Erlent

Varaði við nýju Rúss­landi Pútíns

Samúel Karl Ólason skrifar
Vólódímír Selenskí á blaðamannafundi í Brussel í dag.
Vólódímír Selenskí á blaðamannafundi í Brussel í dag. AP/Geert Vanden Wijngaert

Vólódímír Selenskí segir að Úkraínumenn eigi rétt á því að verja sig og að hann sé einungis að standa vörð um hagsmuni þjóðarinnar. Er það eftir gagnrýni Donalds Trump í hans garð vegna árása á rússneska olíuvinnsluinnviði. Selenskí varaði líka við því að Vladimír Pútín væri að skapa Rússland sem líktist Norður-Kóreu og að öðrum ríkjum myndi áfram stafa ógn af Rússlandi í framtíðinni.

Trump gerði nýlega samkomulag við Vladimír Pútín um kaup á díselolíu og felldi niður refsiaðgerðir á rússneska díselolíu en Selenskí sagðist ekki geta sætt sig við það. Sambærilegar aðgerðir gegn rússnesku jarðgasi gætu fylgt á eftir.

„Ef ég stend ekki gegn þessu, hver gerir það þá?“ spurði Selenskí á hliðarlínum fundar Leiðtogaráðs Evrópusambandsins í Brussel í dag.

Trump hefur haldið því fram að það sé Selenskí en ekki Pútín sem standi í vegi friðar í Úkraínu og kennir áðurnefndum árásum Úkraínumanna um hátt eldsneytisverð, sem sérfræðingar segja að sé að miklu stærri hluta til komið vegna stríðs Trumps gegn Íran.

Eftir fundinn í dag var Selenskí spurður, samkvæmt frétt BBC, hvort hann teldi Trump vera að reyna að gera hann að blóraböggli fyrir eigin vandamál Trumps. Selenskí beið í um fimmtán sekúndur á meðan hann hlustaði á túlk sinn og glotti svo en þá hlógu blaðamenn.

„Þetta er svarið mitt.“

Þakkaði Evrópu fyrir

Selenskí ávarpaði leiðtogafund Evrópusambandsins í Brussel í morgun. Þar sagðist hann þakklátur fyrir stuðninginn sem Úkraína hefði fengið frá Evrópu. Margt hefði gengið á á undanförnum árum.

„Ekkert okkar vildi þetta stríð, algerlega ekkert okkar. En það erum við sem þurfum að bregðast við þessum grimmileika og óstöðugleikanum sem stríðið hefur valdið.“

Forsetinn sagði að án Evrópusambandsins og samstöðu þess hefði Vladimír Pútín gengið enn lengra en hann hefði þegar.

Í ávarpi sínu talaði Selenskí einnig um samband Úkraínu, Evrópu og Bandaríkjanna. Það samband hefur beðið mikla hnekki á undanförnum dögum og einnig áður. Hann sagðist þakklátur þeim sem væru að reyna að halda Evrópu og Bandaríkjunum saman.

Þá sagði Selenskí að í Bandaríkjunum væri margt góðhjartað fólk sem vildi hinu illa allt illt og að Úkraína standi keik gegn innrás Rússa. Það væru sömu góðu hjörtu og hefðu hjálpað Evrópu að verja frelsi sitt á árum áður, unnið kalda stríðið og vildu það besta fyrir Evrópu.

„Ég tel að flestir Bandaríkjamenn séu enn þeirrar skoðunar. Og þegar upp er staðið mun bandaríska þjóðin fá að láta vilja sinn í ljós.“

Þar var Selenskí líklega að vísa í þingkosningarnar í Bandaríkjunum í næsta mánuði. Ef marka má kannanir eru Repúblikanar ekki líklegir til að ríða feitum hesti frá þeim kosningum.

Hann sagði einnig að eina leiðin til að fá Pútín til að hlusta væri að hita verulega undir honum og gera honum eitt ljóst. Að annaðhvort velji hann frið en verði blankur.

Selenskí nefndi einnig niðurfellingu Trumps á rússneskri díselolíu og sagði að Úkraínumenn hefðu varað við því að ef slakað yrði á refsiaðgerðum gegn Rússlandi myndu aðrir nýta það. Peningar væru þegar byrjaðir að flæða aftur til Rússlands.

Þrátt fyrir það myndi samkomulagið hafa hverfandi áhrif á verð díselolíu í heiminum en það myndi hafa mikil áhrif á pyngju Pútíns og gera honum auðveldara að fjármagna stríðsreksturinn gegn Úkraínu.

Hann kallaði eftir frekari refsiaðgerðum og betri eftirfylgni með þeim refsiaðgerðum sem þegar eru í gildi. Sérstaklega hvað varðar fyrirtæki sem eiga í viðskiptum við Rússa og selja þeim íhluti fyrir skotflaugar, samskiptabúnað og dróna.

Úkraínumenn skoða reglulega þessa íhluti sem finnast í eldflaugum og drónum Úkraínu og þeir koma margir frá fyrirtækjum á Vesturlöndum.


Vantar enn peninga og flugskeyti

Selenskí sagði að stríðið myndi kosta Úkraínumenn um 155 milljarða evra á næsta ári. Úkraínumenn þyrftu frekari fjárhagsaðstoð og þá sérstaklega við að auka drónaframleiðslu. Minnst sjötíu milljarða þyrfti frá Evrópu.

„Þetta er raunsæ upphæð og ég bið ykkur um að finna þennan stuðning. Það mun hjálpa okkur við að halda aftur af Rússum.“

Varðandi dróna sagði hann Úkraínumenn hafa burði til að framleiða tvisvar til þrisvar sinnum fleiri dróna en það færi eftir týpu. Með auknu fjármagni gætu þeir aukið þrýstinginn á Rússa verulega.

Þá nefndi Selenskí einnig skort Úkraínumanna á flugskeytum í Patriot-loftvarnarkerfi, sem eru helstu varnir Úkraínumanna gegn rússneskum skotflaugum. Hann sagði ekki ganga að Úkraínumenn fengu tvö eða fjögur flugskeyti frá einu ríki á nokkurra mánaða fresti.

Selenskí sagðist þakklátur fyrir þau flugskeyti sem Úkraínumenn fengju en þörfin á fleirum væri gífurleg. Bað hann um að fá þau flugskeyti sem til væru í Evrópu svo hægt væri að standa vörð um líf Úkraínumanna.


Varaði við nýju Rússlandi Pútíns

Í ávarpi sínu sagðist Selenskí standa í þeirri trú að þótt stríðinu myndi ljúka fljótt hefði Pútín gert umfangsmiklar breytingar í Rússlandi og að Evrópu myndi áfram stafa ógn af ríkinu.

„Hann er að móta Rússland sem líkist Norður-Kóreu, þar sem börn eru alin upp frá unga aldri fyrir stríð og til að deyja fyrir leiðtoga þeirra. Rússland mun ekki hætta að vera hættulegt.“

Þá sagði Selenskí að það væri styrkur Úkraínu, her landsins og tækni sem myndi hjálpa við að halda Evrópu öruggri. Það væri ekki enn endurspeglað í fjárútlátum Evrópu til varnarmála og þyrfti að endurskoða.


Snýst ekki bara um Donbas

Á blaðamannafundinum eftir fund leiðtogaráðsins var Selenskí spurður út í kröfur Pútíns til Donbashéraðsins svokallaða. Það er myndað af Lúhansk og Dónetskhéruðum. 

Rússar stjórna mestöllu Lúhansk og stærstum hluta Dónetsk en ekki svæði sem Úkraínumenn kalla „virkisbeltið“.

Það svæði er um fimmtungur Dónetsk, og inniheldur nokkrar mjög víggirtar borgir.

Rússum hefur ítrekað reynst erfitt að taka úkraínskar borgir án gífurlegrar fyrirhafnar og mikils mannfalls og binda Úkraínumenn vonir við að geta stöðvað Rússa á þessu virkisbelti.

Selenskí svaraði spurningunni á þá leið að stríð Rússa gegn Úkraínu snerist ekki um Donbassvæðið. Það snerist um tilvist Úkraínu. Ef Úkraínumenn hættu að berjast yrði þeim útrýmt.

„Pútín segist vilja Donbas en af hverju hófst innrásin hans á því að þeir hernámu næstum því Kænugarð? Er hún í austurhluta landsins? Er hún í Donbas?“

Selenskí sagði að svo væri ekki. Kænugarður væri höfuðborg Úkraínu og án höfuðborgar myndi ríkið hætta að vera til.

„Hann vill útrýma okkur.“

Þá bætti Selenskí við að ef varnir Úkraínumanna féllu og ríkið yrði hernumið af Rússlandi myndi Pútín reka milljónir af Úkraínumönnum til Evrópu.

„Hann vill gera út af við okkur. Hann virðir okkur ekki, fullveldi okkar né landamæri okkar. Hann heldur í alvörunni að við séum ekki ríki, séum ekki þjóð.“

Þess vegna sagði Selenskí ekki hægt að treysta því að Pútín myndi láta staðar numið við Donbassvæðið, ef Úkraínumenn gæfu það eftir.

Áhugasamir geta horft á allan blaðamannafundinn í spilaranum hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×