Einn látinn og annar á gjörgæslu 18. október 2004 00:01
Pólskur karlmaður að nafni Lukas Zewicz Rafal Maciej lést þegar jeppabifreið fór út af þjóðvegi eitt við bæinn Brekku í Skagafirði skömmu fyrir klukkan hálf ellefu á sunnudagskvöldið. Lukas var 34 ára, fæddur 4. maí árið 1970. Fernt var í bílnum. 51 árs gamall maður slasaðist alvarlega og liggur á gjörgæsludeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, en maður og kona, bæði þrítug sluppu minna meidd. Að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild er maðurinn sem slasaðist mest úr lífshættu en verður þó um sinn á gjörgæsludeild, en fólkið sem minna slasaðist voru lögð inn til eftirlits, en verða að öllum líkindum útskrifuð í dag. Flughált var við Brekku, sem er skammt fyrir ofan Varmahlíð, þegar slysið varð. Fólkið sem slasaðist var allt flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki er fólkið sem í slysinu lenti pólskt kvikmyndagerðarfólk sem vann að gerð heimildarkvikmyndar um Ísland. Tveir jeppar kvikmyndagerðarfólks voru í samfloti. Bíllinn sem valt er af gerðinni Nissan Terrano og sagði lögregla hann vera bílaleigubíl á sumardekkjum.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Reyndu að ræna hraðbanka Innlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Komu hesti til bjargar úr gjótu Innlent Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Erlent Hættulega heitir dagar fleiri og mannskæðari en áður Erlent Holtavörðuheiði enn lokuð Innlent Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Innlent Spáir stillu og miklu svifryki um áramótin Veður Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Fleiri fréttir Holtavörðuheiði enn lokuð Reyndu að ræna hraðbanka Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíð og rólegt í Kvennaathvarfinu Skógaskóli verður hótel Grímuskylda á Landspítalanum Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Strætó rann á bíl og ruslaskýli Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Sjá meira