Innlent

Eldur í fjölbýlishúsi

Allt tiltækt lið slökkviliðs var kallað út vegna bruna í fjölbýlishúsi í Þverbrekku í Kópavogi skömmu fyrir klukkan tíu í morgun. Eldur kom upp í ruslageymslu hússins og reyndist auðvelt að ráða niðurlögum hans. Reykur barst hins vegar á allar hæðir hússins og því fóru slökkviliðs- og lögreglumenn um allar hæðir blokkarinnar og vöktu heimilisfólk til að koma í veg fyrir ótta og skelfingu. Þá var fjölbýlishúsið reykræst. Eldsupptök eru í rannsókn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×