Viðskipti

TVÍK hlaut Gulleggið 2022
Teymið á bak við TVÍK, eða tæknivædda íslenskukennarann, vann Gulleggið 2022, elstu frumkvöðlakeppni landsins.

Forstjóri Skeljungs hættir óvænt vegna upplifunar samstarfskonu
Árni Pétur Jónsson, forstjóri Skeljungs, hefur óskað eftir því að láta af störfum sem forstjóri. Hann vísar til þess að honum hafi borist tölvupóstur frá fyrrverandi samstarfskonu sem segir hann hafa farið yfir mörk í samskiptum þeirra fyrir sautján árum.

Lokakeppni Gulleggsins 2022
Lokakeppni Gulleggsins fer fram í Grósku í dag þar sem tíu stigahæstu teymin í nýsköpunarkeppninni keppa til úrslita. Hægt er að fylgjast með viðburðinum sem hefst klukkan 16 í Grósku í spilaranum hér fyrir neðan og á stöðinni Stöð 2 Vísi.

Auglýsingatekjur fjölmiðla drógust saman um sextán prósent
Tekjur innlendra fjölmiðla af birtingu og flutningi auglýsinga árið 2020 drógust saman um 16% frá árinu áður reiknað á föstu verðlagi. Sambærilegur samdráttur sást einnig í auglýsingagreiðslum til erlendra miðla. Heildartekjur innlendra fjölmiðla rýrnuðu um 6% frá fyrra ári en tekjur af notendum jukust um 2%.

Sigló Hótel orðið hluti af Keahótelum
Keahótel ehf. hafa tekið við rekstri Sigló Hótels á Siglufirði og tengdrar starfsemi til næstu sautján ára. Keahótel mun leigja hótelið sjálft, veitingastaðina Sunnu, Rauðku og Hannes Boy, ásamt Sigló gistiheimili.

Keppast um að komast í hóp Controlant, Meniga og Pay Analytics
Tíu teymi keppa til úrslita í frumkvöðlakeppninni Gullegginu í dag en keppnin hófst 15. janúar. Alls bárust 155 hugmyndir í ár og þar af yfir áttatíu kynningar frá teymum sem vildu freista þess að komast í lokakeppnina.

Leiðir til að kljást við reiða eða dónalega viðskiptavini
Það er mikilvægt að muna að reiður eða dónalegur viðskiptavinur er í fæstum tilfellum reiður við þig persónulega.

Fjarlægja sögufræga brú fyrir ofursnekkju Bezos
Borgaryfirvöld í Rotterdam hafa staðfest að þau hyggist taka niður sögufræga brú í borginni, svo glæný ofursnekkja auðkýfingsins Jeff Bezos, sem er í smíðum í borginni, geti siglt burt.

Landsbankinn hagnaðist um 28,9 milljarða króna í fyrra
Landsbankinn hagnaðist um 28,9 milljarða króna eftir skatta í fyrra, samanborið við 10,5 milljarða króna árið 2020. Arðsemi eigin fjár var 10,8% árið 2021 eftir skatta, samanborið við 4,3% arðsemi árið áður.

Jurtaolíur hækka mest í verði
Verð jurtaolía hefur hækkað um 4,2% frá því í desember en matvöruverð hefur ekki verið hærra í nær tíu ár. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna um matvælaverð á heimsvísu.

Spá 0,75 prósentustiga hækkun stýrivaxta á miðvikudag
Greining Íslandsbanka og Hagfræðideild Landsbankans spá því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni hækka stýrivexti um 0,75 prósentur miðvikudaginn 9. febrúar.

Daglegum notendum Facebook fækkar í fyrsta sinn í sögunni
Daglegum notendum Facebook hefur fækkað í fyrsta sinn í átján ára sögu samfélagsmiðilsins.

Í hröðum vexti og horfa hýru auga til háskólanema
„Við höfum fengið háskólanema til okkar sem hafa unnið lokaverkefni sín í samstarfi við okkar starfsfólk, og slík samvinna hefur leitt til sumarstarfa og fastráðninga,“ segir Ásdís Eir Símonardóttir sem dæmi um það hversu gjöfult það getur verið að efla tengsl og samvinnu á milli háskólasamfélagsins og atvinnulífs.

Hægt að finna rafhlaupahjól og sjá mengun með auðveldum hætti
Nú er hægt að sjá staðsetningar á rafhlaupahjólum Hopp, OSS og ZOLO inn á vef Strætó. Sömuleiðis eru veittar upplýsingar um rafhlöðustöðu hjólanna.

Vinnsla Sjóvá á persónuupplýsingum ekki í samræmi við lög
Vinnsla tryggingafélagsins Sjóvá á persónuupplýsingum í tengslum við uppgjör bótakröfu vegna umferðarslyss samrýmdist ekki ákvæðum persónuverndarlaga. Þetta er niðurstaða Persónuverndar en brotið varðar ákvæði um fræðsluskyldu og gagnsæi um aðkomu vinnsluaðila persónuupplýsinga.

Segja neyðarástand ríkja á húsnæðismarkaði og krefjast aðgerða vegna verðbólgu
Miðstjórn ASÍ segir neyðarástand ríkja á húsnæðismarkaðnum og krefst þess að stjórnvöld grípi þegar í stað til aðgerða til að bæta stöðu þeirra sem verst verða fyrir barðinu á verðbólgunni, sem nú mælist.

Barst einungis tilkynning um hópuppsögn hjá The Reykjavík Edition
Vinnumálastofnun barst ein tilkynning um hópuppsögn í janúar þar sem 27 starfsmönnum var sagt upp störfum í gististaða- og veitingahúsarekstri.

Isavia ANS braut lög þegar 67 ára manni var sagt upp vegna aldurs
Isavia ANS ehf. braut lög um jafna meðferð á vinnumarkaði þegar félagið sagði upp starfsmanni við 67 ára aldur. Kærunefnd jafnréttismála komst að þeirri niðurstöðu að félagið hefði einvörðungu horft til aldurs þegar ákvörðun var tekin um starfslok hans og sú ákvörðun feli því í sér mismunun á grundvelli aldurs.

Ellefu sagt upp og boðið að færa sig í vaktavinnu
Ellefu fastráðnum starfsmönnum var sagt upp í fiskvinnslu Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum fyrir mánaðarmót. Þá var þrettán vertíðarstarfsmönnum tilkynnt að ekki væri unnt að tryggja þeim vinnu eftir lok vetrarvertíðar í apríl. Fastráðnum starfsmönnunum hefur öllum verið boðið að færa sig yfir í vaktavinnu.

Skortur kemur enn niður á framleiðslu PS5
Starfsmenn Sony eiga enn í vandræðum við að framleiða nægjanlegt magn PlayStation 5 leikjatölva. Um 3,3 milljónir tölva voru seldar síðasta ársfjórðungi 2021 og í heild hefur Sony selt 17,3 milljónir leikjatölva frá því þær komu fyrst á markað.

Ráðinn fjármálastjóri Kaptio
Steingrímur Helgason hefur verið ráðinn fjármálastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Kaptio.

Ellert stýrir fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans
Ellert Arnarson hefur verið ráðinn forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans og mun hann hefja störf á næstu vikum.

Hjalti Ragnar til Svars eftir tuttugu ár hjá Deloitte
Hjalti Ragnar Eiríksson, löggiltur endurskoðandi, hefur verið ráðinn til tæknifyrirtækisins Svars. Hann hefur um árabil starfað hjá Deloitte.

Nemendur búa sig undir vinnumarkaðinn á stafrænum Atvinnudögum HÍ
Mikil fjölgun doktorsnema er meðal þess sem atvinnulífið þarf að búa sig undir en eins eru nemendur í öllum greinum að skoða hvað það er sem atvinnulífið er að leita eftir.

Milljón horft á vél Icelandair lenda á Suðurskautslandinu
Rétt tæplega milljón manns hafa horft á myndband á Youtube sem sýnir lendingu og flugtak Boeing 767 flugvélar Icelandair á Suðurskautslandinu frá ýmsum hliðum.

Innköllun á kóreskum perum vegna ólöglegs skordýraeiturs
Matvælastofnun hefur kallað inn kóreskar perur sem fluttar voru inn frá Kína vegna ólöglegs skordýraeiturs sem fannst í perunum.

Ráðinn framkvæmdastjóri hjá YGG
Björgvin Stefán Pétursson lögfræðingur hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri hjá nýsköpunarfyrirtækinu Yggdrasil Carbon ehf.

Ráðinn mannauðsstjóri SaltPay á Íslandi
Arnar Sveinn Geirsson hefur verið ráðinn mannauðsstjóri SaltPay á Íslandi.

Fróði ráðinn til Frumtaks
Fróði Steingrímsson lögmaður hefur gengið til liðs við Frumtak þar sem hann mun sinna lögfræðilegum málefnum fyrir félagið og taka þátt í þróun á starfsemi þess. Þá mun hann veita félögum í eignasafni Frumtakssjóðanna ráðgjöf og stuðning.

New York Times kaupir orðaleikinn vinsæla
Bandaríska stórblaðið New York Times hefur keypt orðaleikinn Wordle, sem slegið hefur í gegn í netheimum undanfarin misseri.