21 fallinn í morgun 13. október 2005 14:44
Fjölmargar bílasprengjur sprungu í Bagdad í Írak í morgun og tuttugu og einn maður hið minnsta liggur í valnum. Öfgamenn beina spjótum sínum í auknum mæli að nýþjálfuðum írökskum öryggissveitum. Ein sprengnanna í morgun sprakk skammt frá græna svæðinu sem umlykur höfuðstöðvar bráðabirgðaríkisstjórnar Íraks og aðalstöðvar hersetuliðsins þar. Bíl var ekið upp að einum af hliðunum inn á græna svæðið og hann sprengdur í loft upp inni í þvögu af fólki á leið til vinnu sinnar. Fréttaskýrendur segja að þessi árás sé dæmigerð fyrir öfgahópana sem reyna hvað þeir geta að hræða Íraka frá því að taka að sér störf fyrir bráðabirgðaríkisstjórnina. Írakskir lögreglumenn og hermenn eru sérstök skotmörk. Öfgahóparnir hafa haft þó nokkuð erindi sem erfiði því æ erfiðlegar gengur að fá Íraka til þessarra starfa. Á sama tíma fer að verða æ meira aðkallandi að löggæslan sé öflug og í höndum heimamanna því fyrirhugaðar kosningar í janúar nálgast óðum. Óttast er að allt gæti farið í bál og brand í kosningunum ef öryggisgæsla er ekki nægjanleg.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira