Innlent

Rann út á gatnamótin

Ekki urðu meiðsli á fólki við árekstur tveggja bíla á mótum Dalsbrautar og Borgarbrautar á Akureyri í gærdag. Að sögn lögreglunnar á Akureyri vildi slysið til með þeim hætti að ökumaður á leið norður Dalsbraut reyndi að stöðva bíl sinn á stöðvunarskyldu, en sökum hálku vildi ekki betur til en svo að hann rann inn í hliðina á bíl sem kom austur Borgarbraut. Annar bíllinn skemmdist nokkuð við áreksturinn og var dreginn á braut með krana. Töluverð hálka er nú á Akureyri og í nágrenni bæjarins og vill lögregla því benda fólki á að fara varlega í umferðinni og aka eftir aðstæðum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×