Innlent

Bílvelta við Ljósafoss

Fólksbifreið valt við Ljósafoss klukkan hálfþrjú í dag. Ung kona var þar ein á ferð og virðist hún hafa misst stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hann valt og hafnaði úti í skurði. Vegfarendur gerðu Selfosslögreglu viðvart og var konan flutt á Landspítalann í Reykjavík til aðhlynningar. Bifreiðin er mikið skemmd.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×