur eiga erindi við framtíðina.

Kemur ný inn í eigenda hóp Réttar
Védís Eva Guðmundsdóttir hefur bæst í hóp eigenda hjá hjá lögmannsstofunni Rétti – Aðalsteinsson & Partners. Hún hefur sérhæft sig í mannréttindamálum og Evrópurétti og hefur starfað á stofunni frá 2020.

BYKO einn af eftirsóknarverðustu vinnustöðum Evrópu
BYKO hlaut á dögunum viðurkenningu sem einn af eftirsóknarverðustu vinnustöðum í Evrópu í hópi meðalstórra fyrirtækja. Tölvuleikjafyrirtækið CCP hlaut einnig viðurkenningu í sama flokki, og auglýsingastofan Sahara hlaut viðurkenningu í hópi lítilla fyrirtækja.

Ráðinn framkvæmdastjóri markaðsmála og vaxtar hjá Arctic Adventures
Sindri Snær Einarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri markaðsmála og vaxtar hjá ferðaþjónustufyrirtækinu Arctic Adventure.