Najaf hertekin 12. ágúst 2004 00:01
Bandarískar og írakskar hersveitir hafa hertekið miðborg Najaf í stórfelldri árás þar sem beitt hefur verið bæði þyrlum og skriðdrekum. Skilaboð árásarsveitanna til uppreisnarmannanna eru einföld: farið eða þið deyið. Najaf er eitt af höfðvígjum sjíta-klerksins Moqtadas al-Sadrs sem hefur espað til uppreisnar og blóðbaðs undanfarna mánuði. Svo virðist sem Bandaríkjamenn og írakskir stjórnarhermenn ætli nú að ganga milli bols og höfðs á skæruliðahreyfingu hans í eitt skipti fyrir öll. Hundruð manna hafa fallið í liði klerksins undanfarna daga enda eru flestir liðsmennirnir ungir að árum og hafa ekkert að gera í hendurnar á vel þjálfuðum bandarískum landgönguliðum. Það er hinsvegar enginn skortur á nýjum sjálfboðaliðum til þess að taka upp vopn fyrir þá sem falla. Al-Sadr hefur hvatt menn sína til þess að berjast til síðasta blóðdropa en sjálfur er hann í felum í hinum og þessum helgistöðum í borginni. Bandarískir skriðdrekar hafa nú lokað aðkomuleiðum að nokkrum helgistöðum í miðborginni. Írakskir hermenn fara um borgina á brynvörðum vögnum með öflugum hátölurum. Þeir kalla til borgarbúa að þeir ætli að svæla uppreisnarmennina út og hvetja almenning til að halda sig fjarri. Miklar mótmælagöngur hafa hinsvegar verið farnar í nokkrum borgum í Írak til þess að mótmæla árásinni á Najaf og lýsa stuðningi við Moqtada al-Sadr.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Fleiri fréttir Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Sjá meira