Tíu prósentin tekin úr samhengi 21. júlí 2004 00:01
Formaður Vinstri - grænna segir forsætisráðherra ranglega hafa eignað honum þá hugmynd að markaðsráðandi fyrirtæki megi eiga tíu prósent í fjölmiðlum. Formaður Samfylkingarinnar segir takmörkun á eignarhaldi einungis síðasta kost séu aðrar leiðir ekki færar þegar unnið verði að nýjum fjölmiðlalögum. Samfylkingin telur fjögur atriði þurfi að vera í lögum um fjölmiðla. Styrkja þarf Ríkisútvarpið sem mótvægi við einkamiðla, setja þarf lög um gagnsætt eignarhald svo fólk viti hver á miðlana, ritstjórnir þurfa að setja sér innri reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði frá eigendum og styrkja þarf samkeppnislög og Samkeppnisstofnun. En hvað um takmörkun á eignarhaldi? Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir þingmenn flokksins á því að ekki eigi að ráðast í takmörkun á eignarhaldi eins og málum er skipað núna. Það sé aðeins ýtrasti kostur, séu aðrar leiðir ekki færar. Formaðurinn segir flokkinn hins vegar þeirrar skoðunar að það sé hægt að ná sama marki, og ríkisstjórnin vildi ná með takmörkun á eignarhaldi, með miklu vægari leiðum sem tryggi fjölbreytni á fjölmiðlamarkaði. Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri-grænna, segir misskilnings hafa gætt hjá forsætisráðherra og fleirum sem eyrnarmkerktu honumhugmyndina um tíu prósenta eignarhald markaðsráðandi fyrirtækja í fjölmiðlum. Hann segist aldrei hafa nefnt nein prósent í sambandi við hvaða eignarhlut hann sæi fyrir sér að væri í lagi að markaðsráðandi fyrirtæki mætti eiga í ljósvakamiðli. Steingrímur segist hafa nefnt að honum finndist fulllangt gengið að banna allt krosseignarhald milli ljósvaka og dagblaða, og í því samhengi hafi hann sagt að menn hefðu t.d. getað leyft eign af því tagi sem flokkuð væri undir virkan eignarhlut í fjármálaheiminum. Í því sambandi hafi hann nefnt tíu prósentin.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Gummi Emil feginn að ekki fór verr eftir misheppnaðan sveppatúr Innlent Verið að fara fram á rannsókn, ekki þöggun Innlent Efna til söfnunar fyrir móður Kolfinnu Eldeyjar Innlent Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Rússar gerðir afturreka með óvæntar tillögur á allsherjarþingi SÞ Erlent Fimmti hver myndi helst velja að flytja til Danmerkur Innlent Ómetanleg vinátta eftir lífsbjörg Innlent Bíða gagna og tjá sig lítið um rannsóknina á meðan Innlent Starfsmenn flýja framboð Robinson eftir „svartur nasisti“-hneykslið Erlent Tilkynnt um helst til ungan ökumann Innlent Fleiri fréttir Ein kært nauðgun og fjórar segjast hafa verið beittar ofbeldi Kanna hvort fleiri bjarndýr leynist fyrir vestan Manndráp í Kiðjabergi komið til saksóknara Máttu vita að eiturlyfjasalinn þeirra væri að flytja inn eiturlyf Ungmenni í viðkvæmri stöðu hagnýtt í afbrot hér á landi Ógn Rússa við Norðurlönd og Eystrasaltsríki rædd í HR Efna til söfnunar fyrir móður Kolfinnu Eldeyjar Lögreglan segir hóp ungmenna hagnýttan í skipulagða brotastarfsemi Bíða gagna og tjá sig lítið um rannsóknina á meðan Fylgjast grannt með ungmennum á Laufskálaréttarballi Bein útsending: Hnattrænar áskoranir Norðurlanda Verið að fara fram á rannsókn, ekki þöggun Synjanir farið úr tíu prósentum upp í tæp sextíu á tveimur árum Gummi Emil feginn að ekki fór verr eftir misheppnaðan sveppatúr Fimmti hver myndi helst velja að flytja til Danmerkur Ómetanleg vinátta eftir lífsbjörg Tilkynnt um helst til ungan ökumann Óásættanlegt að vísa NPA-vandanum alfarið til sveitarfélaga Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Bjarni fundaði með Guterres Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Kom vini sínum til bjargar á fótboltaæfingu og 34. klukkustund Bakgarðshlaups Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Verður Þórsmörk þjóðgarður? Vill burt með rándýr, úrelt og óþarfa stimpilgjöld Vonar að sveitarfélögin leysi úr NPA-vandanum Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Fjármögnun NPA-samninga og Bakgarðshlaupið í beinni Samgöngusáttmálinn, Yazan og loftlagsmál á Sprengisandi Slegist með vopnum við skemmtistað Sjá meira