Innlent

Skemmdarvarganna enn leitað

Lögreglunni í Keflavík hafa borist vísbendingar vegna spellvirkja sem unnin voru á kirkjugarðinum í Keflavík í gær. Um tuttugu legsteinum var velt um koll og krossar rifnir upp, auk þess sem grafskrift, lugtir og fleira var eyðilagt. Lögreglan segir að ætla megi að tveir eða fleiri drengir um 12 ára gamlir hafi átt hlut að máli. Foreldrar eru beðnir að ræða við börn sín um ferðir sínar á þriðjudags- og miðvikudagskvöld, og þeir sem kunna að hafa vitneskju um málið beðnir að hafa samband við lögregluna í Keflavík.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×