Innlent

Fartölvu stolið

Fartölvu var stolið úr bíl sem stóð við sundlaugina við Glerárskóla á Akureyri í fyrradag. Þjófurinn braut rúðu til að komast inn í bílinn og hélt á brott tösku merkta Dell sem í voru tölvan og ýmsir pappírar. Eigandi tölvunnar er verktaki og saknar sárt mikilvægra pappíra sem í töskunni voru. Lögregluvarðstjóri á Akureyri segir slíka þjófnaði lítt þekkta á Akureyri en biður fólk að skilja ekkert sjáanlegt eftir í bílum sínum. Eins eru allir þeir sem veitt geta upplýsingar um málið beðnir að hafa samband við lögregluna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×